Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Page 72
72 Helgarblað 19. janúar 2018
49, ekki 50
49 morð játaði Kanada-
maðurinn Robert William
Pickton játaði á sig 49 morð
eftir að hann var handtek-
inn árið 2002. Segir sagan að
það hafi hann gert í samtali
við samfanga sem í raun var
laganna vörður. Haft var eft-
ir Pickton að hann hefði vilja
ná að fremja eitt morð í við-
bót til að ná 50 fórnarlömb-
um, en, að eigin sögn, kost-
aði kæruleysi hans það
markmið. Tilviljun olli því
að upp komst um morðferil
Pickton sem hafði staðið frá
1983–2002. Hann gróf lík-
amsleifar fórnarlambanna á
svínabúi sínu skammt fyrir
utan Vancouver.
81 81 árs rússnesk kona féll fyrir hendi barnabarns síns í janúar 2007. Maðurinn, frá Karelíu-héraði, skammt frá Finnlandi, viðurkenndi að hafa stungið ömmu sína því þau voru ósammála um hvaða
sjórnvarpsstöð ætti að horfa á. Hann sagðist hafa verið drukkinn þegar þetta
átti sér stað.
Núðlur í mat-
inn, aftur?
Tyrkneskur maður frá
Trabzon, borg í norðaustur-
hluta Tyrklands, sagði lög-
reglu, í byrjun árs 2007, að
hann hefði myrt eiginkonu
sína með hamri. Sagði mað-
urinn, 53 ára að aldri, að
það hefði hann gert vegna
þess að hún hefði í heilan
mánuð eingöngu boðið upp
á núðlur í matinn. „Þetta var
óþolandi,“ sagði maðurinn.
Það voru nágrannar hjón-
anna sem fundu illa leikið
lík hennar.
Sakamál
Banvæni Bakarinn
n Meriama fékk draumastarf n Ofnæmi gerði henni lífið leitt
I
lmurinn af nýbökuðu brauði
er nánast dýrðlegur og í huga
margra hlýtur það að vera
indælt hlutskipti að baka brauð
og annað bakkelsi. Án efa má það
til sanns vegar færa í mörgum til-
fellum, en sú var ekki raunin hjá
Meriama Yaya.
Meriama kom til Frakklands frá
Alsír, ung kona. Hún giftist, eign-
aðist börn með manni sínum og
með iðjusemi og sparnaði náðu
hjónakornin að eignast eigin íbúð.
Með tíð og tíma fluttu börnin að
heiman eitt af öðru og í kringum
2007 var svo komið að Meriama
hugsaði með sér að hún þyrfti að
finna sér eitthvað að starfa.
Draumastarf
Innan tíðar rakst Meriama á aug-
lýsingu sem höfðaði til hennar. Um
var að ræða stöðu afgreiðslumann-
eskju í litlu bakaríi, Cho do re, ekki
langt frá heimili Meriama í Saint-
Etienne í miðaustur hluta
Frakklands.
Launin voru reyndar
ekki nema rétt rúmlega
100 evrur á viku, en það
skipti Meriama ekki höf-
uðmáli. Bakaríið var ekki
mikið fyrir augað en stát-
aði af tryggum hópi við-
skiptavina, sem fljótlega
fannst hver dagur nánast
ófullkominn ef þeir upp-
lifðu ekki vingjarnlegt fas
og geislandi bros nýju af-
greiðslukonunnar.
Slæmt ofnæmi
Sjálf var Meriama himin-
lifandi en svo kom reiðar-
slagið. Meriama þoldi ekki
hinn fína salla sem mynd-
aðist þegar deigið var
hnoðað. Ofnæmið var slíkt
að hendur hennar bólgn-
uðu upp, hún gat vart séð
og átti erfitt með andardrátt.
Það eina í stöðunni, að sögn
lækna, var að taka frí og
reyna að jafna sig.
Það gerði Meriama og árið
2008, heilu ári síðar, treysti hún sér
til að snúa aftur til starfa. Í millitíð-
inni hafði margt breyst. Bakaríið
hafði verið selt 27 ára manni,
Jérome Mounier, sem ákvað frá
fyrstu stundu að honum líkaði
ekki við Meriama.
