Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1984, Side 46
Ritkynning
Chronic Problem Wounds
er bók sem var gefin út 1983 hjá Little, Brown and
Company, Boston. Útgáfu önnuðust Ross Rudolph
M.D. og Joel M. Noe M. D., en fjöldi sérfræðinga
lögðu til efnið. Bókin er 250 blaðsíður, vönduð og
með fjölda Ijósmynda.
Eins og bókarheitið segir til um fjallar hún um all-
flestar tegundir sára sem erfitt er að eiga við. Kaflar
eru um legusár, fótasár, sykursýkissár, geislasár,
lyfjabrunasár (t. d. eftir cytotoxisk lyf) og skurðsár,
svo eitthvað sé nefnt. í hverjum kafla er skýrt frá
hvernig og hvers vegna sárið myndast og meðferð og
meðhöndlun í hverju tilfelli skýrð og rökstudd.
Fyrstu kaflar bókarinnar fjalla m. a. um hvernig sár
grær eðlilega, um val og meðferð umbúða og lyfja,
hvernig haga skal sáraskiptingum, hvaðan og hvernig
helst bakteríur berast í sár og hvernig heildarupp-
bygging meðferðar er best. Einfaldar teiknimyndir
eru til skýringar textanum. Einnig er ágætur kafli um
næringu og gildi hennar hjá þessum sjúklingum,
annar um andlega erfiðleika hjá sumum þeirra og
síðast stuttur kafli er sýnir fram á þann mikla kostnað
sem fylgir þessum kvillum.
Bókin er mjög skýr og greinargóð og ég tel eindregið
að hún eigi erindi á flestar deildir og hvet hjúkrunar-
fræðinga til að kynna sér hana.
Sigríður K. Lister
hjúkrunarfræðingur
Nutrition and Diet Therapy
Höfundur: Velma L. Kerschner, R.N., B.S.
Gefin út í Bandaríkjunum 1983.
Bókin skiptist í tvo hluta. Fyrri hlutinn, sem skiptist í
12 kafla, fjallar um næringarefnafræði. Þ. e. hún
tekur fyrir hlutverk orkuefna og bætiefna í líkaman-
um. Einnig er þar fjallað um þörf hinna ýmsu aldurs-
hópa á orkuefnum og bætiefnum, og hvernig haga
skuli mataræði til þess að fullnægja ráðlagðri dags-
þörf fyrir þessi efni. í þessum hluta er rætt um
nokkrar algengar matareitranir og aðferðir við
geymslu á ýmsum matvælum.
í seinni hluta bókarinnar er fjallað um sjúkrafæði.
Skýrt er hlutverk fæðunnar sem eins þáttar í meðferð
sjúkdóma. Bent er á hvaða fæðutegundir fólk getur
valið sér, t. d. í sambandi við lifrarsjúkdóma, hjarta-
sjúkdóma, meltingarfærasjúkdóma, taugasjúkdóma,
ofnæmissjúkdóma og krabbamein. Einn kaflinn er
um samspil lyfjagjafar og næringar. Bent er á hvernig
lyf geta haft áhrif á frásog mismunandi næringarefna,
sem aftur kallar á aukna þörf fyrir viðkomandi nær-
ingarefni. Þannig er mögulegt að draga úr líkum á
því, að sjúklingur þjáist af næringarskorti af völdum
Iyfja. Fengist er við vandamál þeirra, sem eru of
feitir, og einnig þeirra, sem eru of léttir. Rætt er um
hugsanlegar orsakir og bent er á mögulegar leiðir til
úrbóta.
A eftir hverjum kafla eru spurningar, sem lesendum
er ætlað að nota til þess að rifja upp efnið. í lok hvors
hluta eru krossaspurningar ætlaðar í sama tilgangi.
Aftast í bókinni eru skiptilistar fyrir sykursýki, nær-
ingarefnatafla, fæðislistar fyrir þá sem þurfa að tak-
marka fenylalanin í fæðinu (PKU) og tafla yfir ráð-
lagða dagsskammta, t. d. fyrir ungbörn, fullorðna og
fyrir konur með börn á brjósti.
Gunnar Kristinsson
matvælafræðingur
40
HJÚKRUN '/m - 60. árgangur