Morgunblaðið - 19.10.2017, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 19.10.2017, Qupperneq 56
56 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2017 TOPPUR ehf Bifreiðaverkstæði TOPPUR er viðurkennt þjónustuverkstæði fyrir Skemmuvegi 34 • Kópavogi • Sími 557 9711 • toppur@toppur.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Skúli Halldórsson sh@mbl.is Íslenskir útflytjendur sjávarafurða þurfa að borga helmingi meira til að koma fiski á markað í Evrópu en kollegar þeirra í Noregi. Þetta kom fram í máli Þorsteins Más Baldvins- sonar, forstjóra Samherja, á ráð- stefnunni Sjávarútvegsdeginum sem fram fór í Hörpu á þriðjudag, en fyr- ir henni stóðu Deloitte, Samtök at- vinnulífsins og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. „Ættu að vera þúsund manns“ Erindi Þorsteins bar heitið „Eng- inn er eyland. Hvar stöndum við?“ og hóf hann mál sitt á menntun ungra Íslendinga. Sagðist hann vilja sjá miklu fleiri í skipstjórnar- og vél- stjórnarnámi í Tækniskólanum. „Þarna ættu að vera þúsund manns. Við Íslendingar ættum að stjórna stærstu skipum í heimi,“ sagði hann og bætti við að um allan heim væri að finna mörg spennandi tækifæri fyrir fólk sem menntaði sig í þessum greinum. Í þessu tilliti bar hann saman niðurstöður myndaleitar hjá Google þegar slegin eru inn orðin „flug“, „upplýsingatækni“ og „sjávar- útvegur“. Við viðstöddum blöstu myndir af glæsilegum flugvélum á flugi, flottar og nýjar tölvur, og loks kældur fiskur í körum. Sagði hann augljóst að þessar niðurstöður gæfu ekki rétta mynd af þeim mögu- leikum sem sjávarútvegur byði upp á. Þá greindi hann frá niðurstöðum nýlegrar könnunar meðal ung- menna, þar sem 25% svarenda sögð- ust telja sjávarútveginn mikilvæg- ustu atvinnugreinina, en aðeins þrjú prósent aðspurðra vildu mennta sig í greininni og eitt prósent sagðist vilja starfa í geiranum. Sagði Þorsteinn að samkvæmt niðurstöðum könn- unarinnar vildu ungmenni helst starfa við alþjóðaviðskipti. „Og hvað eru alþjóðaviðskipti? Árið 2016 seldi Samherji fisk til 55 landa,“ bætti hann við og benti á að síðustu viku septembermánaðar og fyrstu vikuna í október hefði Sam- herji sent fisk til 22 áfangastaða um borð í 137 mismunandi flugvélum. „Þetta lýsir því hvar við stöndum hvað varðar alþjóðaviðskipti.“ Hátt laxverð vegna stöðugleika Vék Þorsteinn þá máli sínu að því sem hann sagðist telja mikilvægast fyrir útflytjendur í sjávarútvegi að hafa í huga, við sífellt harðnandi samkeppni á erlendum mörkuðum. „Það er fyrst og fremst trú- verðugleikinn, að fólk geti treyst okkur, en svo er hið svokallaða af- hendingaröryggi. Menn gera kröfur um stöðugt verðlag, stöðug gæði, að matvælaöryggið sé í lagi, og loks vilja þeir vinna með einhverjum sem er sífellt að þróa sitt vöruframboð.“ Tók hann sem dæmi laxverð, sem verið hefði allt að þrisvar sinnum hærra en þorskverð síðustu misseri. „Af hverju er laxinn svona hár? Það er út af stöðugleikanum, það er fyrirséð hvað verðið er, og afhend- ingaröryggið er allt að því 100%. Með því að líta á verðið kemur í ljós hvaða áhrif þessir þættir hafa,“ sagði hann og benti á að þetta væru kostir fiskeldis í Noregi. „Það er oft verið að tala um að það sé nauðsynlegt að slíta í sundur veið- ar og vinnslu. En þarna er þetta aft- ur á móti á einni hendi, og það er það sem menn eru að borga fyrir.