Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Síða 38
Útlit og heilsa Helgarblað 26. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ Erótískur dans eða frábær íþrótt sem kemur þér í toppform Polefitness og dans stúdíóið Er- íal Pole hefur verið starfandi síðan september 2012 og sérhæfir sig í ýmsum og fjölbreyttum afbrigðum af súludansi. Á allra síðustu árum hefur þessi líkamsrækt orðið þekktari og vinsælli. „Þetta hefur verið dálítið tabú,“ segir Monika Konowski, annar eigenda Eríal Pole, en hún segir það ekkert feimnismál að súludans geti verið erótískur jafnframt því að vera hörkupúl og mjög holl líkamsrækt: „Sumar vilja ekki nálgast þetta sem íþrótt heldur vilja bara dansa. Við tökum á móti öllum og erum með alla flóruna í þessu hér. Við erum með Lyru þar sem notast er við loftfim- leikahringi og erum svo að fara að byrja með silki sem er annað loftfim- leikaáhald. Einnig erum við með Flex liðleikatíma en þar er áherslan lögð á aukinn styrk og liðleika. Síðan er það súlufitness á stigum eitt til fimm þar sem stig eitt er fyrir byrjendur og stig fimm fyrir þá sem eru lengst komnir; þar er lögð mikil áhersla á að auka styrk og þol og höfum við séð ótrúlegan árangur hjá nemendum sem hafa jafnvel engan bakgrunn í íþróttum. Auk þess erum við með opna tíma þar sem fólk getur komið og æft sig sjálft. Jafnframt erum við með danstíma þar sem kenndir eru alls konar súludansstílar, svo sem „contemporary pole“ og meiri „sensu- al“ dans. Hjá Eríal Pole er líka æf- ingaaðstaða með lóðum og tækjum þar sem nemendur geta æft sam- hliða námskeiðum og einnig er boðið upp á einkatíma.“ Fjölbreytnin er gífurleg en Eríal Pole leggur líka mikla áherslu á gæði kennslunnar og þjálfunarinnar: „Allir kennararnir hér eru með alþjóðlega viðurkennd kennararéttindi í faginu og við förum reglulega í gegnum símenntun. Kennarar frá Colorado og New York koma hingað einu sinn á ári og eru með fjögurra daga námskeið þar sem við erum átta tíma á dag að læra á fullu,“ segir Monika. Súludans og fitness er afar holl líkamsrækt og segir Monika að það sem heillar mest sé að nemend- ur vinna eingöngu með sína eigin líkamsþyngd. Þessi íþrótt stóreykur liðleika, jafnvægi og þol auk þess að styrkja mjög vöðvana. Íþróttin byggir upp langa og vel tónaða vöðva og eflir líkamsímynd hjá þeim sem iðka hana af kappi. Haldnar eru tvær keppnir í súlu- dansi/polefitness á ári, Pole Theatre, sem er alþjóðleg keppni og mjög þekkt innan sportsins, og Pole Fit Open, sem er innlend keppni. Eríal Pole er stærsta Pole Fitness og Pole dansstúdíó á landinu og er til húsa að Rauðarárstíg 31, Reykja- vík, í bakhúsi. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 770-2012 en auk þess eru ítarlegar og áhugaverðar upp- lýsingar á vefsíðunni erial.is. Þar er meðal annars að finna stundatöflu, upplýsingar um kennara, verðskrá og upplýsingar um alla tíma sem í boði eru. Næstu námskeið hjá Eríal Pole hefjast 5. febrúar og því er um að gera að kynna sér þessa áhuga- verðu íþrótt og skrá sig á spennandi námskeið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.