Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Blaðsíða 66
66 menning Helgarblað 26. janúar 2018
Blóðpeningar
knýja listaheiminn
Fréttnæmt
Næturvagninn
eftir Brim
Um síðustu helgi fóru nætur
vagnar Strætó í sínar fyrstu ferð
ir en það er nýjung að strætó
sinni næturakstri um helgar. Í
gegnum tíðina hefur strætó og
almenningsvagnakerfi höfuð
borgarinnar ósjaldan verið yrkis
efni reykvískra skálda og við
fangsefni listamanna. Eitt dæmi
um hvernig næturstrætó hefur
verið nýttur á frumlegan hátt í
listsköpun er í lagi hinnar goð
sagnakenndu sörfhljómsveitar
Brim, af plötunni Hafmeyjur og
hanastél sem kom út árið 1996.
Undir afslöppuðu, blúsuðu
sólstrandarrokkinu má heyra
ógreinilegt suð sem einstak
lega athyglisskörp undirmeðvit
und gæti tengt við strætóferð
ir sínar. „Í hægri hátalaranum
er upptaka úr ferð í næturvagni
Strætó frá Lækjartorgi og upp í
Árbæ. Ferðin tók um klukkutíma
þannig að ég hraðaði um tuttugu
sinnum á upptökunni, útkoman
er því hátíðnisuð sem er nánast
ógreinilegt,“ segir tónlistarmað
urinn Curver (sem ávallt kall
aði sig Bibbi barti, þegar hann
spilaði á gítar með Brimi). Með
þessari hljóðtilraun Curvers
tryggðu næturvagnar tíunda ára
tugarins sér öruggt (en ógreini
legt) sæti í menningarsögunni.
r
i i
Hinn heimsþekkti ljósmyndari Nan Goldin segir helstu verndurum lista í samtímanum,
Sackler-fjölskyldunni, stríð á hendur – Bera ábyrgð á og græða á ópíumfaraldrinum
Þ
eir eru eflaust ófáir listunn
endurnir sem hafa rekist á
nafn Sacklerfjölskyldunn
ar á menningarrúnti sínum
á undanförnum árum. Til dæm
is ef þeir hafa heimsótt nýjan for
garð Victoria & Albertsafnsins
eða nýlega álmu Serpentinegall
erísins í London,
þann hluta
Metropolitan
safnsins sem
hýsir gamlar
egypskar
minjar eða
menntamið
stöð Guggen
heimsafnsins í
New York. Allt
ber þetta skýrt
og greinilega nafn helsta
velgjörðafólks umræddra
stofnana; Sackler.
Í gegnum árin hafa fjöl
skyldumeðlimir fengið
að baða sig í sviðsljósinu
vegna gjafa sinna til vísinda, há
skóla og menningarmála, en nú
er athyglin hins vegar fljótt og
örugglega að færast yfir á uppruna
auðæfanna. Ríkidæmi Sackler
anna byggist nefnilega að miklu
leyti á sársauka og fíkn annarra.
Verkjalyfið OxyContin sem fjöl
skyldufyrirtækið framleiðir er af
mörgum álitið einn helsti orsaka
valdur ópíumfaraldursins sem
geisað hefur í Bandaríkjunum
undanfarin ár og hefur orðið 200
þúsund manns að bana frá alda
mótum.
Einn þekkasti ljósmyndari
heims, Nan Goldin, er á meðal
þeirra sem ánetjuðust
verkjalyfinu. Hún hefur
nú hafið herferð
þar sem markmiðið
er að neyða Sackler
fjölskylduna til að bera
ábyrgð á viðskiptum
sínum. „Til þess að fanga
athygli þeirra verðum við að
ráðast á góðgerðarstarfsemina.
Þau hafa þvegið blóðpeninga sína
á göngum safna og háskóla víðs
vegar um heiminn,“ skrifar Goldin
í opnu bréfi í tímaritinu Artforum.
