Morgunblaðið - 21.12.2016, Page 12

Morgunblaðið - 21.12.2016, Page 12
Fjálglega var púki nefndur Pottasleikir, pestar-, saur- og svitalykt af honum feykir, allir sem þar standa fyrir enda veikir. T regur og af tröllum sprottinn, tekur stökk og finnur pottinn. Þar er ekki þokkasnefill. Þetta er hann Pottaskefill. Ranglega var pungur nefndur Pottasleikir, prettir eru iðja hans og helstu leikir, eltir uppi gamalær og í þeim kveikir. Höggvinn er í hengla spottinn, hleypur svo á braut með pottinn. Þröngar buxur, þæfður trefill. Þetta er hann Pottaskefill. Snæbjörn Ragnarsson B æði og. Snemma í aðdrag- anda jólanna finnst mér gaman. Kósí stemning, kertaljós, mandarínur, kitsch og glingur,“ segir Signý aðspurð hvort hún sé mikið jólabarn. Hún bætir við: „Hins vegar er fullkomnunarárátta og athygl- isbrestur ekki frábær samsetning og því eru jólin dálítið snúinn tími hjá mér. Mér finnst frekar stressandi að koma öllu heim og saman fyrir aðfangadag þó að það takist nú yfirleitt allt að lokum.“ Upplifir jólasveinana sem „zombies“ „Jólasveinarnir eru skítugir, hrekkj- óttir og bara frekar ógeðslegir í það heila en svo eru þeir líka eldgamlir og ættu að vera löngu dauðir. Að mínu mati eru þeir hálfgerðir „zombi-ar“. Ég ímynda mér þá allavega þannig og Pottasleikir er því hrikalegur „zombie“-sveinki en samt al- veg pínu sætur líka,“ segir Signý um hönnun sína og sína eigin upplifun á jóla- sveinunum. En hvaða jólasveinn er í uppáhaldi? „Stúfur og Kertasníkir voru mínir uppáhalds í æsku. Stúfur, hann er náttúrlega uppáhald allra barna, af því hann er lítill og ekki jafn hræðilegur og hinir. Ég hef hins vegar ekki hugmynd um af hverju Kertasníkir var líka í uppá- haldi, kannski af því að hann kom á að- fangadag og er ekki alveg jafn „krípí“ og hinir?“ Hönnun Signýjar er yfirleitt litrík og skondnar teikningar en hún segir burst- aða stálið hafa höfðað vel til sín. „Það var bara mjög gaman að vinna með stálið, mér finnst alltaf gaman að vinna með ný efni. Það er öðruvísi að teikna andlit en að skera það út,“ út- skýrir Signý og tekur fram að það hafi ver- ið henni mikill heiður að fá að taka þátt í verkefninu í ár. Á meðan Signý sá um hönnun óróans sá Snæbjörn Ragnars- son, sem er gjarnan kennd- ur við Skálmöld, um að túlka Pottaskefil með (ljóði) fyr- ir verkefnið. Signý segir samstarfið hafa gengið afar vel fyrir sig. „Við Snæbjörn þekkjumst ekki neitt en við vorum algjörlega sammála um hvernig ljóðið og útlit- ið á jólasveininum okkar ætti að vera. Snæbjörn er nátt- úrlega fenómen þegar kemur að textaskrifum og samstarfið gekk snurðulaust fyrir sig.“ Meðfylgjandi er ljóð Snæbjörns um Pottaskefil. Jólaóróinn Pottaskefill er „hrikalegur „zombie“- sveinki“ Signý Kolbeinsdóttir, yfirhönnuður og annar stofnenda hönnunarfyrirtækisins Tulipop, sá um að hanna ellefta óró- ann í Jólasveinaseríu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Úkoman er túlkun Signýjar á Pottaskefli í sandblásið stál. Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is Signý Kolbeinsdóttir sá um að túlka Pottaskefil í burstað stál fyrir Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. Ljósmynd/Saga Sig 12 Jólablað Morgunblaðsins Alsilkinátt- fatnaður Glæsilegar jólagjafir Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Við erum á ❄ Áttu þér uppáhaldsjólalag? „Uppáhaldsjólalagið mitt var alltaf „Litli trommu- leikarinn“ með Ragga Bjarna en hin síðari ár er það jólalagið hennar Ragnheiðar Gröndal, „Jólanótt“.“ Ferð þú á jólatónleika? „Já, hef farið á hina árlegu jólatónleika Fíladelfíu.“ Eftirminnilegustu jólin? „Ég var þriggja ára í Laug- arnesi, húsinu á hólnum neðst á Kleppsveginum þar sem Sigurður Ólafsson söngvari bjó ásamt fjölskyldu. Mín fjölskylda leigði þar á efri hæðinni á meðan for- eldrar mínir voru að byggja inni á Bugðulæk 11, framtíðarheimili okkar, en ég fékk í jólagjöf forláta Massey Ferguson-leikfangatraktor sem ég lék mér að öll jólin og það er greypt djúpt hið innra í sálu mína.“ Ferð þú í kirkju á jólunum? „Hef farið í kirkju öll undanfarin ár í hátíðarmessu ljóssins á aðfangadag, þá gefur manni kyrrð og ró í hjartað og minnir mann á þá miklu fórn sem Kristur Jesús gerði fyrir okkur mennina.“ Hvað borðar þú á aðfangadag? „Peking-önd að hætti popparans og H.C. And- ersen. Litla stúlkan með eldspýturnar horfði í logann á síðustu eldspýtunni og þá birtist henni mynd af jólaborði yfirstéttarinnar sem bar fram jólaöndina. Það var eitthvað sem snerti svo við mér þegar ég sá kvikmyndina sem byggð er á þessari merku sögu H.C. Andersen. Og góð áminning fyrir mann að vera þakklátur fyrir það sem við eigum og höfum á Ís- landi. Við eigum að horfa fram á við með jákvæðni og þakklæti fyrir þetta gósenland sem við eigum.“ Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? „Að koma lagi í fyrsta sæti á jólunum árið 1985.“ Hver er uppáhalds- jólahefð þín? „Jólabrúnsúp- an hennar mömmu, soðið upp á nautabein- um í þrjá daga til að fá kraftinn í súpuna sem er borin fram með harðsoðnu eggi og nýbökuðum rúnstykkjum, nammi namm!“ Jólin hans Herberts Þegar söngvarinn Herbert Guð- mundsson rifjar upp eftirminnilegustu jólin koma þau upp í hugann þegar hann var þriggja ára og bjó í Laugar- nesi. Það árið fékk hann leikfanga- traktor í jólagjöf og lék sér með hann öll þau jól. Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is Herbert Guðmunds- son Gleymir seint leikfangatraktornum Sannlega var piltur nefndur Pottasleikir, púar stóran njóla sem hann ákaft reykir. Við hann eru álfar, menn og vargar smeykir. Brýst hann inn og bælir þvottinn, blótar, nú skal finna pottinn. Nálægð hans er þung og þefill. Þetta er hann Pottaskefill. Trúlega var pjakkur nefndur Pottasleikir, plokka nef hans hanskalausir fingur bleikir. Afgangana hráa vill og aldrei steikir. Niðamyrkur, nærri dottinn, nálgast eldstæðið og pottinn. Þekur búkinn þreyttur refill. Þetta er hann Pottaskefill. Pottaskefill
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.