Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Qupperneq 33
Útlit og heilsa
26. janúar 2018
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is
BOOZTBARINN
Leiðandi í skyrdrykkjum og
öðrum heilsudrykkjum
Það er mikil hreyfing í samfélaginu í átt til aukinnar hollustu og
Booztbarinn hefur á margan
hátt verið leiðandi í þeirri þró-
un enda hefur hann starfað
allt frá árinu 2003, er fyrsti
Booztbarinn var opnaður í
Kringlunni.
„Við vorum í nokkrum
ólgusjó í byrjun því þessir
skyrdrykkir voru mikil nýjung
á Íslandi. Við opnuðum síðan
staðinn í Borgartúninu árið
2007,“ segir Kristinn Ingi Sig-
urjónsson hjá Booztbarnum
en staðirnir í dag eru þrír: Á
N1 Hringbraut á N1 í Borgar-
túni 39 og á N1 Ártúnshöfða.
Booztbarinn hefur notið
sífellt meiri vinsælda í gegn-
um árin, viðskiptavinum
fjölgar mikið og vöruúrvalið
eykst sífellt: „Breiddin hefur
aukist mikið. Þó að skyrdrykkir
séu langvinsælustu drykkirnir
sem við seljum þá höfum við
bætt við ýmsu öðru, til dæmis
vegandrykkjum með möndlu-,
kókos- og hrísmjólk. Síðan
erum við með nýja vöru sem
heitir Orkuskálar. Það eru
skyrhræringar sem við hellum
út í skálar og við toppum
síðan með ferskum ávöxtum
og granola. Þessir réttir njóta
mikilla vinsælda. Drykkir með
viðbótarpróteini njóta líka
stöðugt meiri vinsælda, ekki
síst hjá þeim sem fara mikið í
ræktina og eru að lyfta.“
Að sögn Kristins er bæði
hægt að neyta drykkjanna
sem aukabita og sem heillar
máltíðar. „Það fer eftir því
hvers konar rétt þú velur og
hvaða stærð,“ segir Kristinn
en aðspurður segir hann að
þessi fæða sé í senn mjög
næringarmikil og hitaein-
ingasnauð: „Þú ert að fá mjög
mikla næringu úr skyrinu,
ávöxtunum, grænmetinu,
fræjunum og höfrunum sem
þú ert að innbyrða en hita-
einingarnar eru fáar. Þú færð
mikið prótein og mikið kalk
sem er svo gott fyrir beinin,
en hitaeiningarnar eru ekki
margar. Það eru til dæmis
ekki nema um 70 hitaeiningar
í 100 grömmum af skyri.“
Þá er mikilvægt að geta
þess að hægt er að gera alla
booztdrykkina vegan með
því að skipta skyri eða öðrum
mjólkurvörum út fyrir kókos-
mjólk eða möndlumjólk.
Að sögn
Kristins
verður
viðskipta-
vina-
hópurinn
sífellt fjöl-
breyttari
og karlar
sækja
ekkert síð-
ur í þessa
heilnæmu
fæðu en konur:
„Viðskiptavina-
hópurinn kemur
okkur skemmtilega á
óvart en við fáum til dæm-
is mjög oft rafvirkja, pípara
og aðra iðnaðarmenn sem
mæta í vinnugallanum í
morgunmat eða hádegis-
mat,“ segir Kristinn.
„Það er einnig gaman
að sjá fulltrúa lögreglu og
slökkviliðs mæta í fullum
skrúða á
Booztbarinn
til þess að sækja sér orku.
Hingað koma mjög margir
fastagestir sem hafa átt við-
skipti við okkur árum saman,
nokkuð sem sýnir best að við
höfum verið á réttri leið,“ segir
Kristinn.
Þess má geta að Kristinn
er eini karlmaðurinn í stjórn-
endahópi Booztbarsins:
„Verslunar- og rekstrar-
stjórar fyrirtækisins eru allt
konur. Ég gæti ekki hugsað
mér öflugri félagsskap.
Þetta er skemmtilegur
vettvangur að vinna á og
allt sem við gerum hér er
í stöðugri þróun. Gæða-
eftirlitið er mikið og við
fylgjumst vel með því sem
við erum að kaupa inn, veljum
bara besta mögulega hrá-
efnið og erum sífellt að þróa
nýja drykki.“
Booztbarinn er á öllum
þremur stöðunum opinn frá
7.30 til 20.00 virka daga og
frá 10.00 til 18.00 um helg-
ar. Nánari upplýsingar eru á
vefsíðunni booztbarinn.is og
[Facebook-síðu Booztbarsins]
(https://www.facebook.com/
booztbar/)
Arna, verslunastjóri hjá
Booztbarnum í Borgartúni
Fjölbreyttir drykkir á Booztbarnum
Hið eina sanna SkyrBoozt – Ferskur
safi – Vegandrykkir
Myndir / Sigtryggur Ari
Vinsælt Combo: Speltklatti og drykkurOrkuskálar sem slegið hafa í gegn