Morgunblaðið - 19.10.2017, Qupperneq 75
MINNINGAR 75
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2017
✝ SvanhildurSveinbjörns-
dóttir fæddist í
Vestmannaeyjum
26. september
1965. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans 9. októ-
ber 2017.
Foreldrar Svan-
hildar eru Svein-
björn Guð-
laugsson, f. 4.12.
1925, og Svanhildur Guð-
mundsdóttir, f. 29.8. 1931.
Systkini Svanhildar eru Gísli,
f. 7.4. 1954, og Emilía, f. 24.9.
1958.
Hinn 13.9. 1997 giftist Svan-
hildur Arnari Jónssyni við-
skiptafræðingi, f. 28.10. 1965,
en þau hófu sambúð 1990.
Svanhildur og Arnar eignuðust
tvær dætur, þær Karen, f.
verðandi eiginmanni, til Dan-
merkur og hófu bæði fram-
haldsnám í fjármálum og
reikningshaldi við Handelshøj-
skolen í Kaupmannahöfn.
Svanhildur lauk cand.merc.-
prófi frá Handelshøjskolen ár-
ið 1996. Sama ár fluttu Svan-
hildur og Arnar aftur til Ís-
lands. Starfaði hún sem
sérfræðingur hjá lyfjaverðs-
nefnd til ársins 2001 og hjá
Tryggingastofnun Íslands frá
2002 til 2006. Í störfum sínum
hjá ofangreindum stofnunum
kom hún að margvíslegum
verkefnum varðandi lyfjamál
og verðlagningu lyfja á Íslandi
og lagði ásamt öðrum grunn
að þeim lyfjagagnagrunni sem
nú er notaður í heilbrigð-
iskerfinu. Frá árinu 2006 var
Svanhildur heimavinnandi og
helgaði líf sitt uppeldi dætra
sinna tveggja og uppbyggingu
á fallegu heimili fjölskyld-
unnar.
Útför Svanhildar verður
gerð frá Vídalínskirkju í
Garðabæ í dag, 19. október
2017, klukkan 15.
25.1. 2001, og Em-
ilíu, f. 22.9. 2004.
Fjölskyldan er bú-
sett í Garðabæ.
Svanhildur flutti
með foreldrum
sínum upp á land
eftir eldgosið á
Heimaey, fyrst til
Reykjavíkur, með
viðkomu í Kópa-
vogi, en síðar í
Mosfellssveit, þar
sem Svanhildur ólst upp. Svan-
hildur útskrifaðist frá
Menntaskólanum við Sund og
stundaði síðan nám í við-
skiptafræði við Háskóla Ís-
lands og lauk þar cand.oecon.-
prófi 1991 sem hagfræðingur.
Svanhildur starfaði eftir út-
skrift á Hagfræðistofnun Há-
skóla Íslands. Haustið 1993
hélt Svanhildur ásamt Arnari,
Elsku mamma, mamma mín.
Mér finnst andlát þitt vera bæði
óréttlátt og ósanngjarnt. Maður
spyr sig „af hverju mamma
mín?“ og „af hverju við?“. Mér
líður eins og það hafi verið í gær
að þú áttir fimmtugsafmæli og
við fögnuðum öll fjölskyldan
saman í huggulegheitum uppi í
sumarbústað. Þannig vildir þú
hafa það; ekkert flókið, engin
veisla eða fínheit, bara við fjöl-
skyldan að borða góðan mat og
hlæja. Ég sakna þess að koma
heim úr skólanum og sjá þig
brosandi og spyrjandi hvernig
hafi gengið þann dag og hvernig
þú nenntir að hlusta á hverja
unglingasöguna á eftir annarri.
Ég sakna þess að þú haldir utan
um mig, þú varst svo mjúk og þú
lyktaðir svo vel. Þú misstir aldrei
vonina og barðist eins og hetja
allan tímann þótt greiningin í
byrjun hafi verið þungur dómur.
Þú varst hörkujaxl og sjálfstæð
glæsikona sem ætlaði ekki að
láta neitt stoppa sig. Þú varst
svo handlagin, þú gerðir við allt
sem bilaði, öll útvörp, allar vélar,
öll ljós, þú tókst þig meira að
segja til og hljóðdempaðir allt
húsið af því þú varst orðin leið á
bergmálinu.
Ég veit að það var ekki létt að
hætta að vinna og hugsa alfarið
um mig og systur mína en þú
gerðir það samt og er ég æv-
inlega þakklát fyrir að hafa feng-
ið lengri tíma með mömmu minni
á þessum árum en flest börn fá.
Sumarbústaðurinn verður
okkar griðastaður. Þar munum
við koma, leggjast á grasflötina
fyrir framan bústaðinn og horfa
upp til þín og þú niður til okkar.
Þar mun ég segja þér allt það
sem er að gerast í lífi mínu þann-
ig að þú missir ekki af neinu. Þar
mun ég líka koma með börnin
mín og leyfa þeim að fá að njóta
þess sem þú hefur gert þar.
Elsku mamma, ég vona að þú
hvílir í friði. Ég á eftir að sakna
þín á hverjum einasta degi og ég
er sannfærð um að við eigum eft-
ir að hittast aftur.
Karen.
Elsku Svanhildur frænka, lífið
getur stundum verið ósann-
gjarnt.
Þegar ég skrifa þessi minning-
arorð kemur fyrst upp í huga
mér þakklæti fyrir þann tíma
sem ég fékk með þér, sem var
allt of stuttur. Þú varst alltaf
með réttu svörin við öllu og varst
óspör á góð ráð. Það er ómögu-
legt að hugsa sér lífið án þín en
við verðum að halda áfram, það
hefðir þú viljað, elsku Svanhild-
ur. Ég mun aldrei gleyma þeim
góðu stundum sem við áttum
saman öll jól frá því ég man eftir
mér, og öllum sumar-
bústaðarferðunum okkar í
Skorradalinn og í Tintu þar sem
gleðin var alltaf við völd.
Ég dáðist að þér í móðurhlut-
verkinu og mun því taka þig til
fyrirmyndar í uppeldi dóttur
minnar. Þú munt ávallt eiga
stóran stað í hjarta mínu og ég
mun halda minningu þinni á
lofti, elsku Svanhildur mín. Þín
verður ávallt sárt saknað. Megi
Guð vera með þér og gefa
Arnari, Karen og Emilíu styrk á
þessari erfiðu stundu.
Ég mun elska þig til æviloka,
Þinn frændi
Jóhann.
Elsku Svanhildur mín, sorgin
er yfirþyrmandi. Höggið er svo
þungt. Veikindi þín skullu á eins
og þruma úr heiðskíru lofti.
Hvernig má það vera að þú sért
ekki lengur hjá okkur? Þetta
gerðist allt of hratt.
Við vorum í miðju kafi að
skipuleggja framtíðina, og sum-
arið sem átti að vera ansi við-
burðaríkt. Við ætluðum að hafa
svo gaman, gera meira, hlæja
meira og einfalda líf okkar svo
að það væri örugglega pláss fyr-
ir alla þessa gleði.
Það er svo sárt að horfa á eft-
ir þér, þú varst límið í litla hópn-
um okkar. Þú varst leiðtoginn
okkar sem leiðbeindi okkur á
þinn einstaka hátt. Þú gafst svo
mikið af þér, þú gafst okkur allt
þitt.
Þú hlóst svo innilega, grést,
gladdist, huggaðir, leystir flækj-
ur og leiðbeindir, ekkert var þér
ofviða. Þú varst ofurkonan mín.
Ég leit svo upp til þín, þú varst
Svanhildur frænka mín, en í
laumi varst þú stóra systir mín.
Þú leiddir mig áfram í lífinu og
fyrir það verð ég ævinlega þakk-
lát.
Ég mun sakna þess að geta
hringt í þig, ég mun sakna þess
að heyra röddina þína og hlátur.
Lífið verður aldrei eins án þín.
Þrátt fyrir þennan mikla tóm-
leika, sorg og depurð er þakk-
læti mér ofarlega í huga. Þakk-
læti fyrir að hafa kynnst
einstakri konu. Það er enginn
þér líkur, þú toppar allt. Þú ert
einfaldlega sú allra besta.
Elsku dætur þínar, Emilía og
Karen, munu alltaf eiga griða-
stað hjá mér. Ég mun leiðbeina
þeim í þínum anda og eftir bestu
getu, miðla úr þeim viskubrunni
sem þú hefur lagt grunn að.
Elsku Arnar, Karen og Em-
ilía, ég veit að söknuður ykkar
er mikill og sorgin virðist óyf-
irstíganleg. Þið getið verið stolt
af ykkar einstöku Svanhildi;
sem eiginkona og móðir, systir,
frænka og dóttir gæddi hún líf
okkar allra gleði og styrk.
Svanhildur, takk fyrir allt
sem þú hefur gefið mér og fjöl-
skyldu minni. Fyrir þig er ég
svo þakklát. Hvíl í friði, elsku,
Svanhildur mín.
Þín
Hrafnhildur.
Elsku Svanhildur stóra
frænka mín, mér fannst alltaf
svo gaman að ferðast með þér í
Skorradalinn, Tintu og á alla
þessa skemmtilegu staði.
Þú varst fyrirmyndin mín. Þú
gladdir mig alltaf. Þú varst alltaf
svo kát og glöð. Ég vona að þú
hafir verið sátt við lífið sem þú
lifðir með okkur.
Þú munt alltaf búa í hjarta
mínu og ég mun sakna þín.
Kveðja, þín litla frænka
Indíana.
Hún Svanhildur kvaddi á fal-
legum degi.
Við hittum þessa fallegu og
hæglátu stúlku fyrst, þegar Arn-
ar kynnti hana fyrir fjölskyld-
unni er þau voru enn við nám í
Háskólanum. Það var mikil gæfa
að fá að fylgjast að með þeim
Arnari, Svanhildi og stelpunum
þeirra þeim Karenu og Emilíu í
gegnum lífið. Þeirra fallega
heimili var alltaf gott að heim-
sækja enda var gestrisni þeirra
mikil. Alla tíð áttum við sérlega
góð samskipti og erum þakklát
fyrir samferðina.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Við kveðjum Svanhildi með
virðingu og miklu þakklæti fyrir
góðar minningar og vináttu.
Elsku Arnar, Karen og Em-
ilía, megi almættið gefa ykkur
styrk í ykkar miklu sorg.
Smári og Áslaug,
Jón Fannar,
Thea og Davíð,
Guðjón og Valdís.
Það er sorglegra en hægt er
að tjá með orðum þegar móðir
deyr frá tveimur táningsdætrum
og eiginmanni þegar lífsgangan
ætti aðeins að vera rétt hálfnuð.
Þessi fjölskylda átti eftir að upp-
lifa svo margt saman. Við minn-
umst því vinkonu okkar, Svan-
hildar Sveinbjörnsdóttur, sem
lést eftir stutt en erfið veikindi
með harm í hjarta.
Kynni okkur hófust á Bjark-
argötunni þar sem við lásum
saman í viðskiptafræðinni og þar
fann Svanhildur líka Arnar Jóns-
son, ástina í lífi sínu. Við komum
hvert úr sinni áttinni en þarna
var spunninn þráður sem hélst
óslitinn og vinkonur okkar voru
fljótar að gera þessa hressu og
skemmtilegu stelpu að sinni.
Svanhildur var þá svolítið eins
og stormsveipur; röskur og dríf-
andi töffari sem vílaði ekkert fyr-
ir sér og hélt uppi stuðinu í
kringum sig með meitluðum
húmor. Það var dæmigert að
þegar henni ofbauð draslið þreif
hún án þess að nöldra í okkur,
gekk bara í verkin. Ef eitthvað
bilaði græjaði hún það líka, skipti
um pakkningu í krananum eða
skrúfaði saman lasna hillu. Sjálf-
stæðisþörfin var rík í Svanhildi,
hún vildi geta bjargað sér með
alla hluti og til dæmis gerði hún
sjálf við bílinn sinn.
Hún fór líka eigin leiðir og lét
engan segja sér fyrir verkum. Í
útskriftarferðinni til Singapúr og
Balí fór hópurinn í fyrirtækja-
heimsóknir. Þá klæddu strák-
arnir sig í jakkaföt og við stelp-
urnar í dragtir, nema
Svanhildur. Hún ætlaði ekki að
fylgja svona fáránlegum reglum.
Um leið var klassi yfir henni, en
það var hennar eigin persónulegi
stíll í samræmi við skapgerð
hennar og karakter.
En svo var önnur hlið á Svan-
hildi sem fékk meira pláss með
árunum, heimakæri fagurkerinn
með grænu fingurna þar sem
fjölskyldan var miðpunkturinn.
Hún var nefnilega í aðra röndina
hlédræg og sjálfri sér nóg, naut
sín best í litlum hópi. Heimilið
lýsti henni líka vel þar sem hvert
atriði var útpælt og allt miðað að
því að skapa notalega og hlýlega
umgjörð um lífið. Hlutverk gest-
gjafans fór henni vel og þess
fengum við að njóta. Matarboðin
voru ekki bara þau skemmtileg-
ustu heldur fann maður hvað
gestirnir voru alltaf innilega vel-
komnir og nostrað við alla hluti
svo öllum liði vel.
Minningar um Svanhildi
streyma fram en við stöldruðum
sérstaklega við eina, engan stór-
viðburð, bara afslappaða sam-
veru á sumardegi. Kannski
vegna þess að hún er í senn svo
falleg og sár. Fyrir fimmtán ár-
um hittumst við þrjár með fjöl-
skyldum okkar í sumarbústað á
Laugarvatni og áttum saman
yndislegan dag. Lífið lék við okk-
ur og framtíðin blasti við björt
og skær í augum barnanna okkar
litlu sem léku sér áhyggjulaus í
blíðunni. Í dag er sárt að rifja
þetta upp, nú þegar fallegu syst-
urnar horfa á eftir ástkærri móð-
ur og Arnar á eftir lífsförunaut
sínum.
Minningin um heilsteypta og
yndislega manneskju mun lifa og
allar ánægjustundirnar með
þessari kláru, skemmtilegu,
traustu og hlýju vinkonu, minn-
ingin um Svanhildi sem öllum
þótti vænt um sem voru svo
gæfusamir að fá að kynnast
henni. Elsku Arnar, Karen og
Emilía, megi allar góðar vættir
styrkja ykkur í sorginni.
Ásgerður og Thelma.
Elsku Svanhildur mín er dáin.
Dáin langt fyrir aldur fram, að-
eins 52 ára í blóma lífsins. Ég
kynntist Svanhildi þegar við vor-
um unglingar og höfum við brall-
að ýmislegt saman eftir það. Við
fylgdumst að í menntaskóla, hún
í MS og ég í MK. Einhvern tím-
ann á þessum árum kviknaði
Frakklandsbakterían í okkur og
fórum við báðar sem au pair til
Frakklands sumarlangt. Við vor-
um ekki búnar að fá nóg af land-
inu heldur bættum um betur og
fórum í háskóla í Lyon.
Tíminn þar var okkur ógleym-
anlegur; styrkti og dýpkaði vin-
áttu okkar sem var þó ærin fyrir.
Svanhildur var yndisleg mann-
eskja. Gefandi og traustur vinur.
Hafði óþrjótandi kímnigáfu og
hláturinn var aldrei langt undan.
Hún var ráðagóð, alltaf tilbúin að
gefa af sér. Svanhildur var ein-
staklega laghent. Það lék hrein-
lega allt í höndunum á henni. Það
kom sér oft vel að eiga hana að
þegar eitthvað fór að bila í íbúð-
inni sem við bjuggum í. Stífla í
baðkarinu eða slanga fór að leka,
Svanhildur mætt með skrúfjárn
og rörtöng að vopni og málinu
reddað í snatri. Það var í raun al-
veg aðdáunarvert hversu útsjón-
arsöm og áræðin hún gat verið.
Minningin mín um Svanhildi er
hlýja, bros og hlátur.
Í dag fylgi ég þér síðasta spöl-
inn.
Ég kveð þig með táraflóði og
djúpum söknuði, elsku Svanhild-
ur mín.
Hvíl í friði.
Elsku Arnar, Karen og Em-
ilía, ég votta ykkar mína dýpstu
samúð.
Elfa Dís Austmann
Jóhannsdóttir.
Við vinkonurnar vorum svo
gæfusamar að kynnast í barna-
skóla og fylgdumst að síðustu
barnaárin okkar og öll unglings-
árin. Ár sem einkenndust af
fjöri og endalausum uppátækj-
um. Tímar sem urðu okkur
óþrjótandi brunnur skemmti-
legra minninga sem við leituðum
svo oft í síðar. Við urðum full-
orðnar, hittumst minna sumar
eitthvað og aðrar ekkert. Fyrir
tæpum 20 árum hafði Svanhild-
ur frumkvæði að því að við
stelpurnar hittumst aftur. Síðan
þá höfum við átt óteljandi stund-
ir saman, daga fram á kvöld,
kvöld fram á nótt og ferðir þar
sem við höfum átt nokkra daga
saman. Svanhildur var allt í
senn lífsglöð, hugmyndarík og
frábær húmoristi en líka hlý,
umhyggjusöm og yndisleg vin-
kona okkar sem við söknum
sárt.
Svanhildur var mikil fjöl-
skyldumanneskja, Arnar og
stelpurnar þeirra voru fjöreggið
hennar. Harmur þeirra, foreldra
og systkina er mikill, hugur okk-
ar er hjá þeim.
Hversvegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði)
Takk fyrir allt og allt, elsku
Svanhildur.
Anna, Hólmfríður,
Gígja, Hildur og
Sigríður.
Svanhildur
Sveinbjörnsdóttir
Elskulegur faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
EYJÓLFUR A. MAGNÚSSON
frá Ólafsvík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli miðviku-
daginn 11. október.
Útför hans fer fram frá Langholtskirkju mánudaginn 23. október
klukkan 13.
Guðrún V. Stefánsdóttir Björn Ágústsson
Halldóra Eyjólfsdóttir Mats Arne Jonsson
S. Katrín Eyjólfsdóttir Arnaldur S. Baldursson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
ÞRÖSTUR HARALDSSON
vélvirki,
Mýrum 13,
Patreksfirði,
sem lést á Landspítalanum 14. október,
verður jarðsunginn frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn
21. október klukkan 14.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þórey Arna Haraldsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
DAGBJARTUR GARÐAR EINARSSON
frá Ásgarði í Grindavík,
lést miðvikudaginn 18. október.
Útför hans verður auglýst síðar.
Birna Óladóttir
Einar Dagbjartsson
Elín Þóra Dagbjartsdóttir Arnþór Einarsson
Eiríkur Óli Dagbjartsson Sólveig Ólafsdóttir
Jón Gauti Dagbjartsson Irmý Rós Þorsteinsdóttir
Sigurbjörn D. Dagbjartsson
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegustu þakkir fyrir vinakveðjur og
auðsýnda samúð við andlát og útför
elsku móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
SIGURBJARGAR HLÖÐVERSDÓTTUR
frá Djúpavogi,
Þingvallastræti 34, Akureyri,
sem lést fimmtudaginn 31. ágúst.
Guð blessi ykkur öll.
Jón Hlöðver Áskelsson Sæbjörg Jónsdóttir
Freyr Áskelsson Friðbjörg K. Hallgrímsdóttir
Rósa Áskelsdóttir Högne Steinbakk
Aðalbjörg Áskelsdóttir Gísli Már Ólafsson
Hörður Áskelsson Inga Rós Ingólfsdóttir
Gunnhildur Áskelsdóttir Knut Jarbo
Lúðvík Áskelsson Aðalheiður Ósk Sigfúsdóttir
tuttugu barnabörn og
þrjátíu og átta barnabarnabörn