Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 30
30 fólk - viðtal Helgarblað 19. janúar 2018
V
ið setjumst niður í kjall-
aranum á Hard Rock við
borð undir gítar frá sjálf-
um Dan Spitz úr Anthrax,
sem er mjög viðeigandi. Stefán
segir: „Tónlistin er mjög stór hluti
af því hver ég er og það hefur alveg
háð mér hversu sterkt afl tónlist
er í mínu lífi. Þegar ég var að alast
upp þoldi ég ekki þá tónlist sem
var spiluð í útvarpinu. Ég segi það
mjög einlægt að ég hataði lögin
með Pálma Gunnars og þess hátt-
ar popp. En þegar ég heyrði fyrst í
hljómsveitum á borð við Napalm
Death, Dio, Slayer og Metallicu þá
breyttist allt.“
Krakkarnir stofnuðu
körfuboltadeild
Stefán er 41 árs og alinn upp í
Hveragerði. Hann er elstur fjögurra
systkina og foreldrar þeirra ráku
gróðrarstöðina Grósku. Hann
var sprækur sem barn og stund-
aði íþróttir grimmt. „Kannski var
ég svona rosalegur A-maður. Auk
íþróttanna var ég mjög virkur í fé-
lagslífinu og var farinn að skipu-
leggja ýmsa viðburði strax í grunn-
skóla.“
Fótbolti, handbolti og bad-
minton voru hans ær og kýr þar
til í tíunda bekk þegar hann og
bekkjarbræður hans stofnuðu
körfuboltadeild. „Á þessum tíma
var enginn körfubolti í Hveragerði.
Við, krakkarnir í gaggó, gengum í
hús og söfnuðum áheitum til að
setja upp körfur í íþróttahúsið og
fengum okkur þjálfara.“ Eftir einn
vetur var ákveðið að setja körfu-
boltadeildina inn í íþróttafélagið
Hamar. „Þeir sáu að það var ekki
hægt að láta einhverja krakka
halda utan um þetta þannig að
þetta frumkvæði okkar var tekið
alla leið.“
Síðan þá hefur körfuknattleikur
verið flaggskip Hamars. Kvenna-
liðið komst í úrslitakeppnina árið
2011 og karlaliðið hefur í tvígang
komist í úrvalsdeild. Stefán spil-
aði með liðinu þegar það komst
upp í fyrstu deildina en hætti þá.
„Eftir á að hyggja hefði ég ekki átt
að hætta. En ég var þá með barn á
leiðinni og þetta hefði þýtt mikla
fjarveru.“
Með ungbarn á heimavist
Stefán sagði þó ekki skilið við
íþróttirnar því hann fór í Mennta-
skólann á Laugarvatni og svo
í Íþróttakennaraskólann. Í
menntaskólanum kynntist hann
verðandi eiginkonu sinni, Hrefnu
Hugosdóttur, hjúkrunar- og fjöl-
skyldufræðingi, þegar hann var
19 ára. Hann segir að þetta hafi
verið ást við fyrstu sýn og sú ást
hafi enst allar götur síðan, í 22 ár.
Þau eiga tvö börn, Júlíus Óla, 19
ára, og Ragnheiði Maríu, 13 ára.
Júlíus fæddist þegar Stefán og Hr-
efna voru enn á heimavist.
Hvernig var að eignast barn í
heimavistarskóla?
„Það var svolítið sérstakt, bæði
þegar Hrefna var ólétt og eftir að
Júlíus fæddist. Eðlilega var mikið
ónæði og partístand. Eftir að hann
fæddist þurfti ég stundum að taka
hann með mér í tíma og hann var
skríðandi um skólastofuna.“ Hann
segir samt að þau hafi aldrei fund-
ið fyrir neinum fordómum verandi
svo ungir foreldrar. Skólayfirvöldin
gerðu allt til að gera þeim vistina
með Júlíus sem þægilegasta. „Síð-
asta árið vorum við komin í sér-
íbúð því það var ekki hægt að vera
á vistinni með hann. Gleðin á
staðnum var einfaldlega of mikil.“
Fordæmalaus vöxtur
Tónlistin hefur verið samofin lífi
Stefáns frá því hann var barn.
Hann lærði á trommur í lúðra-
sveit og stofnaði svo ýmsar hljóm-
sveitir með félögum sínum. Þekkt-
ust þeirra var pönkhljómsveitin
Dys sem gaf út tvær plötur. Dys
var þá hluti af lítilli en öflugri
rokksenu sem kennd er við harð-
Hátíðin Eistnaflug í
Neskaupstað er fyrir
löngu orðin að einum
helsta hornsteini ís-
lenskrar rokktónlistar.
Fræg fyrir gott andrúms-
loft og að ofbeldi sé ekki
liðið. Íþróttakennarinn
Stefán Magnússon
kom hátíðinni á legg
árið 2004 en hann hefur
nú ákveðið að segja sig
frá skipulagningunni.
Kristinn hjá DV hitti
Stefán á Hard Rock Café,
þar sem hann er fram-
kvæmdastjóri, og ræddi
við hann um æskuárin,
hátíðina og álagið sem
var hætt að vera honum
hollt.
Banaslysið
breytti öllu
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
„Þetta
hefði
ekki gerst ef
ég hefði ekki
verið að halda
Eistnaflug