Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Blaðsíða 38
Útlit og heilsa Helgarblað 26. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Erótískur dans eða frábær
íþrótt sem kemur þér í toppform
Polefitness og dans stúdíóið Er-
íal Pole hefur verið starfandi síðan
september 2012 og sérhæfir sig í
ýmsum og fjölbreyttum afbrigðum
af súludansi. Á allra síðustu árum
hefur þessi líkamsrækt orðið þekktari
og vinsælli. „Þetta hefur verið dálítið
tabú,“ segir Monika Konowski, annar
eigenda Eríal Pole, en hún segir það
ekkert feimnismál að súludans geti
verið erótískur jafnframt því að vera
hörkupúl og mjög holl líkamsrækt:
„Sumar vilja ekki nálgast þetta sem
íþrótt heldur vilja bara dansa. Við
tökum á móti öllum og erum með alla
flóruna í þessu hér. Við erum með
Lyru þar sem notast er við loftfim-
leikahringi og erum svo að fara að
byrja með silki sem er annað loftfim-
leikaáhald. Einnig erum við með Flex
liðleikatíma en þar er áherslan lögð
á aukinn styrk og liðleika. Síðan er
það súlufitness á stigum eitt til fimm
þar sem stig eitt er fyrir byrjendur
og stig fimm fyrir þá sem eru lengst
komnir; þar er lögð mikil áhersla á að
auka styrk og þol og höfum við séð
ótrúlegan árangur hjá nemendum
sem hafa jafnvel engan bakgrunn
í íþróttum. Auk þess erum við með
opna tíma þar sem fólk getur komið
og æft sig sjálft. Jafnframt erum við
með danstíma þar sem kenndir eru
alls konar súludansstílar, svo sem
„contemporary pole“ og meiri „sensu-
al“ dans. Hjá Eríal Pole er líka æf-
ingaaðstaða með lóðum og tækjum
þar sem nemendur geta æft sam-
hliða námskeiðum og einnig er boðið
upp á einkatíma.“
Fjölbreytnin er gífurleg en Eríal
Pole leggur líka mikla áherslu á gæði
kennslunnar og þjálfunarinnar: „Allir
kennararnir hér eru með alþjóðlega
viðurkennd kennararéttindi í faginu
og við förum reglulega í gegnum
símenntun. Kennarar frá Colorado og
New York koma hingað einu sinn á ári
og eru með fjögurra daga námskeið
þar sem við erum átta tíma á dag að
læra á fullu,“ segir Monika.
Súludans og fitness er afar holl
líkamsrækt og segir Monika að það
sem heillar mest sé að nemend-
ur vinna eingöngu með sína eigin
líkamsþyngd. Þessi íþrótt stóreykur
liðleika, jafnvægi og þol auk þess að
styrkja mjög vöðvana. Íþróttin byggir
upp langa og vel tónaða vöðva og
eflir líkamsímynd hjá þeim sem iðka
hana af kappi.
Haldnar eru tvær keppnir í súlu-
dansi/polefitness á ári, Pole Theatre,
sem er alþjóðleg keppni og mjög
þekkt innan sportsins, og Pole Fit
Open, sem er innlend keppni.
Eríal Pole er stærsta Pole Fitness
og Pole dansstúdíó á landinu og er
til húsa að Rauðarárstíg 31, Reykja-
vík, í bakhúsi. Nánari upplýsingar eru
veittar í síma 770-2012 en auk þess
eru ítarlegar og áhugaverðar upp-
lýsingar á vefsíðunni erial.is. Þar er
meðal annars að finna stundatöflu,
upplýsingar um kennara, verðskrá
og upplýsingar um alla tíma sem í
boði eru. Næstu námskeið hjá Eríal
Pole hefjast 5. febrúar og því er um
að gera að kynna sér þessa áhuga-
verðu íþrótt og skrá sig á spennandi
námskeið.