Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Síða 41
Brot af því bestaHelgarblað 19. janúar 2018 KYNNINGARBLAÐ
Haukur Gíslason, eigandi verktakafyrirtækisins Jökulfells, er önnum
kafinn maður og var bara
laus í spjall að kvöldlagi fyrir
þennan greinarstúf. En þegar
það símaspjall átti sér stað,
á níunda tímanum, var hann
samt enn í vinnunni og vélar
dynur ómaði í bakgrunninum
á meðan símtalið átti sér stað.
„Þetta geta orðið dálítið
langir dagar. Ég er núna í
hringveginum yfir Horna
fjarðarfljót, fyrsti áfangi,
og þetta er nokkuð stórt
verk, við erum með ein
10–12 tæki hér, búkoll
ur, gröfur og jarðýtur,“
segir Haukur, en hinar
svokölluðu búkollur eru
liðstýrðir trukkar frá
Volvo. Volvo er einmitt
einna mest áberandi
merkið í tækjaflota
Jökulfells en ýmsir fleiri
þekktir framleiðendur koma
þar líka við sögu. Jökulfell
hefur byggt upp glæsilegan
flota af þungum vinnuvélum,
trukkum, gröfum og jarðýtum.
Haukur Gíslason er frá
Svínafelli rétt hjá Höfn í
Hornafirði en starfsemi Jökul
fells teygir sig hins vegar um
allt land, meðal annars til
Vestmannaeyja og á Aust
firðina. Verktakastarfsemi
Jökulfells snýst um vegagerð
fyrir Vegagerð ríkisins, streng
lagningu fyrir Landsnet og al
hliða jarðvinnu fyrir byggingar,
meðal annars að grafa og
sprengja fyrir húsum:
„Sveitarfélagið á Hornafirði
er einn af mínum samstarfs
aðilum en við höfum líka kom
ið að vinnu fyrir undirbúning
ýmissa stórra bygginga hjá
einkaaðilum.
Yfirleitt eru þetta stór verkefni
þó að við séum raunar til í
hvað sem er. En óneitanlega
hefur maður gírað sig upp
fyrir stærri verkefnin með
allan þann tækjakost sem ég
hef yfir að ráða,“ segir Haukur.
Rekstrarkostnaðurinn liggur
fyrst og fremst í hinum glæsi
lega tækjakosti en óhætt er
að segja að lítil yfirbygging sé
á fyrir
tækinu. Eigandinn er á kafi í
vinnunni sjálfur, lítið fer fyrir
skrifstofuhaldi og vefsíðu er
til dæmis ekki til að dreifa.
Starfsmenn eru ekki margir en
fjöldi ársverka er óreglulegur.
Umfang og stærð fyrirtæk
isins kemur helst fram í þeim
mikla og stóra tækjakosti sem
nota þarf við verk
efnin. Hefur Jökulfell vaxið
mikið að umfangi og veltu
undanfarin ár en fyrirtækið
var stofnað árið 2005.
Nánari upplýsingar
veitir Haukur Gíslason
í síma 777 7007.
Langir dagar hjá Jökulfelli
LEGGJA VEGi oG StREnGi – ALHLiðA JARðVinnA VEGnA bYGGinGA
Leiðandi í háþrýstiþvotti
ÁÁ VERktAkAR
Háþrýstiþvottur er óhjákvæmilegur undanfari stórra málningarverk
efna utanhúss og ákaflega
skilvirk aðferð til að gera hús
og byggingar klárar undir
málningu. Fyrirtækið ÁÁ
Verktakar ehf. er leiðandi á
sviði háþrýstiþvottar hér á
landi og hefur yfir að ráða
afar öflugum búnaði til slíkra
verka, sem er allur í eigu fyrir
tækisins.
til að hreinsa málningu
af húsum er notast við 500
bara hitadælur sem geta
hitað vatn upp í 100 gráð
ur. Slíkar dælur eru einnig
notaðar í alls konar fitu og
olíuhreinsanir og víðar þar
sem við á.
„Íbúðarhús eru oft
hreinsuð með um 300
til 500 bara þrýstingi og
köldu vatni sem dugar til að
hreinsa óhreinindi og gróð
ur af húsum. En svo geta
verið öndunarvandamál og
vatnspokar og þá þarf að
hreinsa gömlu málninguna
alla af, þ.e. alhreinsun. Þá
þarf að nota heitt vatn,“ segir
Áslaugur Einarsson, fram
kvæmdastjóri ÁÁ Verktaka.
Fyrirtækið var stofn
að árið 1991 og hefur það
vaxið og dafnað allar götur
síðan. Auk háþrýstiþvottar
sérhæfir ÁÁ Verktakar ehf.
sig í viðhaldi fasteigna, til
dæmis múrviðgerðum,
málningarvinnu, tré
smíðavinnu og annarri
viðhaldsvinnu fast
eigna.
Sem fyrr segir er
búnaður ÁÁ Verktaka
til háþrýstiþvotta afar
öflugur: „Við erum
með 3.000 bara dæl
ur sem eru notaðar til
að hreinsa málningu
af stáli. Enn fremur við
hreinsanir á túrbínu
hjólum og ýmsu öðru.
Þrýstingurinn á þeim er afar
hár og þær mjög öflugar.
Enn fremur erum við með
1.500 bara dælur, mjög
vatnsmiklar, þær eru meðal
annars notaðar í virkjanir,
til að hreinsa úr borholum
og rörum og vörmum,“ segir
Áslaugur.
Háþrýstidælurnar koma
annars vegar frá Þýskalandi,
frá framleiðandanum Falch,
og hins vegar frá bandaríkj
unum, frá fyrirtækinu Garden
Denver, en báðir aðilar eru
afar öflugir framleiðendur
háþrýstidæla.
ÁÁ Verktakar ehf. er í
Reykjanesbæ en að sögn
Áslaugs eru langflest verk
efni þeirra á höfuðborgar
svæðinu. Viðskiptavinir
fyrirtækisins eru af ýmsu
tagi, til dæmis almennir
húseigendur sem ætla að
mála hús sitt og þurfa á
háþrýstiþvotti að halda til
að gera klárt undir mál
un. Einnig er algengt að
málarameistarar leiti til
fyrirtækisins eftir tilboð
um í háþrýstiþvott.
Háþrýstiþvotturinn er
einnig oft hluti af stærri
verkefnum fyrirtækisins
enda sinni það margs
konar húsaviðgerðum og er
með fjölda múrara í vinnu.
Einnig hefur fyrirtækið unnið
mikið fyrir orkufyrirtæki við
að beita hinum öflugu há
þrýstidælum við hreinsanir úr
borholum og fleira. Þá hefur
ÁÁ Verktakar ehf. unnið mikið
fyrir útgerðarfyrirtæki og
sinnir öllum þvotti fyrir Stál
smiðjuna Framtak, sem rekur
Slippinn í Reykjavík.
Sem fyrr segir hefur verið
mikil vöxtur í starfseminni:
„Starfsemin hefur vaxið jafnt
og þétt frá því við byrjuðum
og tækjakosturinn hefur fylgt
með. Það varð vissulega dá
lítið stopp eftir hrunið eins og
hjá mörgum en síðan hefur
þetta legið upp á við. Sem
dæmi um það keyptum við
3.000 bara háþrýstidæluna
árið 2013 og var það fyrsta
dælan af slíku tagi sem seld
var frá Þýskalandi innan
Evrópu. Einnig höfum við
bætt við okkur skæralyftum
og spjótum til að nota þegar
unnið er við hærri byggingar,“
segir Áslaugur að lokum.
ÁÁ Verktakar ehf. Fitja-
braut 4 260 Reykjanesbær
Símar: 421-6530 og 898-
2210 aaverktakar@aaverk-
takar.is Heimasíða: www.
aaverktakar.is.
Myndin hægra megin sýnir einbýlishús eftir háþrýstiþvott vinstra
megin er sama hús eftir pússningu og fíltun.
Háþrýstiþvottur
á bárujárnshúsi
Unnið við háþrýstiþvott
á einbýlishúsi