Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2018, Page 42
Útlit og heilsa Helgarblað 26. janúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Stefán Michaelsson og Pálína Pálsdóttir eru eigendur True Viking Fitness, sem er heima-
síða sem býður upp á fjarþjálfun fyrir
alla á hagstæðu verði. Þau vinna
bæði sem einkaþjálfarar í World
Class og eru að fara eftir fimm vikur
á Arnold Classic í Bandaríkjunum
bæði sem keppendur og þjálfarar.
„True Viking Fitness byggist upp af
þeirri ástríðu okkar að breyta lífsstíl
fólks til hins betra, bæði líkamlega og
andlega,“ segir Stefán, en hann og
Pálína hafa bæði langan bakgrunn
í íþróttum og þjálfun og ástundun
heilbrigðs lífsstíls. Pálína er að klára
BA-ritgerð í sálfræði og Stefán BA-
ritgerð í íþróttafræði.
True Viking Fitness – fjarþjálfun
fyrir alla á hentugu verði
Á heimasíðunni er boðið upp á
æfingar, sem eru á hentugu verði
fyrir alla, þar sem Stefán og Pálína
vilja að fjarþjálfun sé aðgengileg
fyrir alla óháð efnahag. Þar er boðið
upp á nokkur prógrömm, bæði fyrir
byrjendur og lengra komna, sérstakt
prógramm er til að þjálfa rassinn,
enda vinsælt að vera með fallegan
afturenda.
Vefsíðan er á ensku, þrátt fyrir
að vera alíslensk. „Okkur langar að
nota Ísland sem stökkpall til að bjóða
fjarþjálfun erlendis, þess vegna er
heimasíðan á ensku,“ segir Pálína.
Líkamsrækt á að vera hluti af dag-
legum lífsstíl
„Það er frábært að sjá hvað margir
eru í ræktinni í janúar, en að sama
skapi er leiðinlegt að sjá að strax í
febrúar eru margir hættir að mæta,“
segir Pálina. „Ræktin ætti frekar að
vera hluti af daglegu lífi. Þetta er
langhlaup ekki spretthlaup. „Allir
kostir eru góðir kostir, svo lengi sem
þú ert í miðjunni,“ sagði Aristóteles,
það er gullni vegurinn sem gildir í
öllu.“
Pálína segir algengt að fólk sé
með bólgur og bjúg í kringum liði
þrátt fyrir að vera í góðu líkamlegu
ásigkomulagi, sem er ekki eðlilegt, en
er til komið út af álagi í ræktinni og
því að fólk drekkur ekki nóg af vatni.
„Við erum líka mikið að læsa liðun-
um og þá myndast bólgur í kringum
liðina og það kemur eiginlega ekki
fyrir að viðskiptavinur sem kemur
til mín sé ekki með bólgur. Það væri
gott jafnvægi á móti að stunda jóga
1–2 í viku.“
„Ég lifi fyrir sigrana hjá öðrum,“
segir Stefán aðspurður af hverju
hann byrjaði að þjálfa aðra í stað
þess að keppa og æfa bara sjálfur.
Tilvitnun sem þau halda upp á er
„No Lamb for the Lazy Wolf“ eða Lati
úlfurinn fær ekki lamb, sem þýðir
að sá sem hefur ekki fyrir hlutunum
uppsker ekki.
„Ég byrjaði að lyfta fyrir tíu árum,
þegar ég var nýbúin að eiga son
minn, en ég var alltaf frekar feit sem
barn og unglingur. Ég þurfti einnig
að vinna mikið í mér andlega, en allt
er hægt ef viljinn er fyrir hendi og
það er ekki gefist upp, “ segir Pálína
og segist jafnframt hafa gríðarlegan
áhuga á mannslíkamanum í heild
sinni.
Þau vinna vel saman sem par og
með áhugamál þeirra beggja að
leiðarljósi: áhugann á fólki og að
hjálpa þeim til betra lífs líkamlega,
andlega og sálfræðilega.
Heimasíða: truevikingfitness.com
og Instagram: truevikingfitness.
Pálína og Stefán eru bæði virk
á samfélagsmiðlum og má fylgjast
með þeim þar. Snapchat Pálínu:poll-
ieanna777 og Instagram: alpha_val-
kyrie. Instagram Stefáns: v1k1ng13.
Ég lifi fyrir sigrana hjá öðrum
TRUE VIKING FITNESS
FJARÞJÁLFUN Á HENTUGU VERÐI FYRIR ALLA