Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Qupperneq 55
Vikublað 26. janúar 2018 55
Auðbrekku 27, Kópavogi
www.bilasprautun.is
þyki vænt um þig þá skaltu pína þig
til að taka við hrósinu eða þessum
fallegu orðum og minna þig á að
með því að leyfa öðrum að tjá
hlýjar tilfinningar ertu að gefa þeim
eitthvað í staðinn.
n Að síðustu skaltu reyna að halda
sambandið út þar til því er lokið
og hafa í huga að ekkert samband
varir að eilífu. Þau koma og fara
líkt og flóð og fjara og þegar tími
sambandsins er liðinn skaltu hlusta
á hina manneskjuna, segja það sem
þér býr í brjósti, og leyfa þeim svo
að fara án eftirsjár enda er önnur
manneskja sem þú getur alltaf
elskað og það ert þú sjálf.
Prófraunir framundan en fallegt
samband ef vel tekst til
Ef þú lest þetta og veltir því fyrir
þér hvort þú þekkir einhvern sem
er svona, er gott að minna á að
stundum getur tekið svolítinn tíma
fyrir þessi einkenni tengslaröskun-
ar að skjóta upp kollinum. Oftast
þarf að komast í smá nánd við
manneskjuna áður en hún sýnir
þér þessar hliðar og hafðu einnig
í huga að viðkomandi gæti orðið
mjög ringlaður, óskipulagður og
ósáttur ef ytra öryggi hans er ógn-
að, t.d. ef heilsa eða starf eru í húfi.
Þá er einnig gott að hafa hugfast
að jafnvel þótt þú hafir búið við
tilfinningalegt öryggi í æsku gætu
eiginleikar þínir til að mynda heil-
brigð tilfinningatengsl laskast ef þú
átt í langvarandi alvarlegu ofbeldis-
sambandi, upplifir slys, dauða eða
önnur alvarleg áföll.
Ef þú ert í sambandi við ein-
hvern sem hefur þessi einkenni,
reyndu þá að sýna viðkomandi
þolinmæði og gerðu þér jafnframt
grein fyrir því að það er ekki á þínu
valdi að lina allan þann andlega
sársauka sem viðkomandi býr við.
Þú getur hins vegar verið til staðar
og sýnt bæði alúð og stuðning
meðan viðkomandi vinnur í sínum
málum og nær betri tökum á eigin
tilfinningalífi. Ef þú hefur áhuga
á því að halda sambandinu áfram
máttu búast við því að hún/hann
láti reyna á þol þitt með því að
hegða sér með neikvæðum hætti
eða segja hluti sem hún/hann sér
yfirleitt eftir. Þetta gerir hún/hann
til að athuga hvort þú munir hafna
sér eða særa því þegar öllu er á
botninn hvolft þá hefur reynslan
einmitt kennt henni/honum það.
Ef þú hins vegar gerir þér grein
fyrir því hvað er raunverulega að
gerast og tekur hegðuninni eins
og hún er (og ekki of persónulega
þótt það sé vissulega erfitt) þá eru
góðar líkur á því að framkoma
viðkomandi muni fljótlega breytast
til hins betra, – og ef rétt er staðið
að málum þá gæti farsælt og fallegt
samband verið framundan. Þýtt og
endursagt úr tímaritinu Psychology
Today. Höf: Hal Shorey.
„Stundum líður fólki með tengslarösk-
un eins og það sé bæði vanmetið
og misskilið af öðrum og þá sérstaklega
þegar það á eftir að læra að leggja mat
á eigin hegðun og átta sig á því að það
er vanalega fyrst til að ögra og síðar hafna
nándinni og skuldbindingunni sem stóð því
jafnvel alltaf til boða.