Morgunblaðið - 19.10.2017, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 19.10.2017, Blaðsíða 44
44 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2017 ALLIR FÁÍS á laugard ag vogitu JÓLALANDIÐ OPNAR Í BLÓMAVALI SKÚTUVOGI ÁLAUGARDAGINN VIÐTAL Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Kannski hef ég misst svo mikið að ég er ekki hrædd við að missa lífið. Ég er 22 ára og þetta eru stór orð fyr- ir unga stúlku,“ segir hin norsk- íraska Faten Mahdi Al-Hussaini, að- gerðasinni og talsmaður gegn haturs- áróðri sem stofanði samtökin Just- Unity í Noregi, sem vinna gegn öfgum og ofstæki. Hún er talskona NRK, norska ríkisútvarpsins, gegn hatursáróðri. Faten var tekin tali á alþjóðlegri friðarráðstefnu Höfða friðarseturs, sem fram fór í Veröld, húsi Vigdísar. Faten er fyrsti þáttastjórnandi hjá NRK sem ber höfuðslæðu, eða híjab, í sjónvarpi. „Ég var ekki ráðin af því að ég ber höfuðslæðu, híjab. NRK líkaði hvað ég var frökk og hæfi- leikrík í starfið. Það er allt og sumt.“ Faten segir að hún sé ekki höfuð- slæðan, heldur góð stelpa, vel gefin, ljóshærð, skemmtileg og sterk. „NRK spáði ekki í því að ég bæri híjab fyrr en sex þúsund kvartanir bárust áður en þátturinn fór í loftið. Starfið hjá NRK er það fyrsta sem ég fékk sem ég sjálf og berandi híjab. Áður var eina vinnan bak við tölvu í símasölu undir nafninu Viktoría. Það var erfitt og Noregur á langt í land.“ Hvorki nógu norsk né írösk Faten er er fædd í Írak hún flutti ung með foreldrum sínum til Noregs. „Ég fell hvergi inn í samfélagið. Ég er ekki nógu norsk fyrir Norðmenn af því að ég ber híjab. Ég er heldur ekki nógu írösk fyrir Íraka af því að ég mála mig, heilsa karlmönnum með handabandi og á kærasta. Ég er norsk þegar ég tala um það sem Norðmenn vilja og þá eru þeir stoltir af mér. Ef ég tala um annað er ég ekki norsk og geng með híjab.“ Ellefu ára gömul krafðist Faten þess að læra arabísku betur og bjó þá í eitt ár hjá ættingjum í Írak. Henni hafði verið strítt í samfélagi múslima fyrir slaka arabísku. Í Írak var Faten barin, pyntuð og lögð í einelti eins og margir aðrir í skólanum. Hún varð vitni að mannránum, morðum og sprengingum. Faten varð á þessum tíma árásargjörn án ofbeldis og reið alla daga. Hún vissi að hún yrði að finna leið til þess að tjá sig þrátt fyrir að fólki líkaði ekki það sem hún segði. Faten sneri aftur til Noregs þakklát. „Ég var þakklát fyrir að geta farið út og vita að ég kæmist heim aftur. Þannig var það ekki í Írak.“ „Hætta á að ég verði drepin“ Faten er viss um að hún hefði þag- að hefði hún búið áfram í Írak. „Það er hætta á því að ég verði drepin í Noregi. Það væri eflaust búið að því ef vilji hefði verið til þess. Ég og fjölskylda mín höfum þurft- lögregluvernd. Ég er þögul um það sem gerðist í Írak og bíð eftir tæki- færi til þess að fara þangað aftur. Ég ætla ekki að þegja alla tíð. Ég á fjöl- skyldu í Írak og þar er mitt annað land. Mig langar að leggja mitt af mörkum í uppbygginu Íraks. Það getur verið hættulegt að tala en það er hættulegra að lifa í þögninni og þar er ég núna varðandi Írak.“ Faten á fimm yngri systur, sem all- ar eru fæddar í Noregi. Hún segir þær frjálsar og velja sínar eigin leiðir. „Við erum mjög ólíkar en ég er fyr- irmynd þeirra. Ég er elst, tók slaginn og gerði þeim auðveldara að alast upp á heimili okkar. Þær þakka það.“ „Ég greiddi frelsið með æsku minni. Ég gekk í skóla þar sem hvítt fólk var 90% nemenda og ég oft sú eina með híjab. Það var erfitt og ég var lögð í einelti. Mér var bara einu sinni boðið í afmæli. Ég gerði allt til þess hljóta samþykki og falla inn í hópinn en það dugði ekki. Stúlkurnar héldu að híjabið takmarkaði mig en það gerir það ekki, hefur aldrei gert og mun aldrei gera,“ segir Faten. Hún gerði sér ekki grein fyrir hatr- inu á höfuðslæðum fyrr en hún sá at- hugasemdir og hatrið á Fésbókinni. „Lausnin er að ræða það af hverju- fólki finnst híjab vera tákn um kúgun og hatrið sem beinist að íslam og inn- flytjendum. Hver getur skilgreint hí- jab fyrir stúlku? Ekki sú sem ekki ber híjab, heldur sú sem ber það. Ef þess er krafist að stúlka beri híjab er það kúgun. Fyrir aðrar getur það verið sjálfsmynd, trú, menning eða jafnvel tíska,“ segir Faten og bendir á að hún beri híjab sem trúartákn. Faten beinir orðum til blaðamanns: „Þú þekkir mig ekki, hvernig átt þú að skilgreina hver ég er? Ég er sú eina sem get skilgreint mig sem kristna, trúleysingja, múslima eða hvað annað. Ég gæti gengið um með híjab trúlaus og litið á það sem tísku- fyrirbrigði. Sama gildir um kross- inn.“ Faten segist eiga marga stuðn- ingsmenn og það séu ekki allir Norð- menn sem hati höfuðslæðu. Þeir sem haldi uppi ljótri umræðu á komm- entakerfinu séu að gera hættulega hluti. Í tíð Obama Bandaríkjaforseta voru ekki færri kynþáttahatarar. „Obama leyfði þegnunum ekki að vera kynþáttahatarar. Það eru ekki fleiri kynþáttahatarar í tíð Trumps, en hann leyfir kynþáttahatur.“ Spurðu af hverju berðu híjab? Faten sem hefur lausn á for- dómum. „Fólk á að tala við hvert annað en ekki um hvert annað. Ef þú hefur á móti híjab, farðu þá og spurðu þá sem ber það af hverju hún geri það. Verið sammála um að það sé í lagi að vera ósammála. Það er heilbrigt að fólk hugsi á mismunandi hátt.“ Fatan er nokkuð niðri fyrir og seg- ir: „Virtu mig og taktu mér eins og ég er. Ekki reyna að breyta mér. Ekki reyna að taka af mér híjabið og segja mér að taka það af mér til þess að verða samþykkt. Ég er á móti níkab sem er slæða sem hylur allt nema augun því mér finnst það ekki passa. Ég er á móti því að setja lög sem banna konum að vera í níkab. Í Nor- egi bera innan við 100 konur níkab. Látið þær í friði. Ef konur í Noregi verða þvingaðar til þess að taka af sér níkabið verð ég sú fyrsta sem fer í ní- kab til að mótmæla þeim lögum.“ Faten segir að konur sem beri ní- kab séu ekki hryðjuverkarmenn eða öfgamenn. Að bera níkab sé íhalds- samt og það sé ekkert að því að vera íhaldssamur. „Það er ekki það sem þú klæðist eða berð á höfðinu sem gerir þig að öfgasinna heldur það sem gerist í höfðinu á þér. Fólk verður að þekkja muninn á öfgum og íhaldi.Ég er íhaldssamur múslími með ákveðnar reglur gagnvart sjálfri mér en ég geri ekki kröfur á aðra. Fjölmiðlar draga upp þá mynd að múslimar séu hryðjuverkamenn en hvítur fjölda- morðingi í Vegas sé andlega veikur.“ Fannst foreldrarnir skrímsli „Ég vil ekki tala um þá hluti sem pabbi var þvingaður til að gera mér. En á þeim tíma fannst mér hann vera skrímsli og djöfull. Hann skildi mig ekki og snerist gegn mér. Af því að hann elskaði mig hélt hann að hann væri að gera það eina rétta. Hann var undir mikilli pressu frá samfélaginu og taldi þann gjörning betri en heið- ursmorð,“ segir Faten og bætir við með nokkurri hlýju: „Faðir minn er ein besta mann- eskja sem ég þekki og ein af fyr- irmyndum mínum sem ég elska. Hann er mjög stoltur af mér í dag en það mátti hann ekki fyrir ári síðan. Ekki líta á þessa menn sem skrímsli, það verður að taka tillit til þess hvers vegna þeir gera hlutina. Faðir minn stendur með mér núna því samfélagið mitt stendur með mér og gerir það eins lengi og ég tala í þágu þess. Ef ég hætti því veit ég að samfélagið snýst gegn mér aftur.“ Faten segir móður sína sterka og ákveðna konu en mjög íhaldssama. „Hún er hrædd um að ég nái ekki þrí- tugsaldri. Ég verði drepin áður. Mér er sama um afleiðingarnar sem orð mína hafa og ef einhver vill skjóta mig þá gerir hann það. Ég er óttalaus og mamma segir það sjúkdóm.“ Faten segir að þegar fjölskyldan hafi sett pressu á hana hafi hún feng- ið sömu tilfinningu og þegar Norð- menn vilji taka af henni híjabið. Henni hafi fundist þau skrímsli. Uppgjöf ekki valmöguleiki „Ég tipla ekki á tánum. Ég veit að ég þarf að gjalda fyrir það og geri það með ánægju. Kannski fæ ég styrk úr öllu hatrinu sem er beint að mér. En þegar ég er að gefast upp hef ég fjöl- skylduna sem uppörvar mig.“ Erfiðu umræðuna þarf að taka. Setjast niður og ræða málin og jafn- vel stíga á einhverjar að mati Faten. „Ég hef sest niður með fólki sem raunverulega hataði mig og vildi mig feiga. Við áttum gott samtal.“ Fordómar stafa af fáfræði, segir Faten. Það að konur keyri ekki í Sádi-Arabíu hefur ekkert með trúar- brögð að gera það er menningarlegt. Við Íslendinga vill Faten segja: „Hættið fordómum, í guðanna bænum. Komið fram við flóttamenn á réttlátan og hreinskiptinn hátt. Segið hvaða reglur gilda í landinu, kennið þeim málið og útvegið vinnu. Ef þetta er ekki gert verða vandamál með flóttamenn eftir tíu ár og börnin þeirra líka. Ef þú kemur fram með hræðslu gagnvart fólki færðu hræðslu til baka. Ef þú hatar fólk verndar fólk sig með því að hata.“ Yngri kynslóðin hefur minni for- dóma er skapandi og vanmetin. Stjórnmálamenn eiga að hætta að tala um hana. Það á að tala við yngri kynslóðina það er hún sem tekur við. „Ég greiddi frelsið með æskunni“  Talskona NRK gegn hatursáróðri flutti áhrifaríkt erindi á friðarráðstefnu  Stofnaði samtök sem vinna gegn öfgum og ofstæki  Kvartað undan því að hún beri höfuðslæðu  Talin vera í lífshættu Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Baráttukona Faten Mahdi Al-Hussaini, 22 ára þáttastjórnandi NRK í Noregi, sú fyrsta sem fram kemur með höf- uðslæðu í sjónvarpi. Faten er óttalaus og segir það sem henni býr í brjósti. Framundan eru nýjir þættir og leikrit. Híjab er ein tegund slæðu en jafnframt samheiti yfir allar gerðir af slæðum múslima- kvenna samkvæmt Vísinda- vefnum.  Híjab (e. hijab) Hylur hár og háls.  Níkab (e. niqab) Hylur allan líkamann nema augu.  Tjador (e. tjador) Hylur allan líkamann nema hendur og andlit.  Búrka (e. burka) Hylur allan líkamann. Net er fyrir aug- um. Ólíkar slæður múslima SKILGREINING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.