Morgunblaðið - 21.12.2016, Síða 38

Morgunblaðið - 21.12.2016, Síða 38
Ekta Wellington-nautalund, fyrir fjóra, eða 800 g nautalund salt og nýmalaður pipar 500 g smjördeig, helst útflatt 200 g sveppir 1 laukur 150 g skinka eða hráskinka 100 g smjör ½ dl vatn + 1 msk. kjötkraftur brauðmylsna (helst franskbrauð) 1 msk. söxuð steinselja Byrjið á því að saxa lauk, sveppi og skinku smátt og steikið vel í smjöri ásamt steinselju. Bætið vatni út á ásamt kjötkrafti og þykkið með brauðmylsnu. Kryddið nautalundina með flögusalti og nýmöluðum pipar og brúnið á pönnu rétt til að loka kjötinu. Fletjið smjördegið út í ca. ½ cm þykka köku. Smyrjið fyllingunni á deigið, leggið lundina á fyllinguna og lokið deiginu ut- an um allt saman. Þrýstið brúnum deigsins saman með gaffli, skreytið með afskurðinum og penslið deigið með þeyttu eggi. Bakið í 25 mín. í 150 °C heitum ofni. Mjög gott er að bera fram með bern- aise eða brúnni sósu, bökuðum kart- öflum og grænmeti. Viltu slá í gegn í eldhúsinu um jólin? Ævintýraþyrstir hamfarakokkar geta aldeilis slegið um sig í eld- húsinu um jólin ef þeir fara eftir þessari uppskrift sem er ættuð úr Kjöthöllinni. Kjötiðnaðarmennirnir sem þar starfa hafa áratuga reynslu af því að matreiða kjöt á sem bestan hátt og ef þú fylgir þessari uppskrift verður þú mögu- lega maður ársins á heimilinu! Marta María | martamaria@mbl.is Getty 38 Jólablað Morgunblaðsins Bérnaise-sósa fyrir letihauga 4 eggjarauður 400 g bráðið smjör 1-2 msk. bérnaise-kraftur 1 msk. ferskt fáfnisgras (estragon) 1 tsk. lífrænn kjötkraftur salt og pipar eftir smekk Setjið vatn í pott og sjóðið svo það sé tilbúið þegar sósan er hituð yfir vatnsbaði. Svo skulið þið setja eggjarauðurnar í hrærivélarskál og þeyta mjög vel. Gætið þess að hafa hlýtt í eldhúsinu og alls ekki gera þetta með opinn glugga. Þeytið eggjarauðurnar þangað til þær eru orðnar léttar og ljósar. Hellið smjöri saman við og gerið það varlega. Hafið hræri- vélina í gangi á meðan þetta er gert og þeytið mjög vel saman. Bætið bérnaise-kraft út í sósuna, fáfnisgrasi, kjötkrafti og saltið og piprið eftir smekk. Þegar sósan er klár er hún sett yfir vatnsbaðið og hrært í henni þangað til hún er borin fram. Hugsið vel um sósuna meðan á þessu stendur svo hún skilji sig ekki. Þú veist að þú ert komin/n í fullorðinna manna tölu þegar þú ert búin/n að læra að gera bérnaise-sósu frá grunni. Allir alvöru letihaugar nota hrærivél til að þeyta sósuna saman. Það er líka allt í lagi, þetta er gert svona á fínustu veitingastöðum og ekki kvartar fólk yfir því. Með hrærivél að að vopni og nóg af sjálfstrausti er þetta leikur einn. Ef þú ætlar að hafa bérnaise-sósu með jólasteikinni skaltu samt æfa þig áður en jólin koma. Bara svo þú verðir örugglega krýnd eða krýndur meistari jólaanna. Þessi sósa klikkar aldrei. ❄ ❄ 1 dl ólífuolía 150 g púðursykur eða hrásykur 1 egg 1 tsk. kanill 1 tsk. negull ½ tsk. matarsódi 250 g grófmalað spelt eða hveiti ½ dl mjólk eða AB-mjólk Þeytið ólífuolíuna og púður- sykurinn saman. Síðan er eggj- unum bætt út í og hrært vel. Þegar blandan er orðin létt, ljós og lekker er þurrefnunum blandað varlega saman við ásamt mjólk eða AB- mjólk. Setjið kökuna í formkökuform og bakið við 180 gráður í 50 mín- útur. Kakan sem kryddar tilveruna Kryddkaka er ein af mínum uppá- halds og þarf ég að gæta vel að því að bjóða með mér þegar ég baka eina slíka því ég gæti hæglega torg- að heilli köku ein og óstudd. Að baka kryddköku fyrir jólin og maula á milli hátíðarétta gerir einhvern veginn allt svolítið safaríkara og betra. Má ekki örugglega allt á jólunum? Marta María | martamaria@mbl.is Ljúffeng kryddkaka.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.