Morgunblaðið - 19.10.2017, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2017
10%
afsláttur af
lausasölulyfjum
20%
afsláttur af
öllum vörum
Pi
pa
r\T
BW
A
\
SÍ
A
Verið velkomin
Lyf & heilsa hefur flutt úr
JL-húsinu út á Granda. Við fögnum
flutningunum með góðum tilboðum
og sama langa opnunartímanum.
Gríptu tækifæriðá Granda
Opnunartilboð gildir til 20. október í Lyfjum & heilsu Fiskislóð 1,
Granda.
Opið fyrir þig Mán–fös
8–22
Lau–sun
10–22
Þetta var birt í íslenskum frétt-um: „Ég skora á íslensk stjórn-
völd að stilla sig um að beita frekari
hömlum á umfjöllun fjölmiðla um
þetta mál og afturkalla þær aðgerð-
ir sem þegar hefur verið ráðist í.“
Þetta sagðiHarlem Dés-
ir, fulltrúi Örygg-
is- og samvinnustofnunar Evrópu,
ÖSE, á ráðstefnu í morgun.“
Spurningin sem þessi furðufréttvekur er þessi: Hver afvega-
leiddi þennan skrifstofumann?
Af hverju kynnti hann sér ekkimálið áður en hann hljóp á sig
og skoraði á „íslensk stjórnvöld að
stilla sig!!!?“ Hvaða íslensk stjórn-
völd?
Slitastjórn fallins banka segir aðtrúnaðarupplýsingum um þús-
undir manna hafi verið stolið frá
sér og þjófsnautarnir hafi ekki
heimild til að brúka þær. Þessi slit-
astjórn tilheyrir ekki „íslenskum
stjórnvöldum“.
Umræðan um málefni BjarnaBen er gömul, var enduvakin
og hefur farið fram í viku. Hann
hefur ekki amast við henni. Lög-
bann sneri að þeim öðrum sem ekki
hafa verið nefndir til sögu. Mál
varðandi þær þúsundir manna er
nú á forræði dómstóla.
Telur evrópskur skrifstofumaðurað hann sé bær til að gefa þeim
fyrirmæli? Íslensk stjórnvöld hafa
ekki slíka heimild. Gerðu þau það
gæti skrifstofumaðurinn og allir
aðrir réttilega fordæmt þá ósvinnu.
Væri ekki gustuk að benda Désirá þetta, fremur en að etja hon-
um á foraðið?
Hvaðan kom
ruglið?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 18.10., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 8 alskýjað
Akureyri 7 alskýjað
Nuuk 1 léttskýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló 9 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 rigning
Stokkhólmur 8 heiðskírt
Helsinki 8 skýjað
Lúxemborg 17 heiðskírt
Brussel 19 heiðskírt
Dublin 12 skýjað
Glasgow 11 skýjað
London 14 þoka
París 19 heiðskírt
Amsterdam 15 þoka
Hamborg 13 heiðskírt
Berlín 16 heiðskírt
Vín 19 heiðskírt
Moskva 11 skýjað
Algarve 20 léttskýjað
Madríd 12 rigning
Barcelona 21 rigning
Mallorca 25 léttskýjað
Róm 20 heiðskírt
Aþena 21 heiðskírt
Winnipeg 12 léttskýjað
Montreal 14 léttskýjað
New York 18 heiðskírt
Chicago 14 heiðskírt
Orlando 24 rigning
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
19. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:32 17:55
ÍSAFJÖRÐUR 8:44 17:52
SIGLUFJÖRÐUR 8:28 17:35
DJÚPIVOGUR 8:03 17:22
Ekki náðist samkomulag um
skiptingu kolmunna á fundi
strandríkja í London í vikunni.
Hins vegar var ákveðið að setja
kvóta samkvæmt ráðgjöf ICES og
nýtingarstefnu sem samþykkt var
í fyrra.
Samkvæmt því er miðað við að
heildarafli verði tæp 1.388 þúsund
tonn á næsta ári, sem er 3% pró-
sent aukning. Ísland gaf út kvóta
fyrir þetta ár sem nam 19,7% af
ráðlagðri heildarveiði en reyndist
síðan vera 15,2% af heildarkvóta
allra strand- og veiðiríkja.
Á fundinum talaði Ísland fyrir
minni kvóta í ljósi þess að ekkert
samkomulag er og kvótasetning
verður í heild langt umfram það
sem að er stefnt. Ekki var tekið
undir tillöguna.
Viðræður um stjórnun veiða
Alþjóðahafrannsóknaráðið,
ICES, lagði í haust til, í samræmi
við langtímanýtingarstefnu, að afli
ársins 2018 yrði ekki meiri en
1.388 þúsund tonn. Ráðgjöf fyrir
árið 2017 var litlu lægri eða 1.340
þúsund tonn en gert er ráð fyrir
að aflinn á árinu verði um 1.559
þúsund tonn.
Í gær hófust viðræður um
stjórnun veiða á norsk-íslenskri
síld, sem reiknað er með að ljúki
fyrir helgi. aij@mbl.is
Bjarni Ólafsson AK Tvö skip hafa
reynt fyrir sér á kolmunnaveiðum í
íslenskri lögsögu undanfarið.
Miðað við
ráðgjöf í
kolmunna
Ísland talaði fyrir
minni kvóta næsta ár
Viðskipti