Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Blaðsíða 39
Útlit og heilsaHelgarblað 26. janúar 2018 KYNNINGARBLAÐ
Kári Már lét drauminn rætast
með Kyon Apparel
NÝTTU ÞÉR AFSLÁTTARKÓÐA OG KAUPTU HÁGÆÐA ÍÞRÓTTAFATNAÐ
MEÐ ÞVÍ AÐ NOTA AFSLÁTTAR-
KÓÐANN DV25 Á HEIMASÍÐU KYON
APPAREL FÁ LESENDUR DV 25%
AFSLÁTT AF VÖRUM ÚT FEBRÚAR
2018.
Kári Már Óskarsson stofnaði fyrir ári fyrirtækið Kyon Apparel, sem hannar og selur hágæða
íþróttafatnað á hagstæðu verði.
Fatnaðurinn fæst hér heima, en hefur
einnig verið vel tekið erlendis, en hann
er meðal annars seldur í Bandaríkj-
unum, Bretlandi og Rússlandi.
„Ég ákvað að láta eigin draum
rætast og gera mitt eigið í stað þess
að vinna að draumi annars,“ segir
Kári, sem er 22 ára gamall. „Ég hef
alltaf haft áhuga á fötum og er mjög
smámunasamur þegar kemur að
fatnaði. Þess vegna finnst mér gott
að hanna mín eigin föt.“
Kári hannar fötin sjálfur, en þau
eru saumuð víðs vegar um heiminn.
Kyon Apparel byrjaði í íþróttafatnaði
eingöngu, en framleiðsla á öðrum
hágæðafatnaði er í vinnslu.
„Það var einfaldara að byrja
í íþróttafatnaðinum,“ segir Kári.
„Hönnunin er ekki eins flókin og tekur
styttri tíma. Ég legg engu að síður
mikla áherslu á gæði og vil ekki selja
fólki fatnað sem er lélegur í gæðum.“
Það er áhuginn sem drífur Kára
áfram. Hann er lærður einkaþjálf-
ari og hefur margra ára reynslu af
líkamsrækt og þekkir því vel hvaða
gæði og eiginleika íþróttafatnaður
þarf að hafa til að endast vel og vera
þægilegur í ræktinni.
Nýjar vörur í vinnslu
„Íþróttafatnaður mun
alltaf vera til staðar hjá
mér og nýjar vörur koma
inn þar, en núna er ég
að vinna að öðrum
fatnaði, sem liggur
meiri vinna á
bak við, það
tekur um
þrjá mánuði að hanna hverja flík,
sauma og svo framvegis,“ segir
Kári, sem hyggst færa sig
meira yfir í hönnun á
hversdags- og spari-
fatnaði.
Kyon Apparel
sendir frítt um
allt land. Heima-
síða: kyonapp-
arel.is, Facebook
og Instagram:
kyonapparel.
Eigandinn Kári Már Óskarsson
er maðurinn á bak við Kyon
Apparel, eigandi og hönnuður.
Mynd INFO@ANTONBJARNI.IS