Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Blaðsíða 28
28 Helgarblað 26. janúar 2018 Tímavélin Gamla auglýsinginVísir, maí 1918 V eturinn 1917 til 1918 er kall- aður Frostaveturinn mikli og hefur nánast goðsagna- kenndan blæ. Heilt yfir var veturinn kaldur en viðurnefnið kom til vegna mikils kuldakasts sem hófst á þrettándanum og stóð yfir í mánuð. DV ræddi við Þór Jak- obsson veðurfræðing um hörkurn- ar sem opnuðu eitt viðburðaríkasta ár Íslandssögunnar. Ískalt loft streymdi yfir hafísinn Haustmánuðirnir árið 1917 voru kaldir, mun kaldari en vanalega, og gáfu fyrirheit um það sem var í vændum. Fyrstu dagar ársins 1918 voru þó svikullega mildir. Þann 6. janúar hófst síðan hið mikla kuldakast. Þór segir: „Norðan- átt hafði ríkt lengi en um þetta leyti var mjög mikill hafís í Græn- landssundi og þar fyrir norðan, við Austur-Grænland og Svalbarða og þar austur af í Barentshafi. Loftið var því ískalt í orðsins fyllstu merk- ingu þegar það streymdi yfir Ís- land og með norðanáttinni kom svo þessi mikli hafís til landsins.“ Kuldakastið varði þó ekki allan veturinn, heldur aðeins í þrjár vikur sunnanlands og fjórar norðanlands. „Norðanátt var ríkjandi í aðdraganda kuldakastsins en það sljákkaði í raun fljótt í henni strax í febrúar.“ Þór seg- ir að varasöm stórviðri hafi ekki fylgt kastinu en mikil fannkoma. Yfir landinu öllu var háþrýstisvæði og því veðurfar almennt stillt. Þann 21. janúar gekk Sigurð- ur Kristjánsson bóndi á Gríms- stöðum á Fjöllum út til að aðgæta hitastigið. Sýndi mælirinn þá 37,9 gráðu frost sem var Íslandsmet og hefur ekki verið slegið síðan. Reyndar eru áhöld uppi um hvort lægri hiti hafi mælst á Möðrudal sama dag, 38 gráður, en bóndinn þar hafði ekki jafn fullkomin mæli- tæki. Síðan þá hefur hitastig aldrei farið undir 35 gráðu frost, kaldast við Mývatn 7. mars árið 1998, 34,7 gráður í mínus. Þór bendir á að hugtakið „Frostaveturinn mikli“ hefði fram að þessu verið notað um veturinn 1880 til 1881 sem var fimbulkald- ur og mikill hafísvetur. Eftir 1918 hafi lýsingarorðið „mikli“ færst yfir. „Kannski er best að sleppa lýs- ingarorðunum og láta nægja að tala um Frostaveturinn 1881 og Frosta- veturinn 1918. Fyrr á tímum fundu menn upp á því að kalla eftirminni- lega vetur ýmsum nöfnum, eins og Lurk, Lurkavetur eða Þjóf sem eru nöfn á harðindavetrinum 1600 til 1601, einhverjum harðasta vetri sem hefur dunið yfir hér á landi.“ Við hungurmörk Þrátt fyrir þetta mikla frost er ekki vitað til þess að neinn hafi dáið beinlínis vegna þess. „Til allrar hamingju varð enginn úti og mér er ekki kunnugt um að slys hafi orðið á mönnum. Þurfti þó að leggja ýmislegt á sig. Til dæmis urðu skip innlyksa í ísnum og skipverjar lentu í basli.“ Þessi miklu frost höfðu vitaskuld mikil áhrif á landsmenn. Elds- neytisskortur til húshitunar var sér- staklega mikið vandamál. Heims- styrjöldin orsakaði skort á eldiviði og sá sem kom hingað var seldur á uppsprengdu verði, eins og stend- ur í dagblaðinu Fram 2. febrúar, „til lítils sóma fyrir þá sem verðleggja.“ Íslendingar gripu til þess ráðs að taka mó en tekjan gekk jafnan illa og var mónum oft stolið. Á þessum árum var kreppuá- stand á Íslandi og þá sérstaklega í Reykjavík. Atvinnuleysi, húsnæðis- skortur og matarskortur var viðvar- andi vandamál. Dreifa þurfti mál- tíðum í hundraðatali í Reykjavík til að forða bænum frá hungursneyð. Fólk gat ekki veitt sér til matar vegna hafíssins. Slökkt var á gasluktum og vatnsleiðslur sprungu vegna frostanna. Áhrif vetrarins komu betur í ljós á landsbyggðinni þegar þiðnaði um vorið því að þá voru túnin mjög illa farin eftir frostið og tekjur mjög slæmar um sumarið. Æsileg rimma við bjarndýr Nú til dags koma ísbirnir hingað til lands með hafís á nokkurra ára fresti. Eru þeir þá jafnan eltir uppi og skotnir og sitt sýnist hverjum um það. Skrásettar hafa verið um 250 komur ísbjarna hér á landi frá því að land byggðist, 27 af þeim frostaveturinn mikla árið 1918 þegar hafísinn veitti þeim greiðan aðgang að landinu. Reyndar komu talsvert fleiri veturinn 1880 til 1881, eða 63 talsins. Að mæta bjarndýri gat verið stórhættulegt eins og dæmi Krist- jáns Jónssonar, bóndans á Eld- járnsstöðum á Langanesi, sýnir. Morguninn 18. janúar 1918 gekk hann til brunns eftir vatni nokkurn spöl frá bænum og sá þá hvíta skepnu sem hann taldi vera stóra kind. Þegar hann kom að stóð dýr- ið upp og reyndist vera ísbjörn og tók bóndi þá á rás og dýrið á eftir. Kristján hljóp æpandi inn í bæinn en náði ekki að loka á eftir sér og bjarndýrið fylgdi á eftir. En þá komu tveir heimilishundar aðvífandi og beindist athygli bjarndýrsins að þeim og bóndi komst undan og inn hliðargang að baðstofunni. Bardagi bjarndýrsins og hund- anna tveggja barst nú inn ann- an hliðargang sem lá að heim- ili annarrar fjölskyldu þar sem ein stúlka var inni. Þegar bar- dagaskepnurnar brutust þar inn náði hún að komast upp á loft og yfir til Kristjáns. Hlupu þau í úti- hús og létu alla vita af birninum og fóru þá allir upp á þak bæjarins. Í Morgunblaðinu segir: „Þau hafa skamma stund á bænum dvalið er þau sjá bangsa stinga hausnum út um rúðu á glugga.“ Hófst þá mik- ill ærslagangur og barningur og einn hundurinn varð birninum að bráð. Náði einn mannanna loks að skjóta björninn í höfuðið þar sem hann sat og át hundinn. Ekki mögulegt í dag Þór segir að veturinn eftir hafi ver- ið nokkuð kaldur en langtum bæri- legri og á engan hátt sögulegur. Eins og áður segir hefur viðlíka kulda- kast ekki komið síðan. Þór segir ekki mögulegt að viðlíka kuldakast geti komið við núverandi aðstæð- ur. „Það vill svo til að hafísinn við Austur-Grænland, í Barentshafi fyrir austan Svalbarða og yfirleitt í Norður-Íshafi hefur minnkað mik- ið síðustu tvo áratugina og ískalt loft yfir ísbreiðunum nær að hitna yfir auðu hafinu leggi það leið sína suður til Íslands. Það yrði aldrei jafn ægilega kalt og árið fræga 1918 og hafísinn yrði ekki jafn ágengur við strendur Íslands og þá.“ n Muggur vekur athygli Myndlistarmaðurinn Guð- mundur Thorsteinsson frá Bíldudal, betur þekktur sem Muggur, vakti athygli þegar hann hélt sýningu í barna- skólanum við Tjörnina sem einstaklega vel var látið af. Muggur var talinn fjölhæfur málari en sérstaklega þekkt- ur fyrir málverk byggð á ís- lenskum þjóðsögum. Í seinni tíð hefur hann aðallega verið þekktur fyrir myndskreytingar á tveimur af þekktustu barna- bókum Íslands, sögunni um Dimmalimm og hinni al- ræmdu Tíu litlir negrastrákar. Þá myndskreytti hann einnig einn þekktasta spilabunka sem komið hefur út hér á landi. Muggur lést sex árum eftir sýn- inguna í barnaskólanum, að- eins 32 ára gamall, úr berklum. Ítrekað kveikt í húsi þingmanns Þann 4. desember árið 1918 blossaði upp eldur á heimili Guðmundar Björnssonar þing- manns og starfandi landlæknis. Enginn var heima en slökkvi- lið náði að slökkva eldinn áður en hann gereyðilagði húsið. Allmiklar skemmdir urðu þó. Talið var að eldsupptökin hafi verið í fataskáp á efstu hæð og var þetta í fimmta eða sjötta sinn sem eldur hafði kviknað í íbúðinni af undarlegum or- sökum. Tveimur dögum síð- ar kviknaði aftur í hjá Guð- mundi en þá í útihúsi, austan við íbúðarhúsið. Voru menn þá fullvissir að um íkveikju væri að ræða. Vörður var settur við húsið og brennuvargsins leitað. árið 1918 n Reykvíkingar við hungurmörk n 38 gráðu frost n Bardagar við bjarndýr „Loftið ískalt í orðsins fyllstu merkingu þegar það streymdi yfir Ísland“ Frostaveturinn mikli 1918: Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is „Þau hafa skamma stund á bænum dvalið er þau sjá bangsa stinga hausnum út um rúðu á glugga. Þór Jakobsson „Kannski er best að sleppa lýsingarorðunum og láta nægja að tala um Frostaveturinn 1881 og Frostaveturinn 1918“ Frostaveturinn Lagnaðarís í Reykjavíkurhöfn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.