Ráðunautafundur - 15.02.1988, Page 15
-5-
aö sú kenning sé ein af orsökum þeirra vandamála sem landbúnaðurinn á nú viö aö
etja. Þetta var ekki rekstrarfræðileg kenning. Hún mótaöist af því að landbúnaöur
væri lífsform frekar en atvinnuvegur. Því miöur hafa íslenskir bændur ekki lengur
efni á svona lúksus. Landbúnaöurinn " verður nú að veröa alvöruatvinnuvegur sem
stenst samkeppni viö aöra atvinnuvegi í landinu og viö landbúnað annarra landa.
Sem nútímaatvinnuvegur veröur landbúnaöurinn aö sérhæfa sig. Samdráttur
sauöfjárræktar í mjólkurframleiöslusveitum hefur sjálfsagt lækkaö tekjur bænda þar
sem aftur hefur sín áhrif í þjónustubæjunum. En þetta getur veriö bærilegt, ekki síst
ef ýmis önnu starfsemi getur þróast í þessum sveitum. Því er þaö, aö þegar horft er á
hinn mikla samdrátt sauðfjárræktarinnar kemur manni fyrst í hug áhrif samdráttarins í
sveitum þar sem hún ar aðalatvinnuvegurinn. Þegar viö samdráttinn bætist nauösyn
þess að sauöfjárræktin sem atvinnuvegur geti tryggt þeim sem hana stunda lífskjör
sambærileg viö lífskjör þeirra sem stunda aöra atvinnu og sú nauösyn aö afurðir
sauðfjárræktarinnar standist verösamkeppni, t.d. viö aðrar tegundir kjöts en
lambakjöt, og þaö í náinni framtíð án þess aö ríkisvaldið breyti veröhlutföllum, vex
vandinn enn. Ekki fæ ég annað séö en aö þessar kröfur leiði til þess aö fjárbúum
fækki stórlega jafnframt því sem þau stækki og aö vinnslustöðvum sauöfjárafuröa
veröi einnig aö fækka mjög mikiö.
Ákveönir landshlutar og héruö eru háöari sauðfjárrækt en önnur. í mörgum þessara
sveita getur legiö viö landauðn verði ekki að gáö. Hér ætla ég á fundinum aö draga
fram talnalegar upplýsingar um ákveöin svæöi og fjalla sérstaklega um vandamál
þeirra. Fyrst mun ég taka fyrir svæði sem nær yfir Dalasýslu, Austur Barðastrandar-
sýslu, Inndjúp og Strandasýslu, samhangandi svæöi, og svo Norð-austurland og
kanske kem ég víöar við.
Það eru mörg ár síðan við í Byggöadeild Framkvæmdastofnunar ríkisins og síöar í
Byggðastofnun gerðum okkur grein fyrir aö meira þarf til en venjulegan landbúnað
til aö bjarga sveitunum á íslandi. Við geröumst snemma talsmenn verkaskiptingar og
sérhæfingar í hefðbundnum landbúnaöi og svæöaskiptingar eftir búgreinum. Eg tók
einu sinni sæti í stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Þegar ég kom á minn fyrsta
fund þar lá á fundarborðinu allmikil skýrsla, sláturhúsaáætlun. Samkvæmt þenni átti
aö byggja fjölda nýtískulegra sláturhúsa til viöbótar þeim sem fyrir voru. Ég spuröi
meðstjórnarmenn mína hvaö þeir héldu aö bændur mundu fá fyrir kjötkílóið ef þessi
ósköp gerðust. Þetta var fyrir réttum áratug. Sem betur fer varö lítið úr
framkvæmdum. Viö Byggöadeildarmenn fórum fljótlega aö ræöa og skoöa þaö sem
viö kölluðum mótun dreifbýlisstefnu sem|er jekkijþaöísama og landbúnaöarstefna. Við
fórum snemma aö vinna aö iðnþróun í sveitum og við gerðum meira aö segja áætlun
um slíka iönþróun sem strandaöi á borðum tveggja ráöherra. Því miður varö árangur
ekki eins og erfiðið þótt nokkur iönfyrirtæki hafi komist á legg sem sum hver starfa
enn. í Byggðastofnun höfum viö unniö mikið meö landbúnaðarráðuneytinu aö lausn
málefna loödýrabúskaþarins og hætt talsverðu fé í uppbyggingu fóðurstöðva.
Einnig höfum viö sinnt eftir bestu getu þróun feröamannaþjónustu í sveitum. Allt eru
þetta þættir í dreifbýlisstefnunni okkar sem er til þess ætluö aö auövelda sveitunum
aölögun aö hinum nýju aöstæöum í landbúnaði og einnig að auðvelda þá þróun
sem fyrirsjáanlega verður aö veröa í sauðfjárræktinni. Ákveðna þætti vantar þó í
þetta hjá okkur sem nauösynlegir eru til aö púsluspilið falli saman. Þaö eru
opinberar framkvæmdir af ýmsu tagi en þó sérstaklega gerö vega út frá þéttbýlis-
stööum um nálægar sveitir til aö auðvelda sveitafólki aö sækja vinnu í þéttbýliö,
sumum aö öllu leyti án þess aö þurfa aö flytja og öörum aö nokkru leyti.
Ég mun enda erindi mitt á fundinum meö því að setja fram mínar eigin skoöanir um
hvernig bregöast veröi viö vandamálum sauðfjárræktarinnar og þeim vandamálum
sem samdráttur hennar veldur í mörgum héruöum. Kjarni þeirra kenninga er aö oft er
strategískt undanhald nauösynlegur undanfari endurskipulagningar og nýrrar
sóknar.