Morgunblaðið - 19.10.2017, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 19.10.2017, Qupperneq 16
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is naver collection GM 2152 Borðstofuborð DESALTO Skin keramik plata naver collection GM 7724 naver collection GM 9942 Ten armstólar CONDEHOUSE Ten borðstofuborð Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2017 Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Alinn upp í vesturbæ Reykja-víkur en leitaði ungur á vitævintýranna hefur lista-maðurinn Einar Baldvin skapað sér sérstöðu í listsköpun sinni og vakið athygli um allan heim. „Ég er bæði fæddur og alinn upp í Vesturbænum en þurfit að kveðja heimaslóðirnar árið 2005,“ segir Einar nokkuð hugsi líkt og hann sé að rifja upp gamlar minningar af heimaslóðunum en bætir svo við að dvölin í Banda- ríkjunum hafi ver- ið góð. „Ég flutti til Bandaríkjanna til að læra hreyfi- myndagerð við CalArts og tók síðan master í sama fagi við University of Southern California.“ Ýmislegt hefur á daga hans drif- ið en af margvíslegum verkefnum hans verður ekki hjá því komist að spyrja hann um stuttmyndina The Pride of Strathmoor. „Já, ætli það beri ekki helst að nefna hana af því sem ég hef gert hingað til. The Pride of Strathmoor er teiknuð stuttmynd eftir mig sjálf- an og hefur farið í sýningu um allan heim og unnið til fjölda verðlauna.“ Hin forna hrollvekja Listamaðurinn situr aldrei auð- um höndum og nú bíða margir spenntir eftir nýjasta sköpunarverki Einars, The Crawling King. Um er að ræða 200 blaðsíðna ævintýrabók í hrollvekjustíl. „Ég er mjög spenntur fyrir út- gáfunni sjálfur en bókin er hand- skrifað og myndskreytt safn af hroll- vekjum sem gerast allar í sömu borg, Gyldenbrae, og nágrenni hennar,“ segir Einar og bætir því við að sög- urnar fjalli allar á einn eða annan hátt um dularfulla eyðileggingu borgarinnar. „Þetta er hugsað eins og safn ævintýra, þjóðsagna, bréfa, málverka og teikninga úr ímynd- uðum heimi.“ Vinnan á bak við verkið hefur verið gífurleg en meðal þess sem Ein- ar hefur gert er að setja handrit bók- arinnar upp með slíkum hætti að ætla mætti að hún hefði fundist í heiðinni gröf eða fornu bókasafni. „Mikið rétt,“ segir hann og bros- ir. „Ég brenndi hluta síðanna og fór líka yfir þær með kaffi til að gefa þeim áferð gamalla handrita. Hug- myndin er nefnilega sú að láta hverja síðu virðast vera hluti af fornu hand- riti.“ Óskarinn, Amazon og Einar Á bak við útgáfu Einars Bald- vins á The Crawling King er fyrir- tækið Starburns Industries studio en það hlaut óskarstilnefningu fyrir myndina Anomalisa og gefur út teiknimyndaseríuna vinsælu Rick and Morty. „Ákveðið var að fara með bókina í forsölu á Kickstarter og það gekk framar okkar björtustu vonum,“ seg- ir Einar en þar safnaði hann rúmlega 12 milljónum króna og er búinn að selja rúmlega sextán hundruð bækur. „Það má með sanni segja að fyrstu viðbrögð hafi verið góð. Þetta er þrefalt meira en við þurftum til að prenta fyrsta upplag.“ Bókin er komin í prentun en ætl- unin er að hún komi í verslanir fyrir jól. „Prentarinn er að meðhöndla hana núna en mig langar að koma henni út fyrir jólin og geri fastlega ráð fyrir því að hún verði komin í al- menna sölu fyrir hátíðarnar.“ Spurður hvar aðdáendur hans geti nálagst bókina segir Einar Bald- vin að hún verði til sölu í bókabúðum í Bandaríkjunum en líka á Amazon, þar sem hægt verður að senda hana til lesenda hvar í heiminum sem þeir eru niðurkomnir. „Mig langar líka að koma bók- inni í sölu á Íslandi þannig að fólk geti handfjatlað hana og skoðað með öðr- um hætti en á Amazon.“ Stórt verkefni fram undan Eitt verkefni tekur við af öðru og segist Einar Baldvin nú vinna að frekar stóru verkefni sem hann getur ekki tjáð sig um að svo stöddu. „Já því miður, ég get ekki tjáð mig um það á þessu stigi en ég get sagt þér að þetta er nokkuð sem ég er búinn að reyna að koma í gang í nokkur ár og virðist loks vera að smella saman,“ segir hann og er aug- ljóslega spenntur fyrir því sem fram undan er. „Síðan er fólk strax byrjað að spyrja mig um framhaldið á The Crawling King þó svo það hafi ekki einu sinni lesið þessa bók ennþá! Ég er því aðeins farinn að huga að fram- haldinu.“ Úr rótgrónu og sögulegu hverfi í Reykjavík má segja að Einar Baldvin sé kominn vel á veg í vegferð sinni til stjarnanna í menningar- og lista- heimi Bandaríkjanna eða eins og hann myndi kannski orða það í ævin- týrum sínum: Per ardua ad astra. Ævintýraleg hroll- vekja Einars Baldvins Listamaðurinn Einar Baldvin er margverðlaunaður fyrir verk sitt The Pride of Strathmoor. Núna er í prentun bók hans The Crawling King, en hann hefur þegar selt 1.600 eintök og safnað 12 milljónum fyrir útgáfunni á Kickstarter. Hrollvekja Bókin The Crawling King segir sögu borgar sem eitt sinn var en er nú lítið annað en rústir einar. Einar brenndi hluta síðnanna og fór yfir þær með kaffi til að ljá þeim áferð gamalla handrita. Einar Baldvin List Úr bók Einars Baldvins, en hann handskrifar textann og teiknar mynd- irnar. „Þetta er hugsað eins og safn ævintýra, þjóðsagna, bréfa, málverka og teikninga úr ímynduðum heimi,“ segir Einar Baldvin.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.