Morgunblaðið - 21.12.2016, Side 90

Morgunblaðið - 21.12.2016, Side 90
90 Jólablað Morgunblaðsins 1 Skerum niður ávexti í staðinn fyrir að neyta sætinda í óhófi Það er mikið úrval af góðum ávöxtum um jólin eins og t.d. safaríkum mand- arínum og jólaeplunum góðu. Ávextir eru nammi náttúrunnar en innihalda bara 10% sykur en ekki 100% eins og viðbættur sykur er. Auk þess eru ávextir stútfullir af vítamínum, steinefnum og trefjum. Leyfum börnunum á heimilinu að skera niður ávextina og þess vegna að búa til skemmti- legar fígúrúr þeim. 2 Borðum í meðvitund Það er endalaust mikið af góðu sjón- varps- og afþreyingarefni í boði um jólin. Gætið að því að borða ekki mikið fyrir framan sjónvarp, tölvu, í bílnum eða annars staðar þar sem maður er að gera allt annað en að einbeita sér að því að borða. Meðvitund- arlaust át veldur því að maður borðar mjög mikið og oft mjög sykurmiklar matvörur. 3 Borðum næringarríkan morgunverð – ALLA daga! Þó að það séu jólin er mikilvægt að næra sig vel á á mikilvæg- ustu máltíð dagsins sem er morgunmaturinn. Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem borða morgunmat, borða síður óhollustu eins og sykurmiklar matvörur er líður á daginn og eru frekar í kjörþyngd. 4 Tyggjum matinn og njótum hans Á jólunum erum við að borða einn allra bragðbesta mat sem við getum borðað. Því er um að gera að njóta matarins líka og tyggja vel (a.m.k. 20 sinnum). Ekki bara „gúffa“ í sig fullum disk af öllum kræsingunum og háma það í sig á nokkrum mín- útum. 5 Búum til eigið jólakonfekt Það eru mjög margir góðir kostir við það að búa til eigið konfekt. Oft er heimagert konfekt mun heilsusamlegra en fjöldaframleitt erlent Macintosh, t.d. fer minna af auka- efnum í eigið konfekt og við getum notað meira af dökku súkkulaði (+70%) sem er stútfullt af andoxunarefnum. Enn einn góður kostur við heimagert jólakonfekt er að við leggjum mikla vinnu og natni í það og förum því oft spar- lega í að neyta þess. 6 Munum að brosa og gleðjast Mataræði okkar stjórnast mikið af stjórnstöðinni/ hausnum. Ef við erum hamingjusöm, með sjálfstraustið í lagi og okkur líður vel eru minni líkur á því að við borðum yfir okkar á jólahátíðinni. Í stað þess að drekkja sér í sætindum og góðgæti ætti maður að horfa á góða grín- mynd og/eða hitta skemmtilegt fólk sem fær mann til að skellihlæja. Einnig er góð regla að heilsa fólki á förnum vegi með brosi, það kostar ekkert og getur verið sælgæti fyrir sál þína og þess sem tekur á móti því. 7 Sleppum sætuefnum og borðum frekar heiðarlegan sykur hóflega Það er komið alltof mikið úrval af sætu- efnum og við erum að troða sætuefnum í mikið af vörum sem við kaupum og bökum. Þessi neysla sætuefna er orðin óhófleg eins og sykurneyslan hjá mörgum. Í stað þess að baka 10 sortir af „hollari“ smákökum og neyta þeirra á hverjum degi í jóla- mánuðnum, neyttu frekar heiðarlegar, dísætrar ömmmu- köku sjaldnar. 8 Jóla-hreyfi-dagatalið Í stað þess að opna einn bjór eða borða sælgætis- mola á hverjum degi frá 1.-24. desember er mun heilsusamlegra að taka armbeygju- og hnébeygju- dagatalið. Í því tekur þú eina armbeygju og eina hnébeygju 1. desember, tvær af hvoru 2. des- ember og svo koll af kolli þar til þú endar í 24 endurtekningum af hvoru á aðfangadag. Þú verður því útpumpaður og í fanta- formi á aðfangadag. 