Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Síða 76

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Síða 76
76 fólk Helgarblað 26. janúar 2018 V iðar Guðjohnsen hef- ur vakið mikla athygli í tengslum við framboð sitt í leiðtogakjöri Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík. Ummæli hans um holdafar, konur, ungt fólk, útigangsmenn, jafnaðar- menn og leikskóla hafa hneykslað marga og segja má að Viðar hafi hreinlega stolið sviðsljósinu. Í til- efni af leiðtogakjörinu á laugar- daginn ákvað DV að kafa ofan í fortíð Viðars og finna nokkur at- riði sem fáir vissu. Tamdi veiðibjöllu og hrafn Sumarið 1979 skemmti Viðar sér við að temja hrafn og veiðibjöllu, fugl- ana geymdi hann í portinu á bak við sjúkrahótel Rauða krossins við Rauð- arárstíg. Hrafninn fékk Við- ar úr varpi í Viðey en veiði- bjallan var öllu eldri. Lýsti Viðar því í viðtali við Dag- blaðið að erfitt hefði verið að temja veiðibjölluna og að henni hafi ekki samið vel við hrafninn. Veiðibjölluna, sem er stærsta tegund máfa, málaði hann appelsínugula til að koma í veg fyrir að löggan myndi skjóta hana, var veiðibjallan því kölluð orangemáfurinn. 18 ára lagði bronsverðlaunahafa Viðar varð Skandinavíumeistari í 80 kílóa þyngdarflokki aðeins 18 ára gamall. Á opnu júdómóti haustið 1976 lagði hann svo Svíann Bengt Snöbengt, en Snöbengt hafði unnið brons á Ólympíuleikunum í Montreal um sumarið. Dvaldi í Japan Viðar byrjaði að æfa júdó 14 ára gamall, í viðtali við Vikuna árið 1981 sagði hann að eftir að hann meiddist illa aðeins 18 ára hafi hann farið til Japan og dvalið þar í eitt ár til að æfa og kynna sér júdó betur. Fannst honum hirðsiðir Jap- ana í kringum júdó ganga of langt. „Þótt Japanir geti kennt manni ýmislegt í júdó er ég samt andvíg- ur öllum hirðsiðunum sem þeir hafa í kringum þessa íþrótt. Júdó er alþjóðleg íþrótt og mér finnst allt í lagi að nota japönsk heiti en hirðsiðirnir ganga of langt.“ Yfirbugaði hnífamann Viðar varð fyrir árás hnífamanns 4. febrúar 1983. Viðar var þá um- sjónarmaður á gistihúsi í Reykja- vík, árásarmaðurinn var gestur sem vísa átti út. Samkvæmt frétt Morgunblaðsins á sínum tíma var gesturinn á þrítugsaldri og góðkunningi lögreglunnar, hann hafði verið með óspektir og ráðist á gesti, en Viðar sá á honum aumur vegna veðurs. Þegar kom að því að vísa manninum út hófust stympingar og Viðar hélt hon- um niðri. „Þá lofaði hann að fara út með góðu og ég sleppti hon- um. En við vorum vart staðnir upp þegar hann dró fram stóran hníf, sem hann var með innan á sér, og mundaði hann. Það var þarna slangur af fólki og hætta á ferðum, og til að vernda gestina var ekki um annað að ræða en stökkva í hann,“ sagði Viðar. Gesturinn hafði stundað lyftingar og var því erfiður viðureignar, Viðari tókst að þröngva honum út í horn þang- að til lögreglan mætti á svæðið. „Júdó-kunnátta mín kom þarna að engu gagni, þetta voru venjuleg slagsmál og tekist á af hörku. Mér leið illa í átökunum því hann var alltaf með hnífinn í hendi.“ Henti út fólki vegna partíláta Viðar hefur verið leigusali í ára- raðir, árið 1995 lenti hann í deilum við leigjendur sem sögðu að Við- ar hefði borið þá út að ósekju án skriflegs fyrirvara. Munu þau Petra Stefánsdóttir og Haukur Baldursson hafa brugðið sér að heiman og fundið svo búslóðina úti á götu og lykilorðinu að úti- dyrunum breytt þannig að þau komust ekki aftur inn. Blaðamað- ur Helgarpóstsins mætti á svæðið og eftir að hafa fengið bendingu frá Viðari munu tvö „heljarmenni“ sem voru fyrir utan hafa hleypt blaðamanninum inn. Viðar sagð- ist hafa verið í fullum rétti og vísaði í leigusamninginn þar sem kom fram að heimilt væri að vísa leigj- endum á dyr með stuttum fyrirvara ef viðkomandi skapar ónæði vegna „partía, áfengisneyslu og gesta- gangs kunningja“. „Þau hafa marg- brotið þetta samkomulag og það er löngu búið að aðvara þau. Og það þarf enginn að segja mér að það hafi ekki verið meira í spilinu en brennivín í þessum partíum.“ n Yfirbugaði hnífamann og lagði Ólympíuverðlaunahafa Fimm atriði sem þú vissir ekki um Viðar Guðjohnsen Nærmynd: Ari Brynjólfsson ari@pressan.is svo allt gangi smurt l Öryggisvörur l Efnavörur l olíuvörur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.