Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Síða 46
Brot af því besta Helgarblað 19. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Cargo sendibílaleiga
Cargo sendibílaleiga sérhæfir sig í útleigu á sendi- og kassabíl-
um með lyftu til flutninga á
búslóðum og vörum. Þar leigir
þú þann bíl sem hentar þínum
flutningum, ekur sjálfur/sjálf
og sparar því umtalsverðan
kostnað.
Bílafloti til búslóðaflutninga
Gunnar Haraldsson, eigandi
Cargo sendibíla, segir bílaflota
fyrirtækisins samanstanda
af þremur bílastærðum. „Í
1.100 kílóa flokkunum erum
við með minni sendibíla sem
hafa alveg einstaklega góða
aksturseiginleika og eyða litlu
eldsneyti. 1.200 kílóa flokkurinn er
kassabílar með lyftu sem eru einstak-
lega góður kostur til flutninga á
stórum og meðalstórum búslóðum. Á
þessa bíla þarf ekki meirapróf og eru
þeir sparneytnir. Stærstu bílarnir eru
bílar sem henta vel í stærri flutninga,
en það eru bílar aukinna ökuréttinda.
Tækjaleiga
„Tækjaleigan hjá okkur er með tækj-
um sem auðveldar fólki flutningana.
Við bjóðum til leigu sekkjatrillu sem er
með burðargetu upp að 200 kílóum,
einnig erum við með tröpputrillu sem
auðveldar fólki flutninga þungra hluta
upp og niður stiga, þessar trillur reyn-
ast mjög góðar til þess að flytja t.d.
þvottavélar og ísskápa. Burðarböndin
eða píanóböndin okkar henta vel til
þess að lyfta stórum borðum, skáp-
um, píanóum og þvottavélum svo
eitthvað sé nefnt. Ef þú ert svo með
vörur eða búslóð á brettum eigum
við einnig brettatjakka til leigu og svo
sterk bönd til þess að festa vörurnar í
bílunum.“
Að leigja sendibíl
Að sögn Gunnars þarf viðskiptavinur
sem hyggst leigja sendibíl að fram-
vísa ökuskírteini og kreditkorti sem
tryggingu fyrir leigu sendibifreiðar-
innar. „Vert er að taka fram að leigu-
taki þarf ekki að vera með meirapróf
til að leigja sendibíl með burðargetu
1.200 kíló og undir. Leigutaki leigir
sendibílinn fullan af eldsneyti og skilar
svo tanknum fullum.“
Cargo sendibíla-
leiga,
Skemmuvegi 32
(bleik gata),
200 Kópavogur.
Sími: 566 5030.
Tölvupóstfang:
info@cargobilar.is
Opnunartími:
Alla virka daga
frá kl. 8.00–18.00
og um helgar frá
klukkan 10.00–16.00.
www.cargobilar.is