Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Page 60

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Page 60
Vikublað 19. janúar 2018 60 Vel mælt ÞrisVar út á sValir til að sefa mannfjöldann Sögnin „að sefa“ þýðir að milda eða lina einhvers konar tilfinningalegt uppnám. Fullorðið fólk reynir oft að sefa eigin sorgir og þjáningar með því að borða mikinn mat, neyta áfengis eða jafnvel hreyfa sig mikið (sbr. Forrest Gump þegar hann hljóp af sér ástarsorgina). Þetta þykir almennt ekki tíðindum sæta fyrr en sefunar- tilburðirnir fara úr böndunum, svo úr verður það sem í almennu tali er kallað fíkn eða fíknarhegðun. „Ég bragða, skynja, skil“ Karlkynsorðið sefi merkir hugur eða geð. Orðið er stundum talið í ætt við latneska orðið sapiō sem þýðir „ég bragða, skynja, skil“. Orðið sefasýki er notað yfir geðsjúkt ástand með líkamlegum einkennum sem viðbrögð við tilfinningalega erfiðri reynslu en þetta getur lýst sér með máttleysi, svima eða jafnvel lömun og sefjun er sálrænt ferli þar sem hugmynd eða skoðun (annars manns) er meðtekin án þess að rökum, fortölum, skipunum eða nauðung sé beitt. Í íslensku alfræðiorðabókinni er útskýrt að sefjun sé vísviljandi beitt í sumum tilfellum, til dæmis í auglýsingum, og að þekktasta gerð sefjunar sé dáleiðsla. Samheiti: blíðka, deyfa, draga úr, hægja, létta, líkna, lægja, milda, minnka, mýkja, sefa, slaka á, svía; hlýna „Það sem við listamennirnir eigum að gera er aðeins þetta: Vera Guði til ánægju og reyna að sannfæra fólk um að það sé einhver tilgangur með þessu. – Jóhannes Sveinsson Kjarval 49 ára 58 ára 48 ára laddi Starf: Leikari, grínisti, tónlistarmaður Fæddur: 20. janúar 1947 Hilmir snær Guðnason Starf: Leikari Fæddur: 24. janúar 1969 Guðmundur Guðmundsson Starf: Handboltaþjálfari Fæddur: 23. desember 1960 linda blöndal Starf: Fjölmiðlakona Fædd: 22. janúar 1970 71 árs Afmælisbörn vikunnar Orðabanki Birtu: Að sefa, róa og milda london - miðVikudaGurinn 15. áGúst 1945 Georg 6. Bretakonungur setti breska þingið í dag. Að venju lýsti hann við það tækifæri stefnu ríkisstjórnarinnar í aðalatriðum. Sagði konungur, að alt kapp yrði lagt á það, að heimflutningi breskra stríðsfanga í Austurálfu yrði hraðað sem mest. Lögð yrðu fyrir þingið frumvörp um endurskoðun iðn- reksturs Bretlands og aukna útflutnings- verslun. Myndi í þessum efnum verða gripið til aukins eftirlits eða þjóðnýt- ingar. Englandsbanki yrði þjóðnýttur, svo og kolanámur landsins. Þá yrðu gerðar ráðstafanir til þess að bæta úr húsnæðisvandræðun- um í landinu. Yrði hafist handa um skipulagðar húsasmíðar og framleiðslu byggingarefna. Þá yrði komið á víðtækri fjelagsmálalöggjöf. Heilbrigð- ismálalöggjöf landsins yrði látin koma til framkvæmda. Stjórnin myndi vinda að því bráðan bug, að Indland fengi sjálfsstjórn. Loks myndi bráð- lega þess vera farið á leit við þingið, að það staðfesti skipulagsskrá hinna sameinuðu þjóða, sem gerð var á ráðstefnunni í San Francisco. Konungshjónin hylt Geysilegur mannfjöldi hylti konungs- hjónin fyrir utan þinghúsið, er þau komu þangað og fóru þaðan. Fyrir utan konungshöllina safnaðist mikið mannhaf síðar um daginn. Urðu konungshjónin að koma þrisvar út á hallarsvalirnar til þess að sefa mannfjöldann. Attlee forsætisráðherra og þrír yfir- menn herforingjaráðs Breta gengu á fund konungs og báru fram heillaóskir sínar í tilefni sigursins. Skömmu síðar gekk Churchill, forvígismaður stjórn- arandstöðunnar, fyrir konung í sömu erindagerðum. (Tímarit.is)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.