Blóðugar blekkingar
Auður Sacklerfjölskyldunnar varð
til í fjölskyldufyrirtækinu Purdue
Pharma. Það voru bræðurnir
Arthur, Mortimer og Raymond
sem keyptu fyrirtækið á sjötta ára
tugnum, byggðu upp og arfleiddu
börn sín að
því þegar
þeir létu
st (sá fyrsti
árið 1987
og síðasti
í fyrra).
Fyrirtæk
ið fór fyrst
að skila
stjarn
fræðilegum hagnaði eftir að það
byrjaði að framleiða og selja
verkjalyfið OxyContin árið 1995.
Lyfið þótti byltingarkennd nýj
ung á verkjalyfjamarkaðnum.
Töflurnar voru gerðar úr oxý
kódoni, verksmiðjuhannaðri
afleiðu af ópíum – svokölluð
um ópíóðum – sem hefur
verið kölluð efnafræðileg
frænka heróíns. Læknar
voru hins vegar smeykir
við að skrifa upp á svo ávana
bindandi efni nema sem allra síð
asta úrræði þannig að Purdue
Pharma lagðist í mikla markaðs
herferð til að breyta viðhorfunum.
Fyrirtækið fjármagnaði rannsókn
ir og borgaði læknum sem voru já
kvæðir í garð efnanna rausnarlega.
Um áratug seinna viður
kenndu þrír yfirmenn í fyrirtæk
inu við sakamálarannsókn að
hafa blekkt eftirlitsyfirvöld,
lækna og sjúklinga, log
ið til um hversu ávana
bindandi lyfið væri og
hversu auðvelt væri
að misnota það. Árið 2007
þurfti fyrirtækið því að greiða
600 milljónir dollara í sekt fyrir
blekkingarnar – en þá var skaðinn
löngu skeður.
Medici-ætt nútímans
OxyContin var ávísað frjálslega
í upphafi og varð neysla þess og
misnotkun strax mikil, æ fleiri
urðu háðir lyfinu. Auðvelt var
að brjóta töflurnar niður í duft,
sjúga upp í nef, gleypa eða
sprauta efninu í æð til
að það virkaði hraðar og
kröftugar.
Eftir því sem eftirlits
yfirvöld reyndu að
hemja neysluna
og misnotkunar
möguleika sneru not
endur sér í auknum
mæli að öðrum skyld
um vímuefnum á borð við
heróín. Fjórir af hverjum fimm
heróínneytendum í Bandaríkj
unum í dag eru sagðir hafa leiðst
þangað út frá neyslu lyfseðils
skyldra verkjalyfja. Fíkn í ópíum
efni hefur aukist gríðarlega frá því
að OxyContin kom á mark
að og hafa 200 þúsund
Bandaríkjamenn látist
vegna fíknarinnar frá
árinu 1999. Tvö nýleg og
áberandi dæmi um þetta
eru tónlistarmennirnir
Prince og Tom Petty.
Á meðan ópíumfaraldur
inn hefur geisað hefur Sackler
fjölskyldan verið dugleg að fjár
magna ýmiss konar mennta og
menningarstarfsemi og feng
ið nafn sitt veggfóðrað á virtu
stu listastofnanir beggja vegna
Atlants hafsins. Raunar hefur fjöl
skyldan verið svo aðsópsmikil í
listalífinu að hún hefur stund
um verið kölluð Medicifjölskylda
samtímans – og er þá líkt við flór
enska viðskiptafjölskyldu sem hélt
uppi listalífi Ítalíu á seinni hluta
miðalda. Fjölskyldunni hefur ver
ið hampað sem dæmi um hvernig
ríkir kapítalistar geti gert heiminn
að betri stað. Nú er hin jákvæða
ímynd fjölskyldunnar óðum að
molna, meðal annars eftir ítarlega
grein um fjölskylduna í The New
Yorker undir lok síðasta árs.
Þrýstingur á söfnin
Sem fyrr segir er Nan Goldin í hópi
þeirra sem hafa ánetjast hörðum
vímuefnum eftir að hafa fengið
uppáskrifað OxyContin hjá lækni.
