Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Qupperneq 27
27Helgarblað 19. janúar 2018
Sum fyrirtæki senda bara
starfsmann út í búð.
Það kostar ekkert því hann er
hvort sem er í vinnunni
Ávextir alla daga vinnuvikunnar
kosta um 550 kr. á mann.
Hamborgaratilboð kostar hátt
í 2.000 kallinn, einu sinni.
Ávaxtabiti um miðjan morgun
eða um nónið, getur bjargað
deginum þegar starfsmenn eru
orðnir orkulausir. Vinnuveitendur
geta hagnast nokkuð á því.
Þegar fyrirtæki eru í áskrift hjá
Ávaxtabílnum, þurfa þau aldrei
að muna að panta – ávextirnir
koma bara.
Ef fyrirtæki í áskrift vill breyta
pöntun sinni, er hún kölluð fram
á heimasíðu okkar, breytt og send
inn – gæti ekki verið einfaldara.
Fyrirtæki í áskrift
fá 20% afslátt af
veislubökkum okkar.
Starfsmenn Múlalundar
sjá um alla tiltekt ávaxtanna
fyrir Ávaxtabílinn og fá svo
að sjálfsögðu ávexti upp á borð
hjá sér alla vikuna
ódýr
Nú eru
góð ráð
www.avaxtabillinn.is • avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Ávaxtaðu betur
sem gengu vel. Hann hefur verið í
Frakklandi í læknisskoðunum og
slíku og sjálfur er hann bjartsýnn á
að snúa aftur á knattspyrnuvöllinn
innan tíðar. Ef Kolbeinn kæmist
í gang fyrir heimsmeistaramótið
í Rússlandi má ljóst vera að erfitt
væri fyrir Heimi að skilja hann eft-
ir, Kolbeinn var algjör lykilmað-
ur fyrir meiðsli sín og átti stór-
an þátt í árangri liðsins fyrir og í
Frakklandi. Kolbeinn er framherji
í fremstu röð og ef hann nær bata
eru aðrir sem byrja að svitna, þeir
vita að heill Kolbeinn Sigþórsson á
fast sæti í byrjunarliði Íslands.
Verkefni í mars ræður úrslitum
Landsliðsverkefni verður í mars,
það síðasta áður en Heimir vel-
ur hóp sinn fyrir heimsmeistara-
mótið í Rússlandi. Þar fá menn
síðasta tækifæri til að sýna sig og
sanna. Gott gengi með félags-
liði gæti þó tryggt einhverjum
óvænt farmiða til Rússlands. Liðið
mun leika gegn Mexíkó og Perú í
Bandaríkjunum og eftir það ver-
kefni verða línur farnar að skýr-
ast. Margir leikmenn sem hafa
miklar væntingar munu sitja eftir
með sárt ennið þegar Heimir vel-
ur lokahóp sinn í maí. Þegar Ís-
land fór á EM voru leikmenn eins
og Viðar Örn Kjartansson, Rúrik
Gíslason og Sölvi Geir Ottesen
skildir eftir heima. Valið fyrir EM í
Frakklandi kom á óvart að mörgu
leyti og það gæti gert það aftur
fyrir HM í Rússlandi. n
S
nemma í febrúar kemur hing-
að til lands lið frá Bandaríkj-
unum á vegum SoccerViza
og mun liðið leika fjóra æf-
ingarleiki gegn íslenskum liðum.
SoccerViza er knattspyrnulið og
fyrirtæki sem hjálpar leikmönnum
í Bandaríkjunum að finna sér nýtt
lið, þetta hafa íslensk lið nýtt sér og
þjálfarar frá Íslandi farið út og horft
á leikmenn sem fyrirtækið er með á
sínum snærum. Nú heldur liðið til
Íslands þar sem 22 leikmenn koma
og munu spila fjóra leiki gegn Fylki,
Val, ÍA og Álftanesi. Liðið verður hér
á landi 7.–12. febrúar og líklegt að
nokkrir leikmenn semji við íslensk
lið í kjölfarið. n
Öflugir Bandaríkja-
menn á leið til Íslands