Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Qupperneq 55

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Qupperneq 55
Vikublað 26. janúar 2018 55 Auðbrekku 27, Kópavogi www.bilasprautun.is þyki vænt um þig þá skaltu pína þig til að taka við hrósinu eða þessum fallegu orðum og minna þig á að með því að leyfa öðrum að tjá hlýjar tilfinningar ertu að gefa þeim eitthvað í staðinn. n Að síðustu skaltu reyna að halda sambandið út þar til því er lokið og hafa í huga að ekkert samband varir að eilífu. Þau koma og fara líkt og flóð og fjara og þegar tími sambandsins er liðinn skaltu hlusta á hina manneskjuna, segja það sem þér býr í brjósti, og leyfa þeim svo að fara án eftirsjár enda er önnur manneskja sem þú getur alltaf elskað og það ert þú sjálf. Prófraunir framundan en fallegt samband ef vel tekst til Ef þú lest þetta og veltir því fyrir þér hvort þú þekkir einhvern sem er svona, er gott að minna á að stundum getur tekið svolítinn tíma fyrir þessi einkenni tengslaröskun- ar að skjóta upp kollinum. Oftast þarf að komast í smá nánd við manneskjuna áður en hún sýnir þér þessar hliðar og hafðu einnig í huga að viðkomandi gæti orðið mjög ringlaður, óskipulagður og ósáttur ef ytra öryggi hans er ógn- að, t.d. ef heilsa eða starf eru í húfi. Þá er einnig gott að hafa hugfast að jafnvel þótt þú hafir búið við tilfinningalegt öryggi í æsku gætu eiginleikar þínir til að mynda heil- brigð tilfinningatengsl laskast ef þú átt í langvarandi alvarlegu ofbeldis- sambandi, upplifir slys, dauða eða önnur alvarleg áföll. Ef þú ert í sambandi við ein- hvern sem hefur þessi einkenni, reyndu þá að sýna viðkomandi þolinmæði og gerðu þér jafnframt grein fyrir því að það er ekki á þínu valdi að lina allan þann andlega sársauka sem viðkomandi býr við. Þú getur hins vegar verið til staðar og sýnt bæði alúð og stuðning meðan viðkomandi vinnur í sínum málum og nær betri tökum á eigin tilfinningalífi. Ef þú hefur áhuga á því að halda sambandinu áfram máttu búast við því að hún/hann láti reyna á þol þitt með því að hegða sér með neikvæðum hætti eða segja hluti sem hún/hann sér yfirleitt eftir. Þetta gerir hún/hann til að athuga hvort þú munir hafna sér eða særa því þegar öllu er á botninn hvolft þá hefur reynslan einmitt kennt henni/honum það. Ef þú hins vegar gerir þér grein fyrir því hvað er raunverulega að gerast og tekur hegðuninni eins og hún er (og ekki of persónulega þótt það sé vissulega erfitt) þá eru góðar líkur á því að framkoma viðkomandi muni fljótlega breytast til hins betra, – og ef rétt er staðið að málum þá gæti farsælt og fallegt samband verið framundan. Þýtt og endursagt úr tímaritinu Psychology Today. Höf: Hal Shorey. „Stundum líður fólki með tengslarösk- un eins og það sé bæði vanmetið og misskilið af öðrum og þá sérstaklega þegar það á eftir að læra að leggja mat á eigin hegðun og átta sig á því að það er vanalega fyrst til að ögra og síðar hafna nándinni og skuldbindingunni sem stóð því jafnvel alltaf til boða.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.