Saga - 2004, Page 258
Karen Þóra Sigurkarlsdóttir, f. 1972. BA-próf í listaverkaforvörslu frá City
and Guilds of London Art School. Forvörður á Þjóðminjasafni Íslands.
Kristín Ástgeirsdóttir, f. 1951. MA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Sér-
fræðingur á Rannsóknarstofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Ís-
lands.
Lýður Björnsson, f. 1933. Cand.mag.-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands.
Sagnfræðingur.
Njörður Sigurðsson, f. 1974. BA-próf í sagnfræði með stjórnmálafræði sem
aukagrein frá Háskóla Íslands. Stundar MA-nám í sagnfræði við sama
skóla. Deildarstjóri á Borgarskjalasafni Reykjavíkur.
Ólafur Rastrick, f. 1969. BA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands. MA-próf í
félags- og mannfræði frá Monash University, Melbourne í Ástralíu. Stund-
ar doktorsnám í sagnfræði við Háskóla Íslands.
Ólöf Garðarsdóttir, f. 1959. Doktorspróf í sagnfræði frá Umeå universitet í
Svíþjóð. Deildarstjóri mannfjöldadeildar Hagstofu Íslands.
Úlfar Bragason, f. 1949. Doktorspróf í norrænum málum og bókmenntum
frá University of California at Berkeley. Forstöðumaður Stofnunar Sigurðar
Nordals.
LEIÐRÉTTING
Tveir dyggir lesendur tímaritsins Sögu, hjónin Sigríður Th. Erlendsdóttir og
Hjalti Geir Kristjánsson, höfðu samband við ritstjóra og bentu á að konan á
forsíðu vorheftis Sögu 2004 væri ekki Bodil Begtrup, sendiherra Dana á Ís-
landi 1949–1956, eins og hermt er í myndatexta (bls. 2) með vísan til heim-
ildar. Myndin sé af Inger Larsen, eiginkonu Martins Larsens, sendikennara
í dönsku við Háskóla Íslands 1950–1951. Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum. Ritstjórar höfðu samband við Guðna Þórðarson, sem tók mynd-
ina í flugferð til Fagurhólsmýrar, og er hann viss um að Begtrup hafi verið
með í þessari ferð þótt myndin sé ekki af henni. Þá má minna á að Begtrup
ferðaðist vítt og breitt um landið í embættistíð sinni og í æviminningum
hennar er m.a. að finna myndir frá heimsóknum hennar til Suðausturlands.
Ritstjórar Sögu
H Ö F U N D A R E F N I S258
Saga haust 2004 - NOTA 30.11.2004 11:34 Page 258