Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Side 12
12 Helgarblað 19. janúar 2018fréttir
Áslaug vinsælust á
samfélagsmiðlum
Áslaug María Friðriksdóttir vinnur
leiðtogaslag Sjálfstæðismanna í
Reykjavík þegar kemur að fylgjendum á
samskiptamiðlum. Áslaug er með 2.000
fylgjendur á Facebook og eyðir miklu í
að koma skilaboðum sínum á framfæri,
einnig er hún með rúmlega 1.000
fylgjendur á Twitter. Kjartan Magnús-
son á hins vegar aðeins 67 fylgjendur á
Facebook og 220 á Twitter.
Eyþór Arnalds stofnaði Like-síðu á
Facebook fyrir rúmri viku og er strax
kominn með rúmlega 1.000 fylgjend-
ur, hann er ekki á Twitter. Vilhjálmur
Bjarnason er hvorki með Like-síðu né
Twitter-reikning, þess má þó geta að
alnafni hans sem er ekki fjárfestir er með
á sjötta hundað fylgjendur.
Viðar Guðjohnsen mætti á Facebook
í síðustu viku og er kominn með 266
fylgjendur, hann er ekki á Twitter en
hefur verið áberandi á Útvarpi Sögu.
Af leiðtogaframbjóðendunum er
aðeins Áslaug sem gæti haft roð við
Degi B. Eggertssyni borgarstjóra sem
er með 2.900 fylgjendur á Facebook og
9.400 á Twitter. Það gæti hins vegar
breyst fljótt ef Eyþór heldur áfram að
safna fylgjendum á sama hraða og hann
hefur verið að gera.
Stuðningsmenn frambjóðenda
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
M
ikil spenna er í loftinu
meðal Sjálfstæðismanna
vegna leiðtogakjörsins í
Reykjavík sem fer fram
laugardaginn 27. janúar. Þeir Sjálf-
stæðismenn sem DV hefur rætt
við segja leiðtogakjörið tvísýnt
þar sem engin könnun liggi fyrir
um fylgi frambjóðenda. Kann-
anir skipta sköpum í baráttu sem
þessari. Skemmst er að minn-
ast prófkjörs Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík haustið 2013 þar sem
Júlíus Vífill Ingvarsson borgarfull-
trúi mældist með mestan stuðn-
ing, eftir að könnunin leiddi það
í ljós færðist stuðningur af fram-
bjóðendum sem mældust með
mun minna fylgi yfir á Halldór
Halldórsson sem endaði sem odd-
viti.
Þar sem engin könnun ligg-
ur fyrir brá DV á það ráð að mæla
stöðu frambjóðendanna miðað
við fylgi nafntogaðra einstak-
linga á samfélagsmiðlum. Tekið
skal fram að úttektin er óformleg
og ekki hafa allir á listunum lýst
formlega yfir stuðningi við fram-
bjóðandann. Listinn byggir á út-
tekt yfir þá sem hafa ítrekað sett
„Like“ á færslur frambjóðendanna
á Facebook, hafa látið taka mynd
af sér með frambjóðandanum eftir
að tilkynnt var um prófkjör eða
hafa boðað komu sína á kosninga-
miðstöð frambjóðandans. n
n Áslaug vinsælust á samfélagsmiðlum n Þingmenn styðja Eyþór
Ari Brynjólfsson
ari@pressan.is
Eyþór Arnalds
Eyþór er fjárfestir og fyrrverandi oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg
n Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins
n Friðjón R. Friðjónsson almannatengill
n Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins
n Erna Ýr Öldudóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu
n Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins
n Brynjólfur Sveinn Ívarsson, myndbandsbloggari og fyrrverandi stjórnlagaþingsframbjóðandi
n Ari Edwald, forstjóri Mjólkursamsölunnar
n Guðmundur Franklín Jónsson, fyrrverandi formaður Hægri grænna
n Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður
n Ingvar Smári Birgisson, formaður SUS
n Sveinn Hjörtur Guðfinnsson, fyrrverandi formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur
n Gunnar Kristinn Þórðarson, fyrrverandi formaður Samtaka meðlagsgreiðenda
n Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins
n Hödd Vilhjálmsdóttir, almannatengill og fyrrverandi fréttakona
n Laufey Rún Ketilsdóttir, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra
n Gísli Freyr Valdórsson, ritstjóri Þjóðmála og fyrrverandi aðstoðarmaður innanríkisráðherra
n Eyjólfur Kristjánsson tónlistarmaður
n Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins
n Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði
n Svava Johansen, eigandi NTC
n Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Circle Air og fyrrverandi forstjóri Saga Capital
n Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiginkona Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar
Áslaug María
Friðriksdóttir
Áslaug María hefur verið borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins frá 2013 og vara-
borgarfulltrúi frá 2006 til 2013.
n Hildur Sverrisdóttir, aðstoðarmaður
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráð-
herra
n Ásta Möller, fyrrverandi þingmaður
Sjálfstæðisflokksins
n Sirrý Hallgrímsdóttir pistlahöfundur
n Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins
n Ragnheiður Ríkharðsdóttir, fyrrverandi
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
n Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri
Félags atvinnurekenda
n Ásdís Halla Bragadóttir, athafnakona
og fyrrverandi bæjarstjóri Garðabæjar
n Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, fyrrverandi
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
n Arndís Kristjánsdóttir, formaður Hvatar
Viðar Guðjohnsen
Viðar er athafnamaður, leigusali og „martröð
jafnaðarmanna“
n Viðar Guðjohnsen yngri, lyfjafræðingur
Vilhjálmur
Bjarnason
Vilhjálmur féll af þingi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í haust,
þar áður var hann fjárfestir.
n Runólfur Ólafsson fram-
kvæmdastjóri FÍB
n Ólafur Haukur Johnson
fyrrverandi skólastjóri
Menntaskólans Hraðbrautar
n Jónína Benediktsdóttir
athafnakona
Kjartan
Magnússon
Kjartan hefur verið borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins frá 1999, þar á
undan var hann varaborgarfulltrúi.
Viðmælendur DV innan úr Sjálf-
stæðisflokknum lýsa honum sem
duglegum og vinnusömum, vandinn
sé hins vegar skortur á kjörþokka.
n Marta Guðjónsdóttir borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum. Einnig
sjálflímandi filt til að klæða skúffur og filt með verjandi
efni svo ekki falli á silfur og silfurplett. Við eigum líka
fægilög, fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
Sjálflímandi hnífaparaskorður
Frakkastíg 10 | Sími 551 3160 | gullkistan@vortex.is | www.thjodbuningasilfur.is
Sendum í póSt-
kröfu