Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Blaðsíða 76
76 fólk Helgarblað 26. janúar 2018
V
iðar Guðjohnsen hef-
ur vakið mikla athygli í
tengslum við framboð sitt
í leiðtogakjöri Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík. Ummæli
hans um holdafar, konur, ungt
fólk, útigangsmenn, jafnaðar-
menn og leikskóla hafa hneykslað
marga og segja má að Viðar hafi
hreinlega stolið sviðsljósinu. Í til-
efni af leiðtogakjörinu á laugar-
daginn ákvað DV að kafa ofan í
fortíð Viðars og finna nokkur at-
riði sem fáir vissu.
Tamdi veiðibjöllu og hrafn
Sumarið 1979 skemmti
Viðar sér við að temja
hrafn og veiðibjöllu, fugl-
ana geymdi hann í portinu
á bak við sjúkrahótel
Rauða krossins við Rauð-
arárstíg. Hrafninn fékk Við-
ar úr varpi í Viðey en veiði-
bjallan var öllu eldri. Lýsti
Viðar því í viðtali við Dag-
blaðið að erfitt hefði verið
að temja veiðibjölluna og
að henni hafi ekki samið vel
við hrafninn. Veiðibjölluna,
sem er stærsta tegund máfa,
málaði hann appelsínugula
til að koma í veg fyrir að
löggan myndi skjóta hana,
var veiðibjallan því kölluð
orangemáfurinn.
18 ára lagði bronsverðlaunahafa
Viðar varð Skandinavíumeistari
í 80 kílóa þyngdarflokki aðeins
18 ára gamall. Á opnu júdómóti
haustið 1976 lagði hann svo
Svíann Bengt Snöbengt, en
Snöbengt hafði unnið brons á
Ólympíuleikunum í Montreal um
sumarið.
Dvaldi í Japan
Viðar byrjaði að æfa júdó 14 ára
gamall, í viðtali við Vikuna árið
1981 sagði hann að eftir að hann
meiddist illa aðeins 18 ára hafi
hann farið til Japan og dvalið þar í
eitt ár til að æfa og kynna sér júdó
betur. Fannst honum hirðsiðir Jap-
ana í kringum júdó ganga of langt.
„Þótt Japanir geti kennt manni
ýmislegt í júdó er ég samt andvíg-
ur öllum hirðsiðunum sem þeir
hafa í kringum þessa íþrótt. Júdó
er alþjóðleg íþrótt og mér finnst
allt í lagi að nota japönsk heiti en
hirðsiðirnir ganga of langt.“
Yfirbugaði hnífamann
Viðar varð fyrir árás hnífamanns
4. febrúar 1983. Viðar var þá um-
sjónarmaður á gistihúsi í Reykja-
vík, árásarmaðurinn var gestur
sem vísa átti út. Samkvæmt frétt
Morgunblaðsins á sínum tíma var
gesturinn á
þrítugsaldri og
góðkunningi
lögreglunnar,
hann hafði verið með óspektir og
ráðist á gesti, en Viðar sá á honum
aumur vegna veðurs. Þegar kom
að því að vísa manninum út hófust
stympingar og Viðar hélt hon-
um niðri. „Þá lofaði hann að fara
út með góðu og ég sleppti hon-
um. En við vorum vart staðnir upp
þegar hann dró fram stóran hníf,
sem hann var með innan á sér,
og mundaði hann. Það var þarna
slangur af fólki og hætta á ferðum,
og til að vernda gestina var ekki
um annað að ræða en stökkva í
hann,“ sagði Viðar. Gesturinn
hafði stundað lyftingar og var því
erfiður viðureignar, Viðari tókst að
þröngva honum út í horn þang-
að til lögreglan mætti á svæðið.
„Júdó-kunnátta mín kom þarna
að engu gagni, þetta voru venjuleg
slagsmál og tekist á af hörku. Mér
leið illa í átökunum því hann var
alltaf með hnífinn í hendi.“
Henti út fólki vegna partíláta
Viðar hefur verið leigusali í ára-
raðir, árið 1995 lenti hann í deilum
við leigjendur sem sögðu að Við-
ar hefði borið þá út að ósekju
án skriflegs fyrirvara. Munu þau
Petra Stefánsdóttir og Haukur
Baldursson hafa brugðið sér að
heiman og fundið svo búslóðina
úti á götu og lykilorðinu að úti-
dyrunum breytt þannig að þau
komust ekki aftur inn. Blaðamað-
ur Helgarpóstsins mætti á svæðið
og eftir að hafa fengið bendingu
frá Viðari munu tvö „heljarmenni“
sem voru fyrir utan hafa hleypt
blaðamanninum inn. Viðar sagð-
ist hafa verið í fullum rétti og vísaði
í leigusamninginn þar sem kom
fram að heimilt væri að vísa leigj-
endum á dyr með stuttum fyrirvara
ef viðkomandi skapar ónæði vegna
„partía, áfengisneyslu og gesta-
gangs kunningja“. „Þau hafa marg-
brotið þetta samkomulag og það er
löngu búið að aðvara þau. Og það
þarf enginn að segja mér að það
hafi ekki verið meira í spilinu en
brennivín í þessum partíum.“ n
Yfirbugaði hnífamann og
lagði Ólympíuverðlaunahafa
Fimm atriði sem þú vissir ekki um Viðar Guðjohnsen
Nærmynd:
Ari Brynjólfsson
ari@pressan.is
svo allt gangi smurt
l Öryggisvörur
l Efnavörur
l olíuvörur