Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Side 60
Vikublað 19. janúar 2018 60
Vel mælt
ÞrisVar út á sValir til
að sefa mannfjöldann
Sögnin „að sefa“ þýðir að milda eða lina einhvers
konar tilfinningalegt uppnám. Fullorðið fólk reynir oft að
sefa eigin sorgir og þjáningar með því að borða mikinn
mat, neyta áfengis eða jafnvel hreyfa sig mikið (sbr.
Forrest Gump þegar hann hljóp af sér ástarsorgina).
Þetta þykir almennt ekki tíðindum sæta fyrr en sefunar-
tilburðirnir fara úr böndunum, svo úr verður það sem í
almennu tali er kallað fíkn eða fíknarhegðun.
„Ég bragða, skynja, skil“
Karlkynsorðið sefi merkir hugur eða geð. Orðið er stundum talið í ætt við
latneska orðið sapiō sem þýðir „ég bragða, skynja, skil“.
Orðið sefasýki er notað yfir geðsjúkt ástand með líkamlegum einkennum sem
viðbrögð við tilfinningalega erfiðri reynslu en þetta getur lýst sér með máttleysi,
svima eða jafnvel lömun og sefjun er sálrænt ferli þar sem hugmynd eða skoðun
(annars manns) er meðtekin án þess að rökum, fortölum, skipunum eða nauðung
sé beitt. Í íslensku alfræðiorðabókinni er útskýrt að sefjun sé vísviljandi beitt
í sumum tilfellum, til dæmis í auglýsingum, og að þekktasta gerð sefjunar sé
dáleiðsla.
Samheiti:
blíðka, deyfa, draga úr, hægja, létta, líkna, lægja, milda, minnka, mýkja, sefa,
slaka á, svía; hlýna
„Það sem við listamennirnir eigum
að gera er aðeins þetta: Vera
Guði til ánægju og reyna að sannfæra
fólk um að það sé einhver tilgangur með
þessu.
– Jóhannes Sveinsson Kjarval
49
ára
58
ára
48
ára
laddi
Starf: Leikari, grínisti, tónlistarmaður
Fæddur: 20. janúar 1947
Hilmir snær Guðnason
Starf: Leikari
Fæddur: 24. janúar 1969
Guðmundur Guðmundsson
Starf: Handboltaþjálfari
Fæddur: 23. desember 1960
linda blöndal
Starf: Fjölmiðlakona
Fædd: 22. janúar 1970
71
árs
Afmælisbörn vikunnar
Orðabanki Birtu: Að sefa, róa og milda
london - miðVikudaGurinn 15. áGúst 1945
Georg 6. Bretakonungur setti breska
þingið í dag. Að venju lýsti hann við
það tækifæri stefnu ríkisstjórnarinnar
í aðalatriðum. Sagði konungur, að alt
kapp yrði lagt á það, að heimflutningi
breskra stríðsfanga í Austurálfu yrði
hraðað sem mest. Lögð yrðu fyrir
þingið frumvörp um endurskoðun iðn-
reksturs Bretlands og aukna útflutnings-
verslun. Myndi í þessum efnum verða
gripið til aukins eftirlits eða þjóðnýt-
ingar. Englandsbanki yrði þjóðnýttur,
svo og kolanámur landsins.
Þá yrðu gerðar ráðstafanir til þess
að bæta úr húsnæðisvandræðun-
um í landinu. Yrði hafist handa um
skipulagðar húsasmíðar og framleiðslu
byggingarefna. Þá yrði komið á
víðtækri fjelagsmálalöggjöf. Heilbrigð-
ismálalöggjöf landsins yrði látin koma
til framkvæmda. Stjórnin myndi vinda
að því bráðan bug, að Indland fengi
sjálfsstjórn. Loks myndi bráð- lega þess
vera farið á leit við þingið, að það
staðfesti skipulagsskrá hinna sameinuðu
þjóða, sem gerð var á ráðstefnunni í
San Francisco.
Konungshjónin hylt
Geysilegur mannfjöldi hylti konungs-
hjónin fyrir utan þinghúsið, er þau
komu þangað og fóru þaðan. Fyrir
utan konungshöllina safnaðist mikið
mannhaf síðar um daginn.
Urðu konungshjónin að koma þrisvar
út á hallarsvalirnar til þess að sefa
mannfjöldann.
Attlee forsætisráðherra og þrír yfir-
menn herforingjaráðs Breta gengu á
fund konungs og báru fram heillaóskir
sínar í tilefni sigursins. Skömmu síðar
gekk Churchill, forvígismaður stjórn-
arandstöðunnar, fyrir konung í sömu
erindagerðum.
(Tímarit.is)