Morgunblaðið - 19.10.2017, Blaðsíða 66
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2017
Sigurður Þorri Gunnarsson
siggi@mbl.is
Það er merkilegt til þess að hugsa að
það er tæpur áratugur síðan Agent
Fresco spratt fram á sjónarsviðið í
Músíktilraunum 2008. Hljómsveitin
er heldur betur enn í fullu fjöri og
munu þeir halda upp á tíu ára af-
mælið í febrúar á næsta ári. Það var
ekki alveg beint planað hjá Arnóri
Dan að verða forsöngvari í hljóm-
sveit þegar kallið kom á sínum tíma.
Ég bjó í Danmörku og var á leiðinni
heim aftur frá Íslandi og er í raun
alltaf á leiðinni heim aftur, segir
Arnór sem er alinn upp í Danmörku.
„Ég var kominn inn í leiklistarskóla
og búinn að borga staðfesting-
argjaldið og hætti við á síðustu
stundu. Arnór segist vera meiri Dani
en Íslendingur. Ég skammast mín
pínu, ég held að John Grant tali betri
íslensku en ég, segir Arnar og hlær.“
33 tónleikar á fimm vikum
„Í Rússlandi er alltaf ógeðslega
gaman; upplifa eitthvað sem maður
hefur ekki upplifað áður. Kaup-
mannahöfn eins og alltaf. Þýskaland
er alltaf næs og svo förum við aftur
til Barcelona og Madrídar, sem er
spennandi vegna þess sem er í gangi
þar núna. Búdapest er alltaf geggjuð
líka,“ segir Arnór spurður hvaða
staði hann hlakki mest til að heim-
sækja. „Það sem ég elska mest líka
er eftir tónleikana að stökkva út og
hitta fólkið. Ég fer alltaf í það eftir
tónleika og þar næ ég í hellings
orku,“ bætir Arnór við um það sem
hann hlakkar mest til á ferðalaginu.
Hljómsveitin er á samningi hjá
þýsku plötufyrirtæki sem markaðs-
setur sveitina í Evrópu.
„Þýskaland er svo stór markaður
og alltaf gengið vel að halda tónleika
þar,“ segir Arnór en hljómsveitin
mun koma fram í 21 landi á þessum
fimm vikum, allt frá Rússlandi til Ír-
lands.
„Vignir, bassaleikarinn okkar, er
að verða pabbi núna á næstunni og
kemur því ekki með okkur í ferða-
lagið. Því fengum við til liðs við okk-
ur danskan bassaleikara sem heitir
Nikolai sem spilar með hljómsveit-
inni Vola. Hann kom til landsins á
mánudaginn og við erum búnir að
vera að æfa saman. Við ætlum að
halda smá prufutónleika á Bryggj-
unni Brugghúsi í kvöld og spila okk-
ur saman. Það verður frítt inn og all-
ir velkomnir,“ segir Arnór.
Tónleikarnir hefjast um kl. 21.00 og
eins og fyrr segir er frítt inn. Þetta
er líka ágætt tækifæri til þess að
kveðja sveitina áður en hún heldur í
tónleikaferðina um Evrópu.
„Ég er stressaður en
spenntur,“ segir Arnór
Dan, söngvari Agent
Fresco, en sveitin heldur
í næstu viku utan til
þess að halda tónleika
vítt og breitt um Evrópu.
Hljómsveitin, sem hefur
skipað sér í raðir þeirra
allra vinsælustu hér á
landi, fagnar tíu ára af-
mæli á næsta ári.
Á flakk Hljómsveitin Agent Fresco mun halda í tónleikaferð um Evrópu á næstu dögum.
Skemmtilegast að hitta fólkið
HÁGÆÐA POTTAR
OG PÖNNUR
Á ALLAR GERÐIR ELDAVÉLA
Sigurður Þorri Gunnarsson
siggi@mbl.is
„Senn líður að kosningum,“ eins
og þingmaðurinn í Dalalífi sagði
forðum í flórnum. Umræðan í
aðdraganda kosninga snýst mik-
ið um að horft sé til framtíðar og
um uppbyggingu innviða í sam-
félaginu. Þegar rætt er um inn-
viðauppbyggingu má ekki
gleyma sér bara í umræðum um
steinsteypu og malbik heldur
þarf að huga að listinni. Ég spái
því t.d. að á næsta áratug verði
tónlist ein af okkar helstu út-
flutningsvörum. Hún er reyndar
nú þegar orðin stór útflutnings-
vara og eru íslenskir tónlist-
armenn úti um allan heim ann-
aðhvort að skrifa undir
plötusamninga eða á tónleika-
ferðalagi. Það má ekki gleyma
að hlúa að tónlistarfólkinu okkar
og gera umhverfið þannig að
hæfileikafólk geti skapað sína
list og lifað á henni. Ekki má
heldur gleyma því að góð tónlist
er ígildi heilu bílfarmanna af
geðlyfjum. Ég nota tónlist mjög
mikið sjálfur, bæði til þess að
gleðja mig þegar mér líður ekki
nógu vel eða róa mig þegar
stressið er mikið. Svo flæða góð-
ir hormónar um líkamann þegar
komið er heim af góðum tón-
leikum, t.d. úr fallega og góða
tónlistarhúsinu okkar, Hörpu.
Áfram íslenskir tónlistarmenn,
takk fyrir að gleðja okkur og
vera glæsilegir fánaberar lands-
ins okkar erlendis!
Gleymum ekki tónlistinni