Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Side 37
Brot af því bestaHelgarblað 19. janúar 2018 KYNNINGARBLAÐ
Lindarfiskur aLinn í tærum Lindaruppsprettum
Lindarfiskur er lítið fjölskyldufyrirtæki staðsett í meðallandinu rétt austan við Vík. „móðir mín
er frá þessari jörð og er staðurinn
algerlega einangraður. aðalverð
mætin á jörðinni er allt þetta tæra
lindarvatn sem streymir hér beint
úr eldhrauninu og því er staðurinn
fullkominn fyrir bleikjueldi,” segir drífa
Bjarnadóttir, einn eigandi Lindar
fisks. „Við fjölskyldan eigum og rekum
Lindarfisk saman. Það eru ég og
maðurinn minn, Árni Jóhannsson,
systir mín, sigrún Bjarnadóttir, og
foreldrar okkar, þau
Helga Ólafsdóttir og
Bjarni Jón finnsson,”
segir drífa.
Alger sjálfbærni
fyrstu bleikjuhrognin
voru tekin hjá fyrir
tækinu árið 2011
og síðan þá hefur
Lindarfiski svo
sannarlega vaxið
fiskur um hrygg. „Við
stefnum að algerri
sjálfbærni og gerum
því allt sjálf. nýlega
fengum við okkur svín sem éta nán
ast allan afskurðinn af bleikjunum og
afgangurinn er svo notaður í áburð.
fiskinn vinnum við alfarið á svæðinu.
Það hefur gengið hægt en örugglega
að koma fyrirtækinu á þann stað
sem það er í dag og munum við von
bráðar selja vörur okkar í stórmark
aði. Við höfum meðal annars hannað
neytendaumbúðir sem eru svartar og
nær ógegnsæjar til þess að stuðla að
ferskari og betri vöru. að auki höfum
við hugsað okkur að fara í útflutning
á eldisbleikju, enda erum við með
ótrúlega ferska vöru í höndunum,”
segir drífa.
Tærasta vatnið, ferskasti fiskurinn
„Við leggjum mjög mikið upp úr fersk
leika, það er eitthvað sem við getum
bara alls ekki slegið af hérna
hjá Lindarfiski. Hrognin fáum við frá
kynbótastöðinni á Hólum í Hjaltadal
sem framleiðir fyrsta flokks hrogn.
Þau ölum við svo hér í meðallandinu
í kerjum og svokölluðum lengdar
straumsrennum. Hér rennur ferskt og
tært vatn beint úr lindaruppsprettum
og fiskurinn er eins ferskur og getur
orðið,” segir drífa.
Hafðu samband
„Við erum aðallega að selja bleikju til
veitingastaða sem undantekninga
laust lofa bleikjuna okkar í hástert,”
segir drífa. enn sem komið er selur
Lindarfiskur ekki vörur í stórmörk
uðum en til þess að versla beint við
Lindarfisk er hægt að hringja í drífu
í síma 6634528 eða senda henni
netpóst á drifa@lindarfiskur.com.
nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðu Lindarfisks og á facebook
síðunni. einnig heldur Lindarfiskur
út síðu á instagram sem er stór
skemmtilegt að fylgjast með.
Ferskasti fiskurinn á landinu
dekura
Einstök þjónusta í
umsjón leiguhúsnæðis
Félagarnir davíð karl Wiium og davíð Vilmundarson eru brautryðjendur í umsjón og umsýslu
eigna í skammtímaleigu. Árið 2014
stofnuðu þeir þjónustufyrirtækið
dekura sem sérhæfir sig í umsjón á
húsnæði sem leigt er út í gegnum
airbnb og aðra sambærilega vefi. Þá
bjóða þeir einnig sérhæfða umsjón
gistiheimila af öllum stærðum og
gerðum.
Þjónustuframboð dekura fyrir
eigendur húsnæðis í skammtímaleigu
spannar vítt svið og leggur fyrirtækið
áherslu á að bjóða faglega og heild
ræna þjónustu til viðskiptavina sinna.
rekstur skammtímaleiguhúsnæðis
getur verið ansi tímafrekur og krefst
töluverðra fórna og umtalsverðrar
skipulagningar af hálfu leigusala. Það
er ótal margt sem þarf að huga að
þegar kemur að því að gera leigjanda
ánægðan. fyrir utan það að hafa
íbúðina í toppstandi, tandurhreina og
allt aðgengi með besta móti þegar
nýr leigjandi bankar upp á, þá þarf
leigusali að vera til taks til að taka
á móti leigjendum og vera auk þess
reiðubúinn til að leysa úr hinum ýmsu
vandamálum sem upp geta komið á
öllum tímum sólarhrings. samhliða
fullri vinnu og fjölskyldu getur þetta
verið ansi þungur baggi fyrir leigusala
að takast á við. dekura býður upp
á heildarþjónustu sem tekur á öllu
því sem viðkemur rekstri á eignum í
skammtímaleigu, allt frá þrifum upp
í alhliða umsjón eignanna. Þá sér
dekura um öll samskipti við gesti auk
þess sem allt lín, handklæði og annað
sem þarf að vera til staðar fyrir gesti
meðan á dvöl stendur er innifalið í
heildarþjónustu félagsins.
með aðstoð dekura getur leigusali
tekið á móti töluvert fleiri viðskipta
vinum en ella og fengið betri um
sagnir, sem eykur samstundis verð
gildi íbúðarinnar og leigutekjurnar
sem af henni koma. Hjá fyrirtækinu
starfa í dag 12 manns sem sjá um hin
ýmsu verkefni og státar dekura sig af
einu færasta þrifnaðarteymi í brans
anum. auk þess starfrækir dekura
fullbúið þvottahús í höfuðstöðvum
sínum við skólavörðustíg. eftir fjögur
ár í þessum rekstri vita starfsmenn
dekura hvað til þarf til að uppfylla
gæðakröfur ferðamanna og hvernig
hámarka má nýtingu leiguhúsnæðis.
Þar sem nú er orðið heimilt að
leigja út eign sína í allt að 90 daga á
ári þá færist sífellt í aukanna að fólk
nýti sér þá heimild til að fjármagna
að hluta til eða fullu sumarfrí sín.
nú fer að ganga í garð aðal ferða
tímabil ársins og því er gott að vera
tímanlega í skipulagningu á útleigu
húsnæðis fyrir þau sem á það hyggja.
eins og alþjóð veit er íslenska karla
landsliðið á leiðinni á sitt annað stór
mót og því lag að leigja út híbýli sín
á meðan til þess að létta undir eða
jafnvel greiða fyrir fríið.
dekura er í nánu samstarfi við
teymi sérfræðinga í leyfismálum og
aðstoðar viðskiptavini sína við að fá
þau leyfi sem þarf, viðskiptavininum
að kostnaðarlausu, hvort sem um er
að ræða 90 daga leyfi eða fullgilt
gistileyfi.
Til þess að panta þjónustu frá
Dekura má hafa samband í gegnum
vefsíðu fyrirtækisins https://dekura.is
eða senda póst á netfangið dekura@
dekura.is.
Davíð Vilmundarson (t.v.) og Davíð Karl Wiium (t.h.)