Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Blaðsíða 34
Útlit og heilsa Helgarblað 26. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ Þetta er mjög gefandi starf. Mér finnst þetta algjört æði. Það er svo frábært að geta hjálpað fólki og gert því kleift að ná markmiðum sínum, en vanalega komum við okkur saman um mark- mið sem viðkomandi ætlar sér að ná á tilteknum tíma, en mikilvægt er að setja sér skammtíma sem og langtíma markmið sem eru raun- hæf,“ segir Unnur Óla, einkaþjálfari í Sporthúsinu Kópavogi. Unnur, sem verður þrítug á þessu ári, hefur stundað íþróttir og líkamsrækt frá unga aldri. Hún hefur keppt á 12 fitness-mótum frá árinu 2008 og orðið bæði Íslandsmeistari og bik- armeistari í módelfitness. Þrátt fyrir mikla keppnisreynslu liggur áhugi Unnar fyrst og fremst í bættri heilsu og auknum lífsgæðum, eða eins og Unnur segir: „Að líða vel í eigin skinni er ekki sjálfgefið og þarf í mörgum tilfellum hjálp við það.“ Það lá því beint við fyrir hana að fara í nám í einkaþjálfun og útskrifaðist hún með einkaþjálfararéttindi frá íþróttaakademíu Keilis í janúar 2016. Skömmu síðar gerði hún samning við Sporthúsið í Kópavogi og hefur síðan þá starfað við einkaþjálfun með frá- bærum árangri. Að sögn Unnar er fjölbreyttur hópur fólks hjá henni í einkaþjálf- un, bæði konur og karlar, og með mismunandi markmið eftir ólíku ástandi sínu. „Meirihlutinn er samt með þessi týpísku markmið, að vilja missa kíló, styrkjast og auka þol. En ég er líka með nokkra sem vilja bæta á sig vöðvamassa, styrkja og móta líkamann, sem og fólk með einhvers konar meiðsli sem þarf að vinna með. Það hendir að grannvaxið fólk sé ekki í góðu formi og skorti mjög vöðvastyrk og þol þó að óneitanlega þurfi meirihlutinn að missa fitu en allir eiga það sameiginlegt að vilja líða vel líkamlega og andlega og er mikilvægt að einblína ekki bara á einhverja tölu á vigtinni,“ segir Unnur. „Mataræðið skiptir gríðarlega miklu máli, miklu meira máli en ég held að fólki geri sér grein fyrir en það virðist vera það sem flestum finnst hvað erfiðast, það er svo mikilvægt að hver og einn finni sinn gullna meðal- veg í mataræði, því boð og bönn eru ekkert spennandi en það hentar ekki öllum það sama.“ Þeir sem æfa hjá Unni eru alla jafna mjög lengi hjá henni í þjálf- un sem vekur hjá henni ánægju: „Þetta segir manni að maður sé að gera eitthvað rétt. Örfáir hafa verið skemur hjá mér en í þrjá mánuði og ég er með marga sem hafa verið hjá mér í yfir ár. Það er einstaklings- bundið hvað fólk þarf langan tíma undir handleiðslu einkaþjálfara. Sumir þurfa bara einn mánuð til að koma sér í gang eftir til dæmis frí, veikindi eða hreinlega til að fá fjöl- breytni í æfingarnar sínar, en hafa sjálfstraustið og agann til að halda síðan áfram sjálfir. Á meðan aðrir hafa minni viljastyrk og þurfa miklu meira og lengra aðhald.“ Unnur Óla býður bæði upp á einkaþjálfun og þjálfun í litlum hópum. Til að panta þjálfun eða fá nánari upplýsingar er best að senda tölvupóst á netfangið unnurola@ unnurola.is, hringja í síma 660- 6433 eða senda skilaboð á Face- book-síðunni www.facebook.com/ UnnurOla. Unnur er líka með opinn Snapchat-aðgang þar sem nokkur þúsund manns fylgjast með henni daglega. SC: unnurolaiak sem og Instagram.com/unnurola.is. Unnur Óla einkaþjálfari FRÁBÆRT AÐ SJÁ FÓLK NÁ MARKMIÐUM SÍNUM Mynd Heida HB Mynd Heida HB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.