Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Blaðsíða 56
Vikublað 19. janúar 2018 56
Ragnheiði dreymdi aldrei um að verða fyrirsæta eða fegurðardís þegar hún var
krakki. Hún lýsir sér sem stráka-
stelpu enda á hún þrjá eldri bræður
og var alltaf mikil pabbastelpa. For-
eldrar hennar eru Guðni heitinn
Ólafsson, skipstjóri og útgerðar-
maður, og Gerður Sigurðardóttir
húsmóðir sem býr nú í Reykjavík.
Hún segist hafa verið þekkt sem
„stelpan með síða hárið í græna
jakkanum“ í Eyjum, var á kafi í
körfubolta og fótbolta og aldrei
hvarflaði það að henni að hún
myndi gerast fyrirsæta, hvað þá
fegurðardrottning, enda upplifði
hún sjálfa sig sem „ósköp venju-
legan lúða“ eins og hún orðar það.
„Ég hef alltaf haft meira gaman
af útiveru og einhvers konar hasar
heldur en að punta sjálfa mig. Svo
var ég eiginlega bara sótt til Eyja til
að fara í þessi fyrirsætustörf,“ rifjar
hún upp.
„Kolbrún Aðalsteinsdóttir, sem
starfaði fyrir Elite, hvatti foreldra
mína til að senda mig í keppnina
og ég man að það var mikið talað
um tækifærin sem þetta gæti haft
í för með sér. Þessu fylgdu svolítið
blendnar tilfinningar. Ég man að
mér fannst þessi þrýstingur frekar
pirrandi en svo tóku ævintýrin við
þegar tilboðin fóru að hrúgast inn
og við Kolbrún byrjuðum að ferðast
Það eru ekki margir sem myndast jafn vel
og Eyjamærin Ragnheiður Guðfinna
Guðnadóttir enda var henni nánast
nappað úr Vestmannaeyjum til að taka þátt
í fyrirsætustörfum. Sextán ára sigraði hún í
fyrirsætukeppni Elite og fimm árum síðar landaði
hún titlunum Ungfrú Reykjavík og Ísland. Hún
stjórnaði morgunþætti á Stöð 2 um nokkurt skeið
en dró sig svo úr sviðsljósinu sem, eins og margir
vita, getur verið nokkuð eldfimt.
Margrét H. gústaVsdóttir
margret@dv.is
M
yn
d
ir
B
ry
n
ja