Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Blaðsíða 42
Útlit og heilsa Helgarblað 26. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ Stefán Michaelsson og Pálína Pálsdóttir eru eigendur True Viking Fitness, sem er heima- síða sem býður upp á fjarþjálfun fyrir alla á hagstæðu verði. Þau vinna bæði sem einkaþjálfarar í World Class og eru að fara eftir fimm vikur á Arnold Classic í Bandaríkjunum bæði sem keppendur og þjálfarar. „True Viking Fitness byggist upp af þeirri ástríðu okkar að breyta lífsstíl fólks til hins betra, bæði líkamlega og andlega,“ segir Stefán, en hann og Pálína hafa bæði langan bakgrunn í íþróttum og þjálfun og ástundun heilbrigðs lífsstíls. Pálína er að klára BA-ritgerð í sálfræði og Stefán BA- ritgerð í íþróttafræði. True Viking Fitness – fjarþjálfun fyrir alla á hentugu verði Á heimasíðunni er boðið upp á æfingar, sem eru á hentugu verði fyrir alla, þar sem Stefán og Pálína vilja að fjarþjálfun sé aðgengileg fyrir alla óháð efnahag. Þar er boðið upp á nokkur prógrömm, bæði fyrir byrjendur og lengra komna, sérstakt prógramm er til að þjálfa rassinn, enda vinsælt að vera með fallegan afturenda. Vefsíðan er á ensku, þrátt fyrir að vera alíslensk. „Okkur langar að nota Ísland sem stökkpall til að bjóða fjarþjálfun erlendis, þess vegna er heimasíðan á ensku,“ segir Pálína. Líkamsrækt á að vera hluti af dag- legum lífsstíl „Það er frábært að sjá hvað margir eru í ræktinni í janúar, en að sama skapi er leiðinlegt að sjá að strax í febrúar eru margir hættir að mæta,“ segir Pálina. „Ræktin ætti frekar að vera hluti af daglegu lífi. Þetta er langhlaup ekki spretthlaup. „Allir kostir eru góðir kostir, svo lengi sem þú ert í miðjunni,“ sagði Aristóteles, það er gullni vegurinn sem gildir í öllu.“ Pálína segir algengt að fólk sé með bólgur og bjúg í kringum liði þrátt fyrir að vera í góðu líkamlegu ásigkomulagi, sem er ekki eðlilegt, en er til komið út af álagi í ræktinni og því að fólk drekkur ekki nóg af vatni. „Við erum líka mikið að læsa liðun- um og þá myndast bólgur í kringum liðina og það kemur eiginlega ekki fyrir að viðskiptavinur sem kemur til mín sé ekki með bólgur. Það væri gott jafnvægi á móti að stunda jóga 1–2 í viku.“ „Ég lifi fyrir sigrana hjá öðrum,“ segir Stefán aðspurður af hverju hann byrjaði að þjálfa aðra í stað þess að keppa og æfa bara sjálfur. Tilvitnun sem þau halda upp á er „No Lamb for the Lazy Wolf“ eða Lati úlfurinn fær ekki lamb, sem þýðir að sá sem hefur ekki fyrir hlutunum uppsker ekki. „Ég byrjaði að lyfta fyrir tíu árum, þegar ég var nýbúin að eiga son minn, en ég var alltaf frekar feit sem barn og unglingur. Ég þurfti einnig að vinna mikið í mér andlega, en allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi og það er ekki gefist upp, “ segir Pálína og segist jafnframt hafa gríðarlegan áhuga á mannslíkamanum í heild sinni. Þau vinna vel saman sem par og með áhugamál þeirra beggja að leiðarljósi: áhugann á fólki og að hjálpa þeim til betra lífs líkamlega, andlega og sálfræðilega. Heimasíða: truevikingfitness.com og Instagram: truevikingfitness. Pálína og Stefán eru bæði virk á samfélagsmiðlum og má fylgjast með þeim þar. Snapchat Pálínu:poll- ieanna777 og Instagram: alpha_val- kyrie. Instagram Stefáns: v1k1ng13. Ég lifi fyrir sigrana hjá öðrum TRUE VIKING FITNESS FJARÞJÁLFUN Á HENTUGU VERÐI FYRIR ALLA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.