Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Qupperneq 72

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2018, Qupperneq 72
72 Helgarblað 19. janúar 2018 49, ekki 50 49 morð játaði Kanada- maðurinn Robert William Pickton játaði á sig 49 morð eftir að hann var handtek- inn árið 2002. Segir sagan að það hafi hann gert í samtali við samfanga sem í raun var laganna vörður. Haft var eft- ir Pickton að hann hefði vilja ná að fremja eitt morð í við- bót til að ná 50 fórnarlömb- um, en, að eigin sögn, kost- aði kæruleysi hans það markmið. Tilviljun olli því að upp komst um morðferil Pickton sem hafði staðið frá 1983–2002. Hann gróf lík- amsleifar fórnarlambanna á svínabúi sínu skammt fyrir utan Vancouver. 81 81 árs rússnesk kona féll fyrir hendi barnabarns síns í janúar 2007. Maðurinn, frá Karelíu-héraði, skammt frá Finnlandi, viðurkenndi að hafa stungið ömmu sína því þau voru ósammála um hvaða sjórnvarpsstöð ætti að horfa á. Hann sagðist hafa verið drukkinn þegar þetta átti sér stað. Núðlur í mat- inn, aftur? Tyrkneskur maður frá Trabzon, borg í norðaustur- hluta Tyrklands, sagði lög- reglu, í byrjun árs 2007, að hann hefði myrt eiginkonu sína með hamri. Sagði mað- urinn, 53 ára að aldri, að það hefði hann gert vegna þess að hún hefði í heilan mánuð eingöngu boðið upp á núðlur í matinn. „Þetta var óþolandi,“ sagði maðurinn. Það voru nágrannar hjón- anna sem fundu illa leikið lík hennar. Sakamál Banvæni Bakarinn n Meriama fékk draumastarf n Ofnæmi gerði henni lífið leitt I lmurinn af nýbökuðu brauði er nánast dýrðlegur og í huga margra hlýtur það að vera indælt hlutskipti að baka brauð og annað bakkelsi. Án efa má það til sanns vegar færa í mörgum til- fellum, en sú var ekki raunin hjá Meriama Yaya. Meriama kom til Frakklands frá Alsír, ung kona. Hún giftist, eign- aðist börn með manni sínum og með iðjusemi og sparnaði náðu hjónakornin að eignast eigin íbúð. Með tíð og tíma fluttu börnin að heiman eitt af öðru og í kringum 2007 var svo komið að Meriama hugsaði með sér að hún þyrfti að finna sér eitthvað að starfa. Draumastarf Innan tíðar rakst Meriama á aug- lýsingu sem höfðaði til hennar. Um var að ræða stöðu afgreiðslumann- eskju í litlu bakaríi, Cho do re, ekki langt frá heimili Meriama í Saint- Etienne í miðaustur hluta Frakklands. Launin voru reyndar ekki nema rétt rúmlega 100 evrur á viku, en það skipti Meriama ekki höf- uðmáli. Bakaríið var ekki mikið fyrir augað en stát- aði af tryggum hópi við- skiptavina, sem fljótlega fannst hver dagur nánast ófullkominn ef þeir upp- lifðu ekki vingjarnlegt fas og geislandi bros nýju af- greiðslukonunnar. Slæmt ofnæmi Sjálf var Meriama himin- lifandi en svo kom reiðar- slagið. Meriama þoldi ekki hinn fína salla sem mynd- aðist þegar deigið var hnoðað. Ofnæmið var slíkt að hendur hennar bólgn- uðu upp, hún gat vart séð og átti erfitt með andardrátt. Það eina í stöðunni, að sögn lækna, var að taka frí og reyna að jafna sig. Það gerði Meriama og árið 2008, heilu ári síðar, treysti hún sér til að snúa aftur til starfa. Í millitíð- inni hafði margt breyst. Bakaríið hafði verið selt 27 ára manni, Jérome Mounier, sem ákvað frá fyrstu stundu að honum líkaði ekki við Meriama. Nýr eigandi Í fjarveru Meriama hafði Jérome vanist því að vinna einn og ef hann þurfti aðstoð leitaði hann til fjöl- skyldu sinnar um hana. Hann sá enga hagkvæmni í að hafa Meriama í bakaríinu og þurfa að greiða 113 evrur aukalega á viku. En lögin voru Meriama hliðholl og samkvæmt þeim bar Jérome að taka hana í vinnu að loknu veik- indaleyfi hennar. Til að bæta gráu ofan á svart tók ofnæmið sig upp aftur, nú verr en áður, og eins og það væri ekki nóg þá andaðist eiginmaður Meriama um svipað leyti. Vildi uppsögn Meriama varð ljóst að við þetta yrði ekki búið; hún gæti ekki unnið hjá Jérome í ljósi alls og alls. Hún sagði við Jérome að best væri að hann ræki hana, þá gæti hún kom- ist á atvinnuleysisbætur. Jerome varð hvumsa og sagði: „Kemur ekki til mála. Af hverju getur þú ekki sagt upp og látið þig hverfa?“ Þegar Meriama útskýrði fyrir honum að þá myndi hún missa allar bætur yppti hann ein- faldlega öxlum. Jérome virðist taka sönsum Í örvæntingu hafði Meriama sam- band við stéttarfélag sitt og fulltrúi þess hafði samband við Jérome. Þá virtist Jérome taka sönsum og sagði hann við Meriama: „Allt í lagi. Komdu miðvikudaginn 14. maí [2008], í hádeginu og ég verð þá með bréf fyrir þig, þess efnis að staða þín hefði verið lögð niður og þú hefðir því ekkert starf hér leng- ur.“ Meriama fagnaði þessum mála- lyktum og kom næsta miðvikudag í bakaríið á umsömdum tíma. Hún fór inn um bakdyr bak- arísins og sást ekki á lífi eftir það. Árangurslaus leit Um kvöldið urðu börn Meriama áhyggjufull enda reynt árangurslaust að ná í hana. Þau fóru meðal annars að bakaríinu, þar var allt lokað og læst en fyrir utan var bíll Meriama með opna glugga. Að lokum var farið til lög- reglunnar og leit hófst. Um morguninn var rætt við Jérome; jú, Meriama hafði litið við hjá honum daginn áður og hann hafði heyrt í bíl rétt eftir að hún yfir gaf bakaríið. Lögreglumenn báðu um leyfi til að svipast um innandyra og var það auðsótt mál. Blóðugur klútur Bakaríið var með ólíkindum vel þrifið, hvergi rykkorn að sjá, en engu að síður fann lögreglan blóð- ugan klút. Bíll Jérome hafði einnig verið þrifinn hátt og lágt. Þegar lögreglan sýndi Jérome klútinn varð hann niðurlútur. Hann ku hafa sest niður fyrir utan bakaríið og hvíslað: „Ég drap hana. Ég sló hana með járnröri og kyrkti hana svo. Ég hellti sýru á andlit hennar svo hún yrði óþekkjanleg.“ Jérome sagði að hann hefði ekið með líkið á hauga fyrir utan bæinn og hent því þar. Mikið rétt; þar í haug af rusli fundust líkams- leifar Meriama. Banvænt bræðiskast Við réttarhöld í málinu í byrjun árs 2011 sagði Jérome: Ég sá sjálf- an mig veita höggin eins og ég væri einhver annar.“ Sagði hann að hann hefði fyllst mikilli reiði, fundið snúru, vafið henni um háls Meriama. „Ég steig á andlit hennar og herti að.“ Í byrjun mars 2011 var kveðinn upp dómur yfir Jérome Mounier og var hann dæmdur til 20 ára fangelsisvistar fyrir morð sem aldrei hefur fengist skýring á hví var framið. n Meriama Yaya Var eftirlæti viðskiptavina Cho do re. „Kemur ekki til mála. Af hverju getur þú ekki sagt upp og látið þig hverfa? Vinnustaður Meriama Síðasti viðkomustaður hennar í lifanda lífi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.