Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Blaðsíða 33
Útlit og heilsa 26. janúar 2018 KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is BOOZTBARINN Leiðandi í skyrdrykkjum og öðrum heilsudrykkjum Það er mikil hreyfing í samfélaginu í átt til aukinnar hollustu og Booztbarinn hefur á margan hátt verið leiðandi í þeirri þró- un enda hefur hann starfað allt frá árinu 2003, er fyrsti Booztbarinn var opnaður í Kringlunni. „Við vorum í nokkrum ólgusjó í byrjun því þessir skyrdrykkir voru mikil nýjung á Íslandi. Við opnuðum síðan staðinn í Borgartúninu árið 2007,“ segir Kristinn Ingi Sig- urjónsson hjá Booztbarnum en staðirnir í dag eru þrír: Á N1 Hringbraut á N1 í Borgar- túni 39 og á N1 Ártúnshöfða. Booztbarinn hefur notið sífellt meiri vinsælda í gegn- um árin, viðskiptavinum fjölgar mikið og vöruúrvalið eykst sífellt: „Breiddin hefur aukist mikið. Þó að skyrdrykkir séu langvinsælustu drykkirnir sem við seljum þá höfum við bætt við ýmsu öðru, til dæmis vegandrykkjum með möndlu-, kókos- og hrísmjólk. Síðan erum við með nýja vöru sem heitir Orkuskálar. Það eru skyrhræringar sem við hellum út í skálar og við toppum síðan með ferskum ávöxtum og granola. Þessir réttir njóta mikilla vinsælda. Drykkir með viðbótarpróteini njóta líka stöðugt meiri vinsælda, ekki síst hjá þeim sem fara mikið í ræktina og eru að lyfta.“ Að sögn Kristins er bæði hægt að neyta drykkjanna sem aukabita og sem heillar máltíðar. „Það fer eftir því hvers konar rétt þú velur og hvaða stærð,“ segir Kristinn en aðspurður segir hann að þessi fæða sé í senn mjög næringarmikil og hitaein- ingasnauð: „Þú ert að fá mjög mikla næringu úr skyrinu, ávöxtunum, grænmetinu, fræjunum og höfrunum sem þú ert að innbyrða en hita- einingarnar eru fáar. Þú færð mikið prótein og mikið kalk sem er svo gott fyrir beinin, en hitaeiningarnar eru ekki margar. Það eru til dæmis ekki nema um 70 hitaeiningar í 100 grömmum af skyri.“ Þá er mikilvægt að geta þess að hægt er að gera alla booztdrykkina vegan með því að skipta skyri eða öðrum mjólkurvörum út fyrir kókos- mjólk eða möndlumjólk. Að sögn Kristins verður viðskipta- vina- hópurinn sífellt fjöl- breyttari og karlar sækja ekkert síð- ur í þessa heilnæmu fæðu en konur: „Viðskiptavina- hópurinn kemur okkur skemmtilega á óvart en við fáum til dæm- is mjög oft rafvirkja, pípara og aðra iðnaðarmenn sem mæta í vinnugallanum í morgunmat eða hádegis- mat,“ segir Kristinn. „Það er einnig gaman að sjá fulltrúa lögreglu og slökkviliðs mæta í fullum skrúða á Booztbarinn til þess að sækja sér orku. Hingað koma mjög margir fastagestir sem hafa átt við- skipti við okkur árum saman, nokkuð sem sýnir best að við höfum verið á réttri leið,“ segir Kristinn. Þess má geta að Kristinn er eini karlmaðurinn í stjórn- endahópi Booztbarsins: „Verslunar- og rekstrar- stjórar fyrirtækisins eru allt konur. Ég gæti ekki hugsað mér öflugri félagsskap. Þetta er skemmtilegur vettvangur að vinna á og allt sem við gerum hér er í stöðugri þróun. Gæða- eftirlitið er mikið og við fylgjumst vel með því sem við erum að kaupa inn, veljum bara besta mögulega hrá- efnið og erum sífellt að þróa nýja drykki.“ Booztbarinn er á öllum þremur stöðunum opinn frá 7.30 til 20.00 virka daga og frá 10.00 til 18.00 um helg- ar. Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni booztbarinn.is og [Facebook-síðu Booztbarsins] (https://www.facebook.com/ booztbar/) Arna, verslunastjóri hjá Booztbarnum í Borgartúni Fjölbreyttir drykkir á Booztbarnum Hið eina sanna SkyrBoozt – Ferskur safi – Vegandrykkir Myndir / Sigtryggur Ari Vinsælt Combo: Speltklatti og drykkurOrkuskálar sem slegið hafa í gegn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.