Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Qupperneq 20

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Qupperneq 20
Kristín: „Ég hef miklar áhyggjur af hjúkruninni þegar stofnanaþjónusta verður minni og fólk er að flytjast heim, fólk er inni á sjúkrahúsi vegna þess að það þarf hjúkrun. Hver ætlar að taka þessa hjúkrun? Það er heimilið og fjölskyldan sem mun þurfa að bera þessa hjúkrun og þarna finnst mér ábyrgð okkar vera alveg gífurlega mikil að hafa afgerandi áhrif á stefnumörkun varðandi þá þjónustu sem fjölskyldur munu þurfa að hljóta.“ auðvelt uppdráttar í nútímanum og ég óttast um þessi viðhorf í framtíðinni. Ég tel það vera mjög margt í okkar samfélagi núna sem gerir það að verkum að það er erfitt fyrir okkur að láta þessa rödd hljóma sterkt. Ásta: Ég tel grundvallarviðhorfin það sterk að þau muni lifa af. Hjúkrunarfræðingar eru með það alveg á hreinu hvert þeirra hlutverk er. Þeir geta kannski ekki skilgreint verkin sín en þeir geta skilgreint hlutverk sitt. Ég tel að okkar hugmyndafræði muni lifa af. Hún er innbyggð í okkur sem gerir okkur megnug að vera forystuafl í ákveðnum breytingum innan heilbrigðiskerfisins. Sú hugs- un, sem er okkur töm, þ.e. að vinna með fólki, er einnig orðinn hluti af nýjum stjórnunarstíl sem er verið að taka upp um allan heim. Valgerður: Ef við reynum að beina sjónum okkar meira að því sem við sögðum í upphafi, á framtíðina og það hvað hjúkrunarfræðingar geta gert til að stuðla að betri heilsu almennings, hvað geta hjúkrunarfræðingar þá gert í því sambandi? Herdís: Ég held við ættum að fara að einbeita okkur að framtíðarsýninni. Það er t.d. skortur á hjúkrunarfræð- ingum til starfa og það er hægt að nýta aðrar stéttir en þá ávallt með grundvallarhugmyndir hjúkrunarfræðinga í huga. Ég held líka að það megi nýta mun betur menntun hjúkrunarfræðinga. Og rödd hjúkrunarfræðinga, sem Kristín segir að sé farin að heyrast meira í samstarfi við aðrar stéttir, það er ekki bara það að hún heyrist meira, það er líka þessi vitund hjúkrunarfræðinganna sem vaknar á því að þeir hafi sterka rödd þegar þeir koma í þverfaglegt samstarf með öðru fólki. Ég held, þegar þú 100 segir, Ragnheiður, að það sé hætt við að grundvallarvið- horf hjúkrunar glatist á þessari tækniöld, ég held miklu frekar að við eigum að taka vopnin í okkar hendur og byggja upp framtíð þar sem þessi rödd er undirtónninn og hefur hljómgrunn. í framtíðinni mun þjónustan færast inn á heimilin, við hjúkrunarfræðingar eigum að styrkja okkur mjög á vettvangi samfélagshjúkrunar. Ragnheiður: Nokkur orð svona bara til að vera áfram ögrandi í umræðunum. Til þess að láta þessa rödd heyr- ast verðum við að finna skýrar fyrir þeim hópi sem mun tala á næstu árum. Hvar eru ungu hjúkrunarfræðingarnir? Hvar eru þeir andspænis félaginu? Hvar eru þeir varðandi samfélagsþróun? Hvar heyrast þeirra sjónarmið? Þegar við sem hér sitjum vorum í námi og að útskrifast þá létum við okkur varða ailt sem gerðist í samfélaginu og tengdist heilbrigði, það var í okkar huga hjúkrun og kom okkur við. Við vorum alls staðar. Það er stærsta áhyggjuefni mitt í dag að ég sé ekki þennan hóp. Herdís: Virkjum unga hjúkrunarfræðinga. Vilborg: Virkjum við unga hjúkrunarfræðinga? Kannski höfum við ekki alveg hleypt þeim að? Við sem höfum verið í þessari umræðu undanfarin 10 ár eða svo höfum kannski ekki hugað að því að við þurfum að taka meiri breidd inn í umræðuna og rödd allra þarf að heyrast. En við ættum kannski að byrja að ræða hérna, frammi fyrir hverju stönd- um við á næstunni og hvert er hlutverk hjúkrunarfræðinga í þeim breytingum sem fram undan eru? Hjúkrun spannar svo vítt svið. Ég held að það komi í hlut hjúkrunarfræðinga að leiða einstaklingana sjálfa í gegnum þeirra ferli, taka fólkið sjálft með inn í þessa umræðu, vera með skjólstæð- ingunum sjálfum. Þar hafa hjúkrunarfræðingar forskot á aðrar stéttir, það er engin stétt sem kemst eins nærri einstaklingum og hjúkrunarfræðingar. Það er varla til sú stétt í samfélaginu sem getur farið, án þess að hafa í raun sérstakt erindi, inn á hvaða heimili sem er í landinu og sagt: Ég er heilsugæsluhjúkrunarfræðingurinn þinn, ég ætla að koma og huga að því hvernig ykkur líður hér. Það þurfa ekki einu sinni að vera veikindi á heimilinu. Og að hjálpa fólki að skilja sína stöðu, ég held að samfélagið verði fióknara á næstu áratugum, hjá ungu fólki, hjá ýms- um fjölskyldum, og við verðum með fleiri aldraða. Hjúkr- unarfræðingar hafa alls staðar verið í lykilstöðu að reyna að hjálpa fólki. Þess vegna skiptir miklu máli að velta fyrir sér hvernig við getum aukið heilbrigði? Við getum það helst með því að sinna grundvallarþáttum hjúkrunar. Við þurfum að hjálpa fólki að læra að taka ábyrgð á sjálfu sér og hjálpa fólki að takast á við þann vanda sem það stendur sjálft frammi fyrir. Við verðum í framtíðinni með fleiri fatlaða, við verðum með fleiri sem eru haldnir lang- vinnum sjúkdómum og við ætlum ekki að gera þá alla að heilbrigðisvandamálunn. Við ætlum að styrkja fjölskyldur í að geta ráðið við þau verkefni sjálfar. Þar eru hjúkrunar- fræðingar í hvað sterkastri stöðu. Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 77. árg. 2001
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.