Hún er einn áhrifamesti ljós
myndari samtímans og segir frá
reynslu sinni í opnu bréfi í Art
Forum og viðtali við breska dag
blaðið The Guardian.
Goldin hefur frá áttunda ára
tugnum tekið opinskáar heim
ildaljósmyndir af jaðarsamfé
lögum, meðal annars gefið
magnaða innsýn í heim
dragdrottninga og
samfélög samkyn
hneigðra. Í upphafi
níunda áratugarins
var hún hluti af og
ljós myndaði hóp fólks sem
var í harðri vímuefnaneyslu og
lifði óhefðbundnu og óhefluðu lífi.
Berskjaldaðar myndir hennar af
ofbeldi, kynlífi og vímuefnaneyslu
hafa haft gríðarleg áhrif langt út
fyrir ljósmyndaheiminn.
Árið 2014 skrifaði læknir upp á
OxyContin fyrir hana vegna sina
bólgu í úlnlið. Hún var óvirkur fík
ill og varð umsvifalaust háð verkja
lyfinu og þegar læknar hættu að
vilja skrifa upp á það leitaði hún,
eins og svo margir aðrir, á svarta
markaðinn – og svo að öðrum
vímugjöfum. Eftir að hún kom úr
meðferð í mars í fyrra sökkti hún
sér ofan í rannsóknir á ópíumfar
aldrinum og ástæðum hans. „Mér
finnst ég skulda þeim sem far
aldurinn hefur haft áhrif á að ég
geri þessa persónulegu reynslu
pólitíska,“ segir hún.
Eftir að Goldin komst að því að
Sacklerfjölskyldan bæri ábyrgð á
útbreiðslu OxyContin fór hún af
stað með herferð þar sem mark
miðið er að neyða fjölskylduna til
að gangast við ábyrgð sinni. Hún
vill að fjölskyldan noti auðæfi sín
til að fjármagna forvarnir og með
ferðarúrræði fyrir fíkla, frekar
en í að fá nýbyggingar í virtum
listasöfnum nefnd eftir sér.
Um leið vill hún að menningar
stofnanirnar hætti að taka við fjár
munum frá fjölskyldunni: „Ég er
ekki að biðja söfnin um að skila
peningunum, en ég vil ekki að
þau taki við meiru frá Sacklerfjöl
skyldunni, og ég vil að þau sendi
frá sér stuðningsyfirlýsingu við
herferð mína.“ n
„Þau hafa þvegið
blóðpeninga
sína á göngum safna og
háskóla víðs vegar um
heiminn.
Nan Goldin Ljósmyndar-
inn hefur sagt Sackler-fjöl-
skyldunni stríð á hendur.
MyNd NaN GoldiN
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Úr listheiminum
n Breski tónlist-
armaðurinn
Mark E. Smith
er látinn,
60 ára að
aldri. Hann
hélt úti hinni
goðsagna-
kenndu síðpönksveit
The Fall í meira en fjóra áratugi.
Hann var meðal annars frægur
fyrir sukklíferni sitt, orðsnilli og
ótrúlegan útgáfudugnað.
n Menningarráðuneyti Rússlands
hefur afturkallað leyfi fyrir útgáfu
nýjustu grínmyndar Bretans Arm-
ando Iannucci, The Death of Stalin.
Um er að ræða kolsvarta kómedíu
um síðustu daga leiðtoga Sovétríkj-
anna sálugu.
n Einn virtasti furðusagnahöfundur
heims, Ursula K. Le Guin er látin, 88
ára að aldri. Hún er þekktust fyrir
Earthsea-þríleikinn og vísindaskáld-
söguna The left hand of darkness,
en vinsældir hennar náðu langt út
fyrir raðir hefðbundinna aðdáenda
vísindaskáldsagna.
n Alvia Islandia,
Högni Egilsson
og Björk eru
meðal þeirra
tólf tónlist-
armanna sem
eru tilnefndir
til Norrænu
tónlistarverðlaun-
anna 2017. Þau eru tilnefnd fyrir
plötur sínar Elegant Hoe, Two Trains
og Utopia.