9 Mokum snjó í nær- umhverfi okkar Í kringum jólin er jörðin oft þakin snjó og því um að gera að vígbúast góðri skóflu og moka snjóinn eins og enginn sé morgundagurinn. Jólin er kær- leikshátíð og um að gera að láta góðverkin tala og mokum líka tröppur og innkeyrslu nágrann- ans, sérstaklega ef þið teljið að heilsa eða aldur leyfi það ekki. Setjum líka skófuna í bílinn og mokum bíla sem fest- ast eða mokum bílaplanið í vinnunni. Það besta úr öllum þessum mokstri er að þetta er frábær líkamsrækt sem reynir á flesta vöðva líkamans. 10 Förum út að leika – með börnunum eða okkur sjálfum Oft þegar við eldumst gleymum við lífsglaða, áhyggju- lausa og káta barninu í okkur. Það er um að gera að nýta jólafríið í að leika sér einn eða með börnum sínum, barna- börnum og frændsystkinum. Skelltu þér í kuldagallann eða regngallann og farðu í snjókast, eltingarleik, renndu þér á snjóþotu, búðu til snjókall, farðu í leiki og slökktu á þessum fullorðna einstakling sem þú telur þig vera. „Við erum bara eins gömul og okkur líður.“ Á jólum er öll fjölskyldan oft saman komin og er það nú ekki oft sem tími gefst til að öll fjölskyldan hreyfi sig sam- an. Að loknu miklu matarboði er fátt betra fyrir sál og lík- ama að fara út með allri fjölskyldu á skíði, í göngutúr, fjall- göngu eða hvað sem ykkur í dettur í hug. Látum veðráttuna á Íslandi ekki stoppa okkur að njóta samvista með fjölskyldunni. Klæðum okkur eftir veðri og brosum bara enn breiðar því verra sem veðrið er, eins og máltækið segir „Þá er ekki til vont veður bara illa klæddur maður“. Áhugasamir geta nálgast fleiri góð ráð frá Geir Gunnari undir Facebook-síðunum Heilsugeirinn og Holl matarinn- kaup. Góðar reglur að heilsusamlegri jólahátíð í boði Geirs Gunnars Getty images J ól og áramót eru rúmlega vika en undirbúningurinn er oft margir mánuðir og margir eru byrjaðir að huga að jólunum í október. Því er um að gera að vera meðvitaður um heilsu sína á þessum tíma því allar búðir og umhverfi okkar eru löðrandi í jólakræsingum s.s. jó- laöli og konfekti. Gott máltæki segir „Það skiptir ekki máli hvað við borðum milli jóla og nýárs, heldur milli nýárs og jóla“, þ.e.a.s. allar hinar vikurnar 51. En þegar verslunarmenn eru farnir að hefja jólaundirbún- inginn mörgum mánuðum fyrir jól þá skiptir mjög miklu máli að vera meðvit- aður um heilsu sína á þessum tíma,“ útskýrir Geir Gunnar, sem lumar á nokkrum góðum heilsureglum og leiðbeiningum sem gott er að hafa í huga í jólaundirbúningum og yfir jólahátíðana. „Ef þeim er fylgt þá munið þið ekki bara koma heilsusamlegri út úr jólnum heldur verða jólin og undirbúning- urinn mun skemmtilegri.“ Hugað að heilsunni yfir hátíðarnar Vel hægt að njóta jólanna án þess að leggjast í sukkið „Nú eru jólin að nálgast með öllu óhófinu í jólaboð- um, jólahlaðborðum, áfengisdrykkju, smákökuáti og hreyfingarleysi. En þetta þarf ekki að vera svona og við getum gert margt til að koma í veg fyrir að við þyngjumst yfir jólin. Það er vel hægt að njóta jólanna alveg í botn þótt maður gangi ekki fram af sér í mat, drykk og hreyfingarleysi,“ segir næringar- fræðingurinn Geir Gunnar Markússon. Guðný Hrönn | gudnyhronn@mbl.is Næringarfræðingurinn Geir Gunnar lumar á ýmsum góðum ráðum fyrir þá sem vilja halda sig á beinu brautinni yfir hátíðarnar. Morgunblaðið/Eggert Jólatilboðsverð kr. 103.116,- Með fylgir Vitamix sleif, drykkjarmál og svunta Fullt verð kr. 137.489,- Vitamix TNC er stórkostlegur. Mylur alla ávexti, grænmeti, klaka og nánast hvað sem er. Býr til heita súpu og ís. Til í fjórum litum, svörtum, hvítum rauðum og stáli. Besti vinurinn í eldhúsinu Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.