Nýr eigandi
Í fjarveru Meriama hafði Jérome
vanist því að vinna einn og ef hann
þurfti aðstoð leitaði hann til fjöl-
skyldu sinnar um hana. Hann
sá enga hagkvæmni í að hafa
Meriama í bakaríinu og þurfa að
greiða 113 evrur aukalega á viku.
En lögin voru Meriama hliðholl
og samkvæmt þeim bar Jérome að
taka hana í vinnu að loknu veik-
indaleyfi hennar.
Til að bæta gráu ofan á svart tók
ofnæmið sig upp aftur, nú verr en
áður, og eins og það væri ekki nóg
þá andaðist eiginmaður Meriama
um svipað leyti.
Vildi uppsögn
Meriama varð ljóst að við þetta
yrði ekki búið; hún gæti ekki unnið
hjá Jérome í ljósi alls og alls. Hún
sagði við Jérome að best væri að
hann ræki hana, þá gæti hún kom-
ist á atvinnuleysisbætur.
Jerome varð hvumsa og sagði:
„Kemur ekki til mála. Af hverju
getur þú ekki sagt upp og látið þig
hverfa?“ Þegar Meriama útskýrði
fyrir honum að þá myndi hún
missa allar bætur yppti hann ein-
faldlega öxlum.
Jérome virðist taka sönsum
Í örvæntingu hafði Meriama sam-
band við stéttarfélag sitt og fulltrúi
þess hafði samband við Jérome.
Þá virtist Jérome taka sönsum og
sagði hann við Meriama: „Allt í
lagi. Komdu miðvikudaginn 14.
maí [2008], í hádeginu og ég verð
þá með bréf fyrir þig, þess efnis að
staða þín hefði verið lögð niður og
þú hefðir því ekkert starf hér leng-
ur.“
Meriama fagnaði þessum mála-
lyktum og kom næsta
miðvikudag í bakaríið á
umsömdum tíma. Hún
fór inn um bakdyr bak-
arísins og sást ekki á lífi
eftir það.
Árangurslaus leit
Um kvöldið urðu börn
Meriama áhyggjufull enda reynt
árangurslaust að ná í hana. Þau
fóru meðal annars að bakaríinu,
þar var allt lokað og læst en fyrir
utan var bíll Meriama með opna
glugga. Að lokum var farið til lög-
reglunnar og leit hófst.
Um morguninn var rætt við
Jérome; jú, Meriama hafði litið við
hjá honum daginn áður og hann
hafði heyrt í bíl rétt eftir að hún
yfir gaf bakaríið.
Lögreglumenn báðu um leyfi
til að svipast um innandyra og var
það auðsótt mál.
Blóðugur klútur
Bakaríið var með ólíkindum vel
þrifið, hvergi rykkorn að sjá, en
engu að síður fann lögreglan blóð-
ugan klút. Bíll Jérome hafði einnig
verið þrifinn hátt og lágt.
Þegar lögreglan sýndi Jérome
klútinn varð hann niðurlútur.
Hann ku hafa sest niður fyrir utan
bakaríið og hvíslað: „Ég drap hana.
Ég sló hana með járnröri og kyrkti
hana svo. Ég hellti sýru á andlit
hennar svo hún yrði óþekkjanleg.“
Jérome sagði að hann hefði
ekið með líkið á hauga fyrir utan
bæinn og hent því þar. Mikið rétt;
þar í haug af rusli fundust líkams-
leifar Meriama.
Banvænt bræðiskast
Við réttarhöld í málinu í byrjun
árs 2011 sagði Jérome: Ég sá sjálf-
an mig veita höggin eins og ég
væri einhver annar.“ Sagði hann
að hann hefði fyllst mikilli reiði,
fundið snúru, vafið henni um háls
Meriama. „Ég steig á andlit hennar
og herti að.“
Í byrjun mars 2011 var kveðinn
upp dómur yfir Jérome Mounier
og var hann dæmdur til 20 ára
fangelsisvistar fyrir morð sem
aldrei hefur fengist skýring á hví
var framið. n
Meriama Yaya Var eftirlæti viðskiptavina Cho
do re.
„Kemur ekki til
mála. Af hverju
getur þú ekki sagt upp og
látið þig hverfa?
Vinnustaður
Meriama Síðasti
viðkomustaður hennar
í lifanda lífi.