Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Qupperneq 34
Útlit og heilsa Helgarblað 26. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Þetta er mjög gefandi starf. Mér finnst þetta algjört æði. Það er svo frábært að geta
hjálpað fólki og gert því kleift að ná
markmiðum sínum, en vanalega
komum við okkur saman um mark-
mið sem viðkomandi ætlar sér að
ná á tilteknum tíma, en mikilvægt
er að setja sér skammtíma sem og
langtíma markmið sem eru raun-
hæf,“ segir Unnur Óla, einkaþjálfari
í Sporthúsinu Kópavogi. Unnur, sem
verður þrítug á þessu ári, hefur
stundað íþróttir og líkamsrækt frá
unga aldri. Hún hefur keppt á 12
fitness-mótum frá árinu 2008 og
orðið bæði Íslandsmeistari og bik-
armeistari í módelfitness.
Þrátt fyrir mikla keppnisreynslu
liggur áhugi Unnar fyrst og fremst í
bættri heilsu og auknum lífsgæðum,
eða eins og Unnur segir: „Að líða vel í
eigin skinni er ekki sjálfgefið og þarf í
mörgum tilfellum hjálp við það.“ Það
lá því beint við fyrir hana að fara í
nám í einkaþjálfun og útskrifaðist
hún með einkaþjálfararéttindi frá
íþróttaakademíu Keilis í janúar 2016.
Skömmu síðar gerði hún samning við
Sporthúsið í Kópavogi og hefur síðan
þá starfað við einkaþjálfun með frá-
bærum árangri.
Að sögn Unnar er fjölbreyttur
hópur fólks hjá henni í einkaþjálf-
un, bæði konur og karlar, og með
mismunandi markmið eftir ólíku
ástandi sínu. „Meirihlutinn er samt
með þessi týpísku markmið, að vilja
missa kíló, styrkjast og auka þol. En
ég er líka með nokkra sem vilja bæta
á sig vöðvamassa, styrkja og móta
líkamann, sem og fólk með einhvers
konar meiðsli sem þarf að vinna
með. Það hendir að grannvaxið fólk
sé ekki í góðu formi og skorti mjög
vöðvastyrk og þol þó að óneitanlega
þurfi meirihlutinn að missa fitu en
allir eiga það sameiginlegt að vilja
líða vel líkamlega og andlega og er
mikilvægt að einblína ekki bara á
einhverja tölu á vigtinni,“ segir Unnur.
„Mataræðið skiptir gríðarlega miklu
máli, miklu meira máli en ég held að
fólki geri sér grein fyrir en það virðist
vera það sem flestum finnst hvað
erfiðast, það er svo mikilvægt að
hver og einn finni sinn gullna meðal-
veg í mataræði, því boð og bönn eru
ekkert spennandi en það hentar ekki
öllum það sama.“
Þeir sem æfa hjá Unni eru alla
jafna mjög lengi hjá henni í þjálf-
un sem vekur hjá henni ánægju:
„Þetta segir manni að maður sé að
gera eitthvað rétt. Örfáir hafa verið
skemur hjá mér en í þrjá mánuði og
ég er með marga sem hafa verið
hjá mér í yfir ár. Það er einstaklings-
bundið hvað fólk þarf langan tíma
undir handleiðslu einkaþjálfara.
Sumir þurfa bara einn mánuð til að
koma sér í gang eftir til dæmis frí,
veikindi eða hreinlega til að fá fjöl-
breytni í æfingarnar sínar, en hafa
sjálfstraustið og agann til að halda
síðan áfram sjálfir. Á meðan aðrir
hafa minni viljastyrk og þurfa miklu
meira og lengra aðhald.“
Unnur Óla býður bæði upp á
einkaþjálfun og þjálfun í litlum
hópum. Til að panta þjálfun eða fá
nánari upplýsingar er best að senda
tölvupóst á netfangið unnurola@
unnurola.is, hringja í síma 660-
6433 eða senda skilaboð á Face-
book-síðunni www.facebook.com/
UnnurOla. Unnur er líka með opinn
Snapchat-aðgang þar sem nokkur
þúsund manns fylgjast með henni
daglega. SC: unnurolaiak sem og
Instagram.com/unnurola.is.
Unnur Óla einkaþjálfari
FRÁBÆRT AÐ SJÁ FÓLK NÁ MARKMIÐUM SÍNUM
Mynd Heida HB
Mynd Heida HB