“ Í því sambandi nefndi hann að norska fyrirtækið Marine Harvest, sem sérhæfir sig í laxeldi, velti um helmingi meira en allur íslenskur sjávarútvegur. Fiskeldisfyrirtækið Bakkafrost í Færeyjum hefði þá ný- lega sameinað sjö verksmiðjur í eina, sem væri í nýju tuttugu þúsund fermetra húsnæði. „Viðskiptavinirnir eru sífellt að verða stærri og stærri. Innkaupa- deildirnar þeirra eru hins vegar ekki stórar og vilja ekki versla við marga,“ sagði Þorsteinn og benti á að það tæki sólarhring að keyra með ferskan fisk frá Noregi til Póllands, og einn og hálfan til tvo sólarhringa frá Noregi til Frakklands. „Við erum á kletti úti í ballarhafi. Það er helmingi dýrara fyrir okkur að koma fiski á markað í Evrópu. Og alveg eins til Asíu. Það kostar jafn mikið að flytja fisk frá Íslandi til Evrópu og frá Evrópu til Kína,“ bætti hann við. Þá væri enn fremur ódýrara að fljúga með fisk frá Nor- egi til Bandaríkjanna. Ekki eins og í ferðaþjónustunni Að lokum ræddi Þorsteinn um krefjandi aðstæður sjávarútvegs- fyrirtækja í umhverfi mikillar gjald- töku og í kjölfar styrkingar krón- unnar. Laun í fiskvinnslu Samherja hefðu þannig hækkað um 44% á að- eins fimm árum, frá árinu 2012. Mælt í norskum krónum hefðu þau hækkað um 130%. „En við gerum ekki eins og í ferðaþjónustunni, við hækkum ekki bara og hækkum verð,“ sagði hann og tók enn fremur dæmi um ósann- gjarna gjaldtöku: „Stóru skemmtiferðaskipin sem sigla innan lögsögunnar og koma hér að landi, þau taka ekki olíu og þurfa því ekki að borga gjaldið. Ís- lensku flutningaskipin taka líka olíu annars staðar,“ sagði hann og full- yrti að þetta væri ójafn leikur, á sama tíma og kolefnisgjaldið væri fjórum sinnum hærra en í Noregi. 66 milljóna króna gjaldtaka Þorsteinn tók annað dæmi um háa gjaldtöku, en Samherji seldi nýlega skip sitt Kristínu EA til rússneskrar útgerðar. „Til þess þurfti að fara til fógeta og reiða af hendi 66 milljónir króna, fyrir það eitt að þurrka út eitt skip í skipaskrá. Þetta finnst hvergi nokk- urs staðar í heiminum. Svo ef við kaupum annað skip eru það aðrar 66 milljónir.“ Þá sagðist hann taka fyrir þá full- yrðingu sem hann sagðist hafa heyrt frá einum frambjóðanda í yfirstand- andi kosningabaráttu, um að aðeins eitt prósent af tekjum ríkisins kæmi frá sjávarútvegi „Það er alltaf verið að tala um að við borgum ekkert, sköpum ekkert, leggjum ekkert til.“ Sagðist hann svo telja að skattspor þriggja stærstu sjávarútvegsfyrirtækjanna hér á landi væri um 20 milljarðar króna, og að samkvæmt útreikn- ingum rynnu 53% tekna í launa- kostnað og opinber gjöld. „Í Noregi nema laun og sömu gjöld 32 prósentum. Menn geta farið út um allan heim, það er hvergi hlið- stæða.“ Og þrátt fyrir fjárfestingar í nýj- um skipum að undanförnu sagði hann ekkert efni til frekari gjald- töku af hálfu ríkisins. „Við þurfum að fjárfesta enn meira ef við ætlum okkur að vera í fremstu röð.“ Þurfum að fjárfesta enn meira Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fiskeldi Kostir fiskeldis eru sagðir margir í viðskiptaumhverfi nútímans. Morgunblaðið/Styrmir Kári Ráðstefna Þorsteinn segir ekki efni til frekari gjaldtöku af hálfu ríkisins. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Nýtt skip Björgúlfur EA kom til heimahafnar á Dalvík í fyrsta skipti fyrr á árinu. Þorsteinn segir að frekari fjárfestinga sé þörf í sjávarútvegi hér á landi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.