Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1997, Page 9

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1997, Page 9
Auðbjörg Geirsdóttir, Fjóla V. Stefánsdóttir, Hulda Rafnsdóttir, Ingibjörg G. Júlíusdóttir og Þorbjörg Á. Ámadóttir Höfundar greinarinnar útskrifuðust með BSc. prófí lijúkrunarfrœðifrá HA vorið !1)()7. Greinin byggist á lokuverkfni þeirra með suma nafni. í þessari grein verða niðurstöður rannsóknarinnar „Stoð í erfiðri stöðu“ kynntar. Þátttakendur vorufimm mæður fatlaðra barna sem allar eiga það sameiginlegt að hafa átt mikil samskipti við heilbrigðisstarfsfólk í tengslum við börnin. Rannsóknarspurningin var: Hver er reynsla foreldra 5-12 ára barna með fiótlun af sam- skiptum við heilbrigðisstarfsfólk? A heildina litið var reynsla þeirra góð. Það komfram að mœðrunum þótti mikilvægt aðfá góðar upplýsingar, þekking þeirra sem foreldra vœri virt og heilbrigðisstarfsfólk hlustaði á þœr og vœri vakandi fyrir andlegri líðan þeirra. I meginatriðum voru rannsókn- arniðurstöður í samrœmi viðfyrri skrif og rannsóknir um við- fangsefnið. Oft vakna áhyggjur hjá foreldrum og öðrum aðstand- endum vegna |tess að þroskaferill barns er annar en þeir væntu. Foreldrar sem búa við þannig áhyggjur eiga fullan rétt á að hlustað sé á Jiá og athugað hvort grunur þeirra sé á rökum reistur (Albrecht, 1995). Að eignast barn með fötlun er flestum foreldrum mikið áfall (Able-Boone og Stevens, 1994; Þórdís Þormóðsdóttir, 1995). Lífið verður aldrei J)að sama á eftir, foreldrarnir hafa fengið nýtt og óvænt hlutverk og verkefnin sem Jjví fylgja eru óþrjótandi (Elísabet Þorgeirsdóttir, 1989). Foreldrar verða fyrir ál’alli þegar fötlnn greinist hjá barni þeirra vegna J)ess að J)eir eru að missa lieil- brigða barnið sem þeir væntu. (Betz, Hunsberger og Wright, 1994; Bond, Phillips og Rolhns, 1994; Mc- Clowry, 1993). Mikilvægt er að heilbrigðisstarfsfólk þekki og sýni skilning á slíkri sorg sem getur varað allt hfið. Skilji J)á afneitun, reiði, vonbrigði og að sama skapi ánægju og gleði sem fylgir J)ví að elska og ann- ast barn með fötlun (Tracy, 1994; Þórdís Þormóðs- dóttir, 1995). Ennfremur að missa ekki sjónar af barn- inu, en sjá aðeins fötlunina (Sloper og Tnrner, 1991). Reynsla foreldra af heilbrigðiskerfinu hefur lítið verið. rannsökuð (Bond og fl., 1994). I þeim rann- sóknum sem gerðar hafa verið kemur fram að tengsl- um og samskiptum er á margan hátt ábótavant (Kane og Snowdon, 1995; Settle, 1992; Sloper og Turner, 1992). Tilgangur rannsóknarinnar var að öðlast innsýn í reynslu foreldra barna með fötlun af samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk. Þetta er kannað með J)að fyrir augum að auka skilning og þekkingu heilbrigðis- starfsfólks á Jæssu sviði og stuðla |)annig að bættum samskiptum og betri heilbrigðisþjónustu. Rannsóknaraðferð Notuð var aðferð sem kallast reynsluhundin rann- sóknaraðferð (phenomenology). Þátttakendur voru fengnir með tilnefningarúrtaki og eiga J)að sameigin- legt að hafa átt mikil samskipti við heilbrigðisstarfs- fólk vegna barna sinna. Börnin eiga við mismunandi fötlun að stríða. Þátttakendur eru á aldrinum 28 til 49 ára og eiga ílestir önnur börn. Upplýsingum var safnað með tveimur viðtölum við hvern þátttakanda. TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 5.TBL. 73.ÁRG. 1997 257 Teikning: Jannick Kjeldal, 10 ára.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.