Morgunblaðið - 21.12.2016, Side 120
J
ólin eru án efa minn uppáhaldstími, þá
sérstaklega þegar snjórinn byrjar að falla
og fjölskyldan verður nánari. Að vera í
jólafríi og njóta tímans með fjölskyldunni
er uppáhalds,“ segir Sólrún sem mun
fara yfir jólaþrifin með fylgjendum sínum
á Snapchat. „Ég elska að hafa hreint í kringum mig
og sömuleiðis elska ég að miðla reynslu minni til
annarra, það geri ég daglega í gegnum Snapchat.
Þar kemur þrifáráttan sterk inn.“
Eins og áður sagði er Sólrún mikið jólabarn og
hún þarf hálfpartinn að halda aftur af sér þegar
kemur að jólaundirbúningnum. „Ég reyni að halda
aftur af mér með skreytingarnar,“
segir hún og hlær. „Ég reyni að
halda í hefðirnar sem mamma hefur
verið með síðan ég var barn en ein
er að skreyta fyrir fyrsta í aðventu.
Sama með baksturinn, ég elska að baka
og geri mikið af því fyrir jólin. En ég
byrja ekki fyrr en heimilið er orðið full-
skreytt.“ Sólrún byrjar svo tiltölulega
snemma að kaupa jólagjafir og und-
irbúa innkaupin. „Ég byrja í september
eða október að skrifa niður lista yfir þá
sem fá gjafir og kort frá okkur. Mér
finnst gott að byrja snemma - bæði peninga-
og tímalega séð. Ég vil alls ekki vera í stressi
rétt fyrir jól að kaupa gjafir, þess vegna
byrja ég að kaupa eina og eina í byrjun októ-
ber. Það er líka sniðugt að dreifa kostnaðnum
yfir október, nóvember og desember svo mað-
ur fái ekki einn stóran reikning í hausinn í desem-
ber.“
Spurð út í jólahefðir segir Sólrún að hún og unnusti
hennar, Frans, séu farin að skapa sér sínar eigin jóla-
hefðir saman. „Já, við höfum verið að bæta einni og
einni hefð við hver jól enda elska ég skemmtilegar
jólahefðir. Við til dæmis kaupum okkur eitt fallegt
jólaskraut í byrjun desember. Svo fáum við fjölskyld-
una í mat og spilum saman á aðventunni, skreytum
piparkökuhús, sendum jólakort og fullt fleira
skemmtilegt. Ég get heldur ekki beðið eftir að skapa
skemmtilegar hefðir með Maísól, stelpunni okkar,
mér finnst skipta öllu máli að leyfa börnunum að taka
þátt í svona hefðum.“
Jólatónlistin er ómissandi í þrifunum
Þegar kemur að jólaþrifunum byrjar Sólrún á eld-
húsinu, það tekur hún sérstaklega vel í gegn fyrir há-
tíðirnar. „Ég byrja alltaf á eldhúsinu þegar ég þríf,
sama hvort það eru vikuþrifin eða jólaþrifin. Mér
finnst það bara langbest. Það sem ég tek í nefið fyrir
jólin í eldhúsinu er bakaraofninn, örbylgjuofninn,
helluborðið, ruslaskápurinn, uppþvotta-
vélin, viftan og ísskápurinn.“ Því næst
tekur Sólrún baðherbergið í gegn.
„Ég er síðan með þvottahús sem ég
vil alltaf hafa tipp topp og sömuleiðis
þvottavélina og þurrkarann. En allt
þetta sem ég hef talið upp fer ég reglu-
lega yfir á Snapchat. Fólki finnst gott
að láta „minna“ sig á svona hluti svo
áhugasamir geta fylgst með þar.“ Í
jólaþrifunum þykir Sólrúnu gott að
hækka vel í tónlistinni. „Mér finnst svo
jólalegt að setja jólalögin í botn og þrífa
sófann og gólfmottuna,“ segir hún og hlær.
„Já, alveg klárlega,“ segir Sólrún spurð
hvort hún lumi á einhverju skotheldu ráði til
að kalla fram ferska lykt á heimilinu.
„Gamalt og gott er að sjóða borðedik í potti.
Fólk hefur gert þetta í hundrað ár og þetta
er til dæmis algjör snilld fyrir þá sem vilja losna við
skötulyktina í ár,“ segir Sólrún sem mælir svo með að
sjóða kanil eða negul með edikinu í desember og kalla
þannig fram sannkallaðan jólailm. Áhugasamir geta
svo fylgst með henni á Snapchat, undir notendanafn-
inu solrundiego, en þar mun hún deila með áhorf-
endum sínum hvernig hún framkvæmir jólaþrifin
heima hjá sér. Svo mun hún einnig deila öllu saman
með lesendum sínum á Mamie.is.
Jólaundirbúningur
Mun fara yfir jóla-
þrifin á Snapchat
Sólrún segir sniðugt að sjóða
kanil eða negul í borðediki,
þannig kemur jólalykt í hús.
Bloggarinn og Snapchat-arinn Sólrún Lilja Diego er mikið jólabarn og elskar
allt sem tengist jólatímanum. Sólrún, sem er þekkt fyrir að deila góðum ráðum
sem tengjast heimilishaldi og þrifum á blogginu sínu og á Snapchat, mun á
næstunni fara yfir jólaundirbúninginn með áhugasömum á þeim miðlum.
Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is
Sólrún er virk á Snap-
chat ásamt því að
blogga reglulega á
Mamie, en hún og vin-
konur hennar halda
þeirri síðu úti. Samhliða
því stundar hún nám við
Háskólann í Reykjavík.
Sólrún og Frans
eru með þá hefð
að kaupa sér eitt
nýtt jólaskraut í
desember.
„Ég get heldur ekki
beðið eftir að skapa
skemmtilegar hefðir
með Maísól, stelpunni okkar.“
❄
120 Jólablað Morgunblaðsins
fæst í Spilavinum
Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin í Faxafeni) - Sími 553 3450 - www.spilavinir.is
Jólagjöfin