Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Blaðsíða 60
Vikublað 26. janúar 2018 60
Vel mælt
38
ára
39
ára
38
ára
Friðrika Hjördís Geirsdóttir, rikka
Starf: Fjölmiðlakona
Fædd: 29. janúar 1978
raGnHeiður GuðFinna Guðnadóttir
Starf: 27. janúar 1980
Fædd: Sérfræðingur í vinnu- og félagssálfræði
inGimundur inGimundarson
Starf: 29. janúar 1980
Fædd: Handboltakappi
marín manda maGnúsdóttir
Starf: 31. janúar 1979
Fædd: Flugfreyja hjá WOW air
40
ára
Afmælisbörn vikunnar
„Tilkynni, herra höfuðsmaður, sagði
Svejk, – ekki geta allir verið fyndnir.
Þeir heimsku verða að fá að fljóta með,
því að ef allir væru vitrir yrði svo mikil
skynsemi í veröldinni að annar hver
maður yrði brjálaður.“
- Jaroslav Hasek – Ævintýri góða dátans Svejks – þýðing: Karl Ísfeld
End of the
fu***g World
Stórkostlega skemmtilegir Netflix-þættir
um tvo stórkostlega klikkaða unglinga
í Englandi. Alyssa er eins og ferskur
andvari inn í fremur staðlaðan heim
kvenpersóna í kvikmyndagerð og hver
þáttur er rétt um 20 mínútur sem er mjög
þægileg lengd.
Tamari-möndlum
frá Til hamingju
Ekki deyja úr hungri yfir daginn. Ristaðar
tamari-möndlur eru frábært snakk til að nasla við
skrifborðið. Passaðu bara að borða ekki of mikið
af þeim ef þú ert enn að skafa af þér jólamörinn.
Áskrift
að Audible
Stórfyrirtækið Amazon býður upp á endalausa
afþreyingu í formi bóka, sjónvarpsefnis og síðast
en ekki síst hljóðbóka og hlaðvarpsþátta. Áskrift að
Audible veitir þér aðgang að úrvals hlustunarefni á
ensku og allir ættu að finna eitthvað fyrir sinn smekk,
bæði fróðleik og skemmtun.
Kjúklingasalati á
Hvíta riddaranum
Hvíti riddarinn í Mosfellsbæ býður upp á eitt
ferskasta og besta kjúklingasalat sem völ er á.
Smakk er sögu ríkara!
Hrósi
Ef þú hefur eitthvað fallegt að segja við náungann, ekki
halda aftur af þér. Segðu það! Bros getur dimmu í dags-
ljós breytt og einfalt hrós getur virkað mjög hressandi,
– sérstaklega þegar það kemur úr óvæntri átt.
Birta mælir með