Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Page 54
Vikublað 19. janúar 2018 54
Hin íturvaxna undirfatafyrir-sæta Oddný Ingólfsdóttir er með 124 þúsund fylgjendur
á Instagram en á síðasta hálfa ári
hefur hún eignast tugþúsundir
aðdáenda sem sumir bjóða henni
gull og græna skóga í skiptum fyrir
vinskap, eða jafnvel hjónaband.
Oddný er engin písl. Hún er
boldangskvenmaður, heilir 180
sentimetrar á hæð og notar brjósta-
haldara í stærðinni 34 HH en það
má segja að þessi gjöfula brjósta-
stærð, í bland við áhuga hennar á
undirfötum, ávalar línur og einkar
fagra andlitsdrætti séu ástæðan
fyrir vinsældunum.
Þegar hún opnaði reikning sinn
á Instagram fyrir fjórum árum
hafði Oddný enga sérstaka stefnu
aðra en að skrifa myndatexta á
ensku og reyna að nota viðeigandi
myllumerki. Fyrsta myndin sem
hún birti var til dæmis af kok-
teilsósubrúsa, svona til að prófa
myndavélina. Að loknu förðunar-
námi fjölgaði hún sjálfunum og
fékk fyrir vikið fleiri „like“, en
þegar fyrsta brjóstahaldaramyndin
birtist fjölgaði aðdáendum hennar
svo um munaði.
„Sko, ég veit eiginlega ekki
hvernig ég á að útskýra þetta – en
ég er með alveg rosalega stór brjóst,
nota stærðina 34 HH og í mörg
ár hef ég því þurft að panta mér
brjóstahaldara af netinu, einfald-
lega af því ég fæ ekkert sem passar
á mig hérna heima,“ segir hún.
„Svo hef ég alveg svakalega
mikinn áhuga á undirfötum, les
nærfatablogg og fylgi alls konar
undirfatafyrirtækjum á netinu. Í
gegnum tíðina hef ég safnað fullt
af fallegum undirfatnaði og einn
daginn langaði mig bara geðveikt
mikið að taka mynd af sjálfri mér á
nærfötunum og birta á Instagram,“
útskýrir Oddný og bætir við að hún
hafi aldrei haft mikið sjálfstraust en
jákvæð viðbrögð við fyrstu undir-
fatamyndinni hafi blásið henni
hugrekki í brjóst og hvatt hana til að
halda áfram. Hún segir að til að byrja
með hafi hún ekki haft nema um
tvö hundruð fylgjendur á þessum
vinsæla samfélagsmiðli en síðustu
mánuði hafi þeim fjölgað verulega.
„Á síðustu sex mánuðum hefur
þessi fjöldi tekið svakalegt stökk.
Fyrst voru þetta bara nokkur
hundruð, svo nokkur þúsund
en undanfarið hálft ára hafa að
meðaltali ellefu þúsund fylgjend-
ur bæst við í hverjum mánuði,“
segir hún og vísar í greiningar-
forritið Socialblade.com.
„Ætli sjálfstraustið haldi ekki
aðeins aftur af manni?“
Instagram gengur að mörgu
leyti út á afmörkuð áhugasvið
notendanna en vinsælustu
reikningarnir snúast til dæmis
um förðun, líkamsrækt, ferða-
lög, matargerð, gæludýr og
annað í þeim dúr. Kynþokkinn
nýtur einnig mikilla vinsælda
hjá notendum og hér gildir hið
fornkveðna að „hver maður spilar
sinn leik“. Hvort sem fólk kann að
meta mikla eða litla vöðva, stór
eða lítil brjóst, breiðar eða grannar
mjaðmir, allir fá eitthvað fyrir sinn
snúð á Instagram svo lengi sem
leitað er eftir réttum myllumerkj-
um.
Eins og áður segir
hefur Oddný frá upphafi skrifað
alla myndatexta á ensku og verið
dugleg að nota viðeigandi myllu-
merki en þetta hefur meðal annars
orðið til þess að aðdáendur ávalra
lína hafa verið ötulir að endurbirta
myndirnar hennar sem og áhuga-
fólk um líkamsvirðingu. Daglega
magnast snjóboltaáhrifin og fáar
„Ég er með
alVeg rosalega
stór brjóst“
Kynbomban Oddný Ingólfsdóttir er 180 sentimetrar á hæð og er með 124.000 fylgjendur á Instagram
margrÉt H. gústaVsdóttir
margret@dv.is
„Fyrir sumum
virðist lífið
svolítið svart eða
hvítt og margir túlka
líkamsvirðingu sem
svo að maður eigi
að vera sáttur við
líkamann á sér í
mikilli yfirþyngd.