Morgunblaðið - 26.04.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018
ZAGREB
10.maí í 3 nætur
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Netverð á mann kr. 69.795 m.v. tvo í herbergi
með morgunverði á hótel Rebro í 3 nætur.Hótel Rebro
Frá kr.
69.795
ÓTRÚLEGT
TILBOÐ!
ALLRA SÍÐUSTU
SÆTIN
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Í dag verður hleypt af stokkunum
nýjum undirvef mbl.is, með nafnið
Fjölskyldan. Vefurinn verður í umsjá
Dóru Magnúsdóttur fjölmiðlafræð-
ings, en hún starfaði á árum áður á
fréttadeild Morgunblaðsins.
„Þetta verður vefur um fjölskyldu-
og uppeldismál og er í raun eini mið-
illinn með þessa nálgun hérlendis frá
því að tímaritið Uppeldi hætti,“ segir
Dóra, en hún segir miðla um fjöl-
skyldur og foreldrahlutverkið vin-
sæla víða erlendis, oft sem undirvefir
stærri fjölmiðla. Dóra segir einnig
áskriftartímaritið Uppeldi, sem kem-
ur ekki út lengur, hafa verið gefið út í
meira en 20 ár sem sýni m.a. að fyrir
þessum málaflokki sé talsverður
áhugi.
„Fjölskyldan verður rekin undir
þeim formerkjum að vera fjöl-
breyttur og fræð-
andi miðill sem
birtir fréttir, ráð
og umfjallanir
með léttara efni í
bland.“
Flokkarnir
verða meðganga
og fæðing, upp-
eldi, skólamál,
heilbrigði, sam-
vera og fjöl-
skyldan. Dæmi um efni sem verður til
umfjöllunar er t.d. fæðuval og frjó-
semi, snjalltækjanotkun barna, les-
blinda, tannhirða barna, frístundir í
sumar og einstakar fjölskyldur, svo
eitthvað sé nefnt úr öllum flokkum.
Sem dæmi um fjölbreytni hafi hún
áhuga á að fjalla um fjölbreyttar fjöl-
skyldur og fjölskyldugerðir, t.d. hafi
hún þegar tekið viðtal við ítalska fjöl-
skyldu sem býr hérlendis.
„Ég á líka sjálf fimm börn á aldr-
inum átta til 25 ára og hef því tals-
verða reynslu af börnum og fjöl-
skyldulífi, en ég nálgast þetta
verkefni auðvitað fyrst og fremst sem
blaðamaður og mitt hlutverk verður
að tala við fagfólk, foreldra og fjöl-
skyldur og miðla upplýsingum,“ segir
Dóra og bætir við: „Við verðum í
samstarfi við pistlahöfunda og ég er
komin með ýmsa ólíka höfunda, bæði
fagaðila og mömmubloggara. Ég
stefni á að vera með samtöl við börn
og ég er komin í samstarf við lækna-
og sálfræðistofuna Sól sem sérhæfir
sig í aðstoð við fjölskyldur og hefur á
sínum snærum barnalækna, sálfræð-
inga og geðlækna, en þar starfa 20
manns.
Aðstandendur barna hafa áhuga á
ýmsu en þegar upp er staðið er fátt
mikilvægara en börnin og velferð
þeirra. Ég vona að vefurinn geti orðið
fjölskyldufólki bæði dægradvöl og
fróðleiksnáma,“ segir Dóra.
Nýr fjölskylduvefur á mbl.is
Dóra
Magnúsdóttir
Fjölskyldan í umsjá Dóru Magnúsdóttur Sambærilegir
vefir vinsælir erlendis Fjölbreytt efni og fