Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1997, Síða 24

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1997, Síða 24
Hjúkrunarfrœðingarnir Hulda Gunnlaugsdóttir og Asdís Guðmundsdóttir, starfa báðar á Ullevál- sjúkrahúsinu í Osló. Þœr voru fengnar til að segja lesendum Tímarits hjúkrunarfrœðinga frá reynslu sinni af dvöl sinni þar í borg. A Ulleválsjúkrahúsinu eru 6200 starfsmenn og 1600 hjúkrunarfrœðingar meðhöndla þar 300.000 dagdeildar- og göngudeildarsjúklinga og 40.000 inn- lagnarsjúklinga árlega. Sjúkrahúsið þjónar 850.000 manna svœði. Starfsemi sjúkrahússins er skipt í 11 svið og er eitm sviðsstjóri yfir hverju sviði. Um þessar mundir er, verið að endurskipuleggja sjúkrahúsþjónustu í Osló þatinig að stóru sjúkrahúsin, Akers og Ullevál, skipta með sér sérgreinum. Vildi verða samkeppnisfær Hulda Gunnlaugsdóttir flutti til Noregs árið 1989 til framhaldsnáms í stjórnun við Institut for sykepleje- vitenskab, sem er hluti af læknadeild Oslóarháskóla. Hún starfar nú sem aðstoðarframkvæmdastjóri yfir framkvæmdum á barna- og kvennadeild í kjölfar sérhæfingar sjúkrahúsanna tveggja í Ósló. Hulda lauk hjúkrunarnámi frá HSÍ 1981 og hafði áður en hún fór út lokið stjórnunarnámi á vegum HSI vorið 1986 og verið hjúkrunarforstjóri á Kristnesi í 5 ár. Hún liafði einnig starfað tímahundið á FSA og gjörgæsludeild Borgarspítalans. Til að verða samkeppnisfær um stöður við stóru sjúkrahús- in í Reykjavík taldi hún sig verða að fara í frekara nám í stjórnun. „Fleiri og fleiri hjúkrunarfræðingar luku BSc. prófi og meistaraprófi. Maður verður að haí'a bæði bóklega þekkingu og reynslu til að vera samkeppnisfærari,“ segir hún. Pað var hvatinn að því að hún flutti út ásamt fyrrverandi eiginmanni sínum og harni. Hún reyndi að undirbúa sig sem hest t.d. með því að taka heimspeki við Menntaskólann á Akureyri. I Noregi reyndust vera ýmis ljón á veginum. „Það er erfitt að fá metið nám erlendis frá til framhalds- náms í Noregi,“ segir Hulda sem lauk samt þriggja ára námi til embættisprófs í hjúkrun, sem er stig á milli meistaragráðu og doktorsgráðu, á tilskildum tíma. Stuttu eftir að hún kom út liyrjaði hún að vinna á barnaskurðdeild og gjörgæslu í afleysinga- stöðu á Ulleválsjúkrahúsinu. Iiún tók þar síðan aukavaktir á meðan hún var í náminu. A meðan hún var að skrifa lokaritgerðina.bauðst henni hjúkrunar- framkvæmdastjórastaða á harnadeildinni. Peirri stöðu gegndi hún í 4V2 ár eða þar til hún tók við núverandi stöðu. „Stjórnvöld tóku um það ákvörð- un, fyrst í þinginu og svo í borgarstjórn, að færa sérsvið á milli sjúkrahúsanna þannig að sömu sérvið séu ekki á báðum stöðum. Á Ulleval verður kvenna- og barnadeild en brjóstholsskurðdeild og þvagfæra- skurðdeild verða á Akers. Eftir breytingarnar verður barnadeildin í nýrri byggingu og bætt verður við kvennadeildarhúsnæðið. Þegar ljóst var að fram- kvæmdarstjórnin var tveggja manna starf, og að framkvæmdastjórinn, sem er læknir, þyrfti aðstoð var því skotið að mér að sækja um. Eg var meðal 7 umsækjenda og fékk stöðuna,“ segir Hulda. Starf hennar felst meðal annars í að samhæfa hugmyndir starfsfólksins, arkitektanna og verktakanna við hyggingarframkvæmdirnar. „Eg tek í raun þátt í að hyggja sjiikrahús frá grunni, læri að húa til sjúkra- 272 TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 5.TBL.73.ÁRG. 1997

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.