Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 95

Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 95
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018 11FRÉTTIR Af síðum Inn með maríjúana og út með kvíðann. Auglýsendur í San Francisco eru byrj- aðir að upplýsa neytendur um róandi eiginleika kannabis. Fjárfestar ættu þó ekki að vera alveg jafn sultuslakir. Í fyrra streymdu þeir inn í kannabis- lyfjageirann og væntu þess að lögleiðing maríjúana í Kaliforníu í janúar, og plön um að gera slíkt hið sama í Kanada síð- ar á þessu ári, myndi verða lyftistöng fyrir greinina. Hlutir í fyrsta kannabistengda sjóðnum sem viðskipti eru með í kauphöll, Horizons Marijuana Life Sciences Index, höfðu nærri tvöfaldast í verði í árslok. Ýmis hlutabréf sem höfðu flogið hátt í janúar tóku að lækka eftir að ríkisstjórn Trump fór að framfylgja alríkislögum um maríjúana af meiri hörku. En kannabis er enn rjúkandi heit vara í Kanada. Í jan- úar upplýsti Aurora Cannabis um kaup á CanniMed Therapeutics fyrir 1,1 milljarð kanadadollara. Eftir að hlutabréfaverð fyrirtækisins nærri fjórfaldaðist á undanförnu ári, jafngildir heildarvirði þess hvorki meira né minna en 164-földum tekjum síðasta árs. Annað hlutafélag sem blásið hefur upp er Canopy Growth, sem er núna að seljast á þrefalt hærra verði en fyrir hálfu ári. Það studdi við hækkun hlutabréfaverðsins að drykkjaframleiðandinn Constellation Brands ákvað að kaupa nærri 10% hlut í félaginu í október. Kaupin má skýra með fyrirhuguðu samstarfi um framleiðslu drykkja sem verða blandaðir kannabis. Þau mætti líka skýra með ótta við að kannabis muni taka stóran skerf af drykkjamarkaðinum, enda virðist æ fleira ungt fólk taka það fram yfir alkóhól. Það er líka fiðringur í kringum Cronos, annan maríjúanaframleið- anda í Kanada sem hefur fjórfaldast í verði á síðastliðnum sex mán- uðum. Hlutabréfaverð félagsins sveiflaðist upp á við í lok febrúar eft- ir að það varð fyrsta kannabis-fyrirtækið til að verða skráð á Nasdaq. Þeir sem eru bjartsýnir á framtíð kannabis-hlutabréfa telja að þeir sem ryðja brautina í dag muni njóta góðs af að vera þeir fyrstu á markaðinum, nú þegar lögleiðing efnisins nýtur aukins hljómgrunns víða um heim. Einn markaðsgreinandi telur að stærð kannabismark- aðarins verði búin að vaxa ellefufalt árið 2027, eða upp í 140 milljarða dala. En eftir því sem eftirspurnin eykst er næsta víst að sam- keppnin mun harðna. En það sem meira er um vert, þá er enn ýms- um spurningum ósvarað um læknisfræðilegt gildi kannabis, öryggi vörunnar og hvort neysla á henni mun þykja samfélagslega ásætt- anleg. Hætturnar sem fylgja því að veðja á nýjan og umdeild- an iðnað geta verið jafn lúmskar og vatnsreykjarpípur. LEX AFP Kannabis: Í pottinn búið Toyota ákvað á þriðjudag að gera hlé á prófunum á sjálfakandi bílum á göt- um úti í Bandaríkjunum. Er Toyota fyrsti stóri bílaframleiðandinn til að grípa til varúðarráðstafana af þessu tagi eftir að gangandi vegfarandi varð fyrir sjálfakandi Uber bíl, í Tempe í Arizona á sunnudagskvöld, með þeim afleiðingum að hann lét lífið. Uber tók tilraunaflota sinn af göt- unum í Norður-Ameríku á mánudag en slysið er talið vera það fyrsta þar sem gangandi vegfarandi lætur lífið vegna sjálfakandi bíls. General Mot- ors, sem er eitt þeirra fyrirtækja sem lagt hafa hvað mest í prófanir á sjálf- akandi bílum í Bandaríkjunum, og keppinautur þeirra Ford, segjast ætla að halda prófunum sínum áfram óhindrað. Ákvörðun Toyota gæti skapað þrýsting á önnur fyrirtæki sem þróa sjálfakandi bíla, svo sem Waymo, dótturfélag Alphabet, Tesla og Apple, auk fjölda annarra bílaframleiðenda og tæknisprota sem hafa flykkst inn á þetta svið á undanförnum árum. Japanski bílaframleiðandinn segist gera ráð fyrir að stöðvun prófana í Bandaríkjunum verði tímabundin, og að hléið sem gert verður á prófunum sé vegna fólksins sem annast prufu- aksturinn fyrir fyrirtækið. Prófanir í Japan og á lokuðum brautum í Bandaríkjunum munu halda áfram, að sögn Toyota. „Við gerðum þetta gagngert með velferð ökumanna okkar í huga því við gerum okkur grein fyrir að slysið kann að hafa neikvæð sálræn áhrif á þá. Þetta er bara tímabundið hlé, og aðeins gert í varúðarskyni,“ tjáði Toyota Financial Times. Öryggið í fyrirrúmi GM kveðst ætla að halda áfram prófunum í Kaliforníu, Michigan og Arizona og hyggst fyrirtækið ekki fresta áætlunum sínum um að hafa sjálfakandi bíla, án stýris og pedala, á götunum í bandarískum borgum strax á næsta ári. Cruise, dótturfélag GM sem annast þróun sjálfakandi bíla, á stærsta sjálfakandi bílaflotann í Kaliforníu og er með leyfi fyrir 110 tilraunabílum. „Að standa vörð um öryggi fólksins í þeim samfélögum þar sem við búum og störfum, og aðgæta öryggi starfs- manna okkar, er þungamiðjan í rekstri okkar,“ sagði GM. „Áætlanir okkar um að setja sjálfakandi bíla í almenna notkun árið 2019 eru óbreyttar, en eins og við höfum sagt allt frá upphafi þá leggjum við ekki af stað fyrr en við vitum að það er öruggt.“ Ford sagði á mánudag að árekst- urinn mundi ekki hafa áhrif á próf- anir þeirra. Fulltrúar Apple, Waymo og Lyft, sem eru með flota af tilraunabílum í umferð í Kaliforníu og annars staðar í Bandaríkjunum, svöruðu ekki fyrir- spurnum FT. Zoox, sem er vel fjármagnað sprotafyrirtæki sem þróar sjálf- akandi bíla, segir að prófanir muni halda áfram í San Francisco. Zoox bætti við að fyrirtækið hefði sett sér strangar öryggisreglur sem fylgt væri við allar prófanir. Á þriðjudag sagðist Drive.ai, annar mjög áberandi sproti í þessum geira, einnig halda prófunum áfram með óbreyttum hætti. Tæknin á að fækka slysum Á mánudag sögðu samtök banda- rískra bílaframleiðenda, Alliance of Automobile Manufacturers, að slysið um helgina væri „hörmulegt“ en ítrekaði að bílaiðnaðurinn stefndi staðfastlega að þróun sjálfakandi bíla. „Í ljósi þess að mannleg mistök koma við sögu í 94% allra bílslysa, þá bind- um við miklar vonir við að ný tækni muni gera umferðina öruggari,“ sögðu samtökin. „Með sjálfakandi bíl- um gæfist líka tækifæri á að auka ferðafrelsi fjölda fólks, en það er mik- ilvægt að við höfum öryggi að leið- arljósi í þessari vegferð.“ Ýmis samtök sem beita sér fyrir öryggi almennings hafa beðið banda- rísk stjórnvöld um að fresta því að samþykkja ný lög um sjálfakandi bíla, þar til yfirvöld hafa lokið frekari rannsóknum á tækninni. Þau sendu í sameiningu bréf til við- skipta, vísinda og samgöngunefndar Bandaríkjaþings um að kveðið verði á um frekari varúðarráðstafanir í AV START-frumvarpinu sem þingið er með til skoðunar. Bréfið sendu þau í sömu viku og ætlunin er að nefndin fjalli um gall- aða loftpúða í bílum. Vara höfundar bréfsins við að neytendur gætu enn eina ferðina orðið fórnarlömb „afglapa framleiðenda og mistaka stjórnvalda ef miklum fjölda sjálf- akandi bíla verður hleypt út á göt- urnar í tilraunaskyni, nema þingið grípi til aðgerða“. „Þær sorglegu fréttir að gangandi vegfarandi skuli hafa látið lífið … ætti að minna okkur kirfilega á að það að taka sjálfakandi bíla of snemma í notkun mun hafa raunverulegar af- leiðingar.“ Meðal þeirra sem undirrituðu bréf- ið voru samtökin Emergency Nurses Association, Consumer Watchdog, Federal Law Enforcement Officers Association, Advocates for Highway and Auto Safety og Consumer Federation of America. Sjálfakandi bílum Toyota lagt um stundarsakir Eftir Patti Waldmeir Flestir bílaframleiðendur ætla ekki að stöðva próf- anir á sjálfakandi bílum þrátt fyrir banaslys um síðustu helgi þar sem til- raunabíll Uber ók á gang- andi vegfaranda. AFP Margir vinna að þróun sjálfakandi bíla. GM sýndi á dögunum myndir af nýj- um bíl sem verður stýris- og pedalalaus og á að fara á götuna á næsta ári.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.