Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Page 46

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Page 46
Brot af því besta Helgarblað 19. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ Cargo sendibílaleiga Cargo sendibílaleiga sérhæfir sig í útleigu á sendi- og kassabíl- um með lyftu til flutninga á búslóðum og vörum. Þar leigir þú þann bíl sem hentar þínum flutningum, ekur sjálfur/sjálf og sparar því umtalsverðan kostnað. Bílafloti til búslóðaflutninga Gunnar Haraldsson, eigandi Cargo sendibíla, segir bílaflota fyrirtækisins samanstanda af þremur bílastærðum. „Í 1.100 kílóa flokkunum erum við með minni sendibíla sem hafa alveg einstaklega góða aksturseiginleika og eyða litlu eldsneyti. 1.200 kílóa flokkurinn er kassabílar með lyftu sem eru einstak- lega góður kostur til flutninga á stórum og meðalstórum búslóðum. Á þessa bíla þarf ekki meirapróf og eru þeir sparneytnir. Stærstu bílarnir eru bílar sem henta vel í stærri flutninga, en það eru bílar aukinna ökuréttinda. Tækjaleiga „Tækjaleigan hjá okkur er með tækj- um sem auðveldar fólki flutningana. Við bjóðum til leigu sekkjatrillu sem er með burðargetu upp að 200 kílóum, einnig erum við með tröpputrillu sem auðveldar fólki flutninga þungra hluta upp og niður stiga, þessar trillur reyn- ast mjög góðar til þess að flytja t.d. þvottavélar og ísskápa. Burðarböndin eða píanóböndin okkar henta vel til þess að lyfta stórum borðum, skáp- um, píanóum og þvottavélum svo eitthvað sé nefnt. Ef þú ert svo með vörur eða búslóð á brettum eigum við einnig brettatjakka til leigu og svo sterk bönd til þess að festa vörurnar í bílunum.“ Að leigja sendibíl Að sögn Gunnars þarf viðskiptavinur sem hyggst leigja sendibíl að fram- vísa ökuskírteini og kreditkorti sem tryggingu fyrir leigu sendibifreiðar- innar. „Vert er að taka fram að leigu- taki þarf ekki að vera með meirapróf til að leigja sendibíl með burðargetu 1.200 kíló og undir. Leigutaki leigir sendibílinn fullan af eldsneyti og skilar svo tanknum fullum.“ Cargo sendibíla- leiga, Skemmuvegi 32 (bleik gata), 200 Kópavogur. Sími: 566 5030. Tölvupóstfang: info@cargobilar.is Opnunartími: Alla virka daga frá kl. 8.00–18.00 og um helgar frá klukkan 10.00–16.00. www.cargobilar.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.