Morgunblaðið - 19.10.2017, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2017
TOPPUR ehf
Bifreiðaverkstæði
TOPPUR er viðurkennt
þjónustuverkstæði fyrir
Skemmuvegi 34 • Kópavogi • Sími 557 9711 • toppur@toppur.is
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Íslenskir útflytjendur sjávarafurða
þurfa að borga helmingi meira til að
koma fiski á markað í Evrópu en
kollegar þeirra í Noregi. Þetta kom
fram í máli Þorsteins Más Baldvins-
sonar, forstjóra Samherja, á ráð-
stefnunni Sjávarútvegsdeginum sem
fram fór í Hörpu á þriðjudag, en fyr-
ir henni stóðu Deloitte, Samtök at-
vinnulífsins og Samtök fyrirtækja í
sjávarútvegi.
„Ættu að vera þúsund manns“
Erindi Þorsteins bar heitið „Eng-
inn er eyland. Hvar stöndum við?“
og hóf hann mál sitt á menntun
ungra Íslendinga. Sagðist hann vilja
sjá miklu fleiri í skipstjórnar- og vél-
stjórnarnámi í Tækniskólanum.
„Þarna ættu að vera þúsund
manns. Við Íslendingar ættum að
stjórna stærstu skipum í heimi,“
sagði hann og bætti við að um allan
heim væri að finna mörg spennandi
tækifæri fyrir fólk sem menntaði sig
í þessum greinum.
Í þessu tilliti bar hann saman
niðurstöður myndaleitar hjá Google
þegar slegin eru inn orðin „flug“,
„upplýsingatækni“ og „sjávar-
útvegur“. Við viðstöddum blöstu
myndir af glæsilegum flugvélum á
flugi, flottar og nýjar tölvur, og loks
kældur fiskur í körum. Sagði hann
augljóst að þessar niðurstöður gæfu
ekki rétta mynd af þeim mögu-
leikum sem sjávarútvegur byði upp
á.
Þá greindi hann frá niðurstöðum
nýlegrar könnunar meðal ung-
menna, þar sem 25% svarenda sögð-
ust telja sjávarútveginn mikilvæg-
ustu atvinnugreinina, en aðeins þrjú
prósent aðspurðra vildu mennta sig í
greininni og eitt prósent sagðist vilja
starfa í geiranum. Sagði Þorsteinn
að samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar vildu ungmenni helst
starfa við alþjóðaviðskipti.
„Og hvað eru alþjóðaviðskipti?
Árið 2016 seldi Samherji fisk til 55
landa,“ bætti hann við og benti á að
síðustu viku septembermánaðar og
fyrstu vikuna í október hefði Sam-
herji sent fisk til 22 áfangastaða um
borð í 137 mismunandi flugvélum.
„Þetta lýsir því hvar við stöndum
hvað varðar alþjóðaviðskipti.“
Hátt laxverð vegna stöðugleika
Vék Þorsteinn þá máli sínu að því
sem hann sagðist telja mikilvægast
fyrir útflytjendur í sjávarútvegi að
hafa í huga, við sífellt harðnandi
samkeppni á erlendum mörkuðum.
„Það er fyrst og fremst trú-
verðugleikinn, að fólk geti treyst
okkur, en svo er hið svokallaða af-
hendingaröryggi. Menn gera kröfur
um stöðugt verðlag, stöðug gæði, að
matvælaöryggið sé í lagi, og loks
vilja þeir vinna með einhverjum sem
er sífellt að þróa sitt vöruframboð.“
Tók hann sem dæmi laxverð, sem
verið hefði allt að þrisvar sinnum
hærra en þorskverð síðustu misseri.
„Af hverju er laxinn svona hár?
Það er út af stöðugleikanum, það er
fyrirséð hvað verðið er, og afhend-
ingaröryggið er allt að því 100%.
Með því að líta á verðið kemur í ljós
hvaða áhrif þessir þættir hafa,“
sagði hann og benti á að þetta væru
kostir fiskeldis í Noregi.
„Það er oft verið að tala um að það
sé nauðsynlegt að slíta í sundur veið-
ar og vinnslu. En þarna er þetta aft-
ur á móti á einni hendi, og það er það
sem menn eru að borga fyrir.“
Í því sambandi nefndi hann að
norska fyrirtækið Marine Harvest,
sem sérhæfir sig í laxeldi, velti um
helmingi meira en allur íslenskur
sjávarútvegur. Fiskeldisfyrirtækið
Bakkafrost í Færeyjum hefði þá ný-
lega sameinað sjö verksmiðjur í
eina, sem væri í nýju tuttugu þúsund
fermetra húsnæði.
„Viðskiptavinirnir eru sífellt að
verða stærri og stærri. Innkaupa-
deildirnar þeirra eru hins vegar ekki
stórar og vilja ekki versla við
marga,“ sagði Þorsteinn og benti á
að það tæki sólarhring að keyra með
ferskan fisk frá Noregi til Póllands,
og einn og hálfan til tvo sólarhringa
frá Noregi til Frakklands.
„Við erum á kletti úti í ballarhafi.
Það er helmingi dýrara fyrir okkur
að koma fiski á markað í Evrópu. Og
alveg eins til Asíu. Það kostar jafn
mikið að flytja fisk frá Íslandi til
Evrópu og frá Evrópu til Kína,“
bætti hann við. Þá væri enn fremur
ódýrara að fljúga með fisk frá Nor-
egi til Bandaríkjanna.
Ekki eins og í ferðaþjónustunni
Að lokum ræddi Þorsteinn um
krefjandi aðstæður sjávarútvegs-
fyrirtækja í umhverfi mikillar gjald-
töku og í kjölfar styrkingar krón-
unnar. Laun í fiskvinnslu Samherja
hefðu þannig hækkað um 44% á að-
eins fimm árum, frá árinu 2012.
Mælt í norskum krónum hefðu þau
hækkað um 130%.
„En við gerum ekki eins og í
ferðaþjónustunni, við hækkum ekki
bara og hækkum verð,“ sagði hann
og tók enn fremur dæmi um ósann-
gjarna gjaldtöku:
„Stóru skemmtiferðaskipin sem
sigla innan lögsögunnar og koma
hér að landi, þau taka ekki olíu og
þurfa því ekki að borga gjaldið. Ís-
lensku flutningaskipin taka líka olíu
annars staðar,“ sagði hann og full-
yrti að þetta væri ójafn leikur, á
sama tíma og kolefnisgjaldið væri
fjórum sinnum hærra en í Noregi.
66 milljóna króna gjaldtaka
Þorsteinn tók annað dæmi um háa
gjaldtöku, en Samherji seldi nýlega
skip sitt Kristínu EA til rússneskrar
útgerðar.
„Til þess þurfti að fara til fógeta
og reiða af hendi 66 milljónir króna,
fyrir það eitt að þurrka út eitt skip í
skipaskrá. Þetta finnst hvergi nokk-
urs staðar í heiminum. Svo ef við
kaupum annað skip eru það aðrar 66
milljónir.“
Þá sagðist hann taka fyrir þá full-
yrðingu sem hann sagðist hafa heyrt
frá einum frambjóðanda í yfirstand-
andi kosningabaráttu, um að aðeins
eitt prósent af tekjum ríkisins kæmi
frá sjávarútvegi
„Það er alltaf verið að tala um að
við borgum ekkert, sköpum ekkert,
leggjum ekkert til.“ Sagðist hann
svo telja að skattspor þriggja
stærstu sjávarútvegsfyrirtækjanna
hér á landi væri um 20 milljarðar
króna, og að samkvæmt útreikn-
ingum rynnu 53% tekna í launa-
kostnað og opinber gjöld.
„Í Noregi nema laun og sömu
gjöld 32 prósentum. Menn geta farið
út um allan heim, það er hvergi hlið-
stæða.“
Og þrátt fyrir fjárfestingar í nýj-
um skipum að undanförnu sagði
hann ekkert efni til frekari gjald-
töku af hálfu ríkisins. „Við þurfum
að fjárfesta enn meira ef við ætlum
okkur að vera í fremstu röð.“
Þurfum að fjárfesta enn meira
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fiskeldi Kostir fiskeldis eru sagðir margir í viðskiptaumhverfi nútímans.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ráðstefna Þorsteinn segir ekki efni til frekari gjaldtöku af hálfu ríkisins.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Nýtt skip Björgúlfur EA kom til heimahafnar á Dalvík í fyrsta skipti fyrr á árinu. Þorsteinn segir að frekari fjárfestinga sé þörf í sjávarútvegi hér á landi.