Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Blaðsíða 74

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Blaðsíða 74
74 lífsstíll - ferðalög Helgarblað 26. janúar 2018 - Þetta eru mun ódýrari valkostir - Gleymdu London, París og New York Á r eftir ár tróna borgir á borð við London, París og New York á toppnum yfir vin- sælustu ferðamannastað- ina. Það er að sjálfsögðu ekki að undra enda standa þessar borgir ávallt fyrir sínu. En jafnvel þó að aðeins sé skroppið í helgarferð til einhverra af þessum borgum þá er buddan ansi fljót að tæmast. Því er ekki galið að líta til annarra borga í Evrópu og Bandaríkjunum þar sem einnig má finna fjölbreytt framboð af afþreyingu, menningu, veitingastöðum og verslunum en á mun viðráðanlegra verði fyrir hinn almenna Íslending. n Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Toronto í staðinn fyrir New York „Borgin sem aldrei sefur“ er sígildur áfangastaður í Bandaríkjunum. Verðlag á hótelum, söfnum, skemmtunum, mat og áfengi er hins vegar með því hæsta sem þekkist, ekki aðeins í Bandaríkjunum heldur á heimsvísu. Þeir sem eru í leit að fjölbreyttum veitingastöðum, skemmtilegum hverfum og iðandi menningar- og leikhúslífi ættu einnig að líta til Toronto en kanadíska borgin er síst lakari en New York þegar kemur að fjölmenningu. Bæði Icelandair og WOW air bjóða upp á beint flug til Pearson-flugvallar frá Keflavík. Sem dæmi má nefna að yfir 200 tungumál eru töluð í borginni auk þess sem meira en helmingurinn íbúa samanstendur af hinum ýmsu minnihlutahópum. Þá skilar hátt hlutfall innflytjenda frá Suður-Asíu, Kína og Filippseyjum sér í ríkulegri matarmenningu en Toronto á sitt Kínahverfi rétt eins og New York. Þá er verðlag á máltíðum, skemmtunum og samgöngum hagstæðara en gengur og gerist auk þess sem samgöngukerfið þykir afar þægilegt í notkun. Bangkok í staðinn fyrir Hong Kong Milljónir ferðamanna flykkjast til Hong Kong á hverju ári og ekki að ástæðulausu, hvort sem það eru stórbrotnir skýjakljúfar, heillandi saga eða fjölbreytt mannlíf. En buddan tæmist hratt á meðan dvalið er í borginni. Október og nóvember eru vinsælustu mánuðirnir til að heim- sækja Hong Kong enda er hitastigið þá þolanlegast en um leið rýkur verðlagið upp í hæstu hæðir og er meðalverð á hótelgistingu í kringum 25 þúsund krónur á nótt. Þá er verð á veitingastöðum sambærilegt við það sem hægt er að finna í New York og London. Á meðan er hótelverð yfirleitt helmingi lægra í höfuðborg Taílands auk þess sem máltíð á hefðbundnum veitingastað kostar sjaldan meira en 1.500 krónur. Þá er einnig óhætt að fullyrða að í Bangkok er hægt að finna allt litróf mannlífsins. Ferðamenn verða ekki sviknir af stöðum á borð við Grand Palace, gamla konungssvæðið eða Wat Po, hofið þar sem þriðja hæsta Búddalíkneskið er þakið 24 karata gullblöðum Bangkok er borg andstæðna. Þú getur keypt núðlur frá götusala eða fínan kvöldverð á veitingastað sem er staðsettur á toppi háhýsis. Hægt er að finna allt frá skítugum flóamörkuðum upp í fínustu verslunarmiðstöðvar svo ekki sé minnst á skemmtistaðina sem spanna allt frá furðulegum neðanjarðarstöðum í Rauða hverfinu upp í heimsklassa klúbba. Fyrir þá sem vilja versla má einnig benda á að hægt er að kaupa merkjavöru á afar hagstæðu verði í borginni auk þess sem hægt er að gera kjarakaup á hinum ýmsu götumörkuðum. Berlín í staðinn fyrir London Heimsborgin London stendur alltaf fyrir sínu enda miðstöð menningar og skemmtunar svo ekki sé minnst á úrval verslana og ógleymanlega ferðamannastaði. Borgin nýtur þó einnig þess vafasama heiðurs að vera ein dýrasta ferðamannaborg Evrópu. Nóttin á þriggja stjörnu hóteli er sjaldnast undir 15 til 20 þúsund krónum og þá kosta samgöng- ur sitt svo ekki sé minnst á miða á vinsæla söngleiki. Á meðan er verðlagið í höfuðborg Þýskalands almennt talið hagstæðast af öllum borgum í Evrópu. Borgin er ekki síðri valkostur fyrir þá sem vilja upplifa ólík menn- ingaráhrif, fjölbreytt söfn, heillandi hverfi og litríkt mannlíf. Nótt á þriggja stjörnu hóteli kostar sjaldnast meira en 10 þúsund krónur auk þess sem verð á samgöngum, skemmtunum, mat og áfengi er mun lægra en í London. Icelandair og WOW air bjóða bæði upp á beint flug til Berlínar allt árið um kring. Madríd í staðinn fyrir París Parísarborg heillar ferðalanga upp úr skónum enda má þar finna sögufrægar byggingar, heimsþekkt söfn og einstaklega rómantískt andrúmsloft. Borgin er jafnframt með þeim dýrustu í Evrópu en verð á þokkalegu hótelherbergi miðsvæðis er sjaldan undir 20 þúsund krónum. Þá kostar sitt að snæða á veitingastöðum auk þess sem yfirleitt er rukkaður aðgangseyrir að vinsælustu ferðamannastöðunum. Madríd er einkar fögur rétt eins og París en borgin er að mörgu leyti mun viðráðanlegri auk þess sem íbúarnir þykja oft á tíðum vingjarnlegri og hjálpsamari. Borgin er einnig mun hentugri fyrir ferðalanga sem kjósa að vera að mestu leyti fótgangandi. Rétt eins og París býr Madríd yfir langri og heillandi sögu og ævafornri byggingarlist. Þá má jafnframt finna þar heimsklassa listasöfn og gallerí svo ekki sé minnst á næturlífið. Madríd er einnig ódýrari en margar höfuðborgir í Evrópu og þá sérstaklega þegar kemur að hótelgistingu. Þá er víst að hægt er að snæða þriggja rétta máltíð á fínum veitingastað fyrir helmingi lægri upphæð en á sambærilegum stað í frönsku höfuðborginni. Norwegian Air býður upp á beint flug til Madríd frá Keflavík auk þess sem Icelandair flýgur beint til borgarinnar frá 3. júní til 16. september.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.