Morgunblaðið - 21.12.2016, Page 50

Morgunblaðið - 21.12.2016, Page 50
50 Jólablað Morgunblaðsins Húðvörur úr lífrænt ræktuðum jurtum sem veita vellíðan og gaman er að gefa. Útsölustaðir Weleda eru: apótek og heilsuverslanir um allt land, heimkaup.is Lesið meira um lífrænar vörur á weleda.is Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/weledaiceland Weleda jólagjafir Body lotion og handáburður úr möndluolíu, mildur ilmur Andlitskrem og sturtusápa fyrir herra, notalegur ilmur jólamatinn,“ segir hún og hlær. Svartbaunabuffið og hnetusteikin sem Valentína eldaði fyrir Jólablaðið sanna að grænmetisfæði er alls ekki síðra en hefðbundinn jólamatur. Meira að segja vegan béarnaise- sósan fær bragðlaukana til að hoppa af kæti. „Ég er er mikill bernaise-sósu aðdáandi en þar sem helsta uppi- staðan í béarnaise er egg og smjör er hún eins lítið vegan og hugsast getur! Það gerði hugmyndavinnuna enn meira spennandi. Ég gerði nokkrar tilraunir og mér fannst þessi uppskrift koma best; út það er að segja að nota vegan-majónes og hita saman bragðefnin. Það má líka nota kasjúhnetur í staðinn fyrir majónesið. En þá þarf að láta þær liggja í bleyti í nokkrar klukku- stundir og mauka þær með vatni í blandara. Mér fannst sósan verða betri við það að standa í kæli yfir nótt. Það kom mér skemmtilega á óvart að mér fannst sósan jafn góð eftir nokkra daga í kæli.“ Svartbaunabuffið og hnetusteik- ina er hægt að búa til og eiga í frysti. Valentína segir aðeins þurfa að gæta þess að taka það úr frysti deginum áður en það er notað og hita í ofni. „Hnetusteikin frá Móður náttúru eins og ég nota hana í uppskriftinni þarf að vera vel þiðin áður en buffið er mótað úr henni og steikt. Steikt buffið má geyma í kæli, ef fólk vill spara sér handtökin og gera þetta deginum áður þá þarf aðeins að hita bufffið í um 10 mínútur áður en það er borið fram,“ segir hún. Svartbaunabuff olía til steikingar 1 rauðlaukur, sneiddur 1 hvítlauksrif, gróft saxað ½ rauð paprika, sneidd 30 g sellerí, sneitt 60 g rifin sæt kartafla 3 döðlur, saxaðar 1 tsk. piparblanda 1 msk. provencal-kryddblanda frá Pottagöldrum 2 msk. sojasósa ½ tsk. salt 2 msk. næringarger 100 g Oumph-sojakjöt 1 dós svartar baunir eða 220 g soðn- ar 100 g soðið bankabygg 130 g soðnar kartöflur 2 msk. næringarger 50-100 g brauðrasp/haframjöl 100 g grófmalaðar möndlur til að velta buffinu upp úr. Steikið rauðlauk, hvítlauk, papr- iku og sellerí í potti þar til það er að- eins farið að brúnast, bætið út í sætri kartöflu og látið blönduna mýkjast aðeins. Setjið döðlur, pipar- blöndu, provencal-krydd, sojasósu og salt út í pottinn og hrærið vel saman. Látið þetta kólna aðeins og setjið í matvinnsluvél ásamt restinni af hrá- efninu nema brauðraspi og maukið allt saman – en ekki of fínt þó. Hrærið út í brauðraspi eftir þörf- um. Látið farsið standa í ísskáp í ca 1 klst. (eða lengur) Mótið 6 stór buff og passið að hafa þau frekar þétt. Veltið upp úr gróf- möluðum möndlum og steikið buffið upp úr vel heitri olíu ca 2 mín. á hvorri hlið. Látið buffin kólna og pakkið þeim með smjörpappír á milli buffa í gott box ef það á að frysta þau. Ef þau eru frosin þurfa buffin 15 mín. í ofni v 160 °C. Vegan béarnaise-sósa 2 msk. matarolía 3 skalottlaukar, fint skornir 2 dl kókosmjólk ½ tsk. túrmerik ½ msk. estragon ½ tsk. svartur pipar 1 msk. hrásykur 2 msk. sítróna 2 msk. fersk steinselja 5 msk. béarnaise-kraftur 6 msk. vegan-majónes salt Mýkið skalottlauk í potti, setjið út í kókosmjólk og látið suðuna koma upp. Setjið út í pottinn allt hráefnið nema majónesið og hrærið vel sam- an. Látið blönduna kólna aðeins og hrærið saman vegan-majónesi. Smakkið sósuna til með salti og sítrónu. Geymist vel í lokuðu boxi í ísskáp í 5-7 daga. Það má bera þessa sósu fram kalda. Rauðkál 800 g rauðkál, fínt skorið í strimla 1 meðalstór rauðlaukur, sneiddur 100 g rauðrófur, skornar í litla bita 1 grænt epli, afhýtt og rifið Morgunblaðið/Árni Sæberg Sveppasúpa með aspas, brauðten- ingum og truffluolíu. Svartbaunabuff með vegan bernaise-sósu, rauðkáli og grænu grænmeti. „Til að standa sig 100% í stykkinu borgar sig að lesa vel á allar umbúðir. Hefðbundinn sósujafnari er til dæmis ekki vegan því í honum er mjólkur- sykur. Í einni af sósunum sem ég gef hér uppskrift að eru vínber en það má gjarnan skipta þeim út fyrir sveppi ef fólki finnst það henta betur,“ segir hún. ❄ ❄ SJÁ SÍÐU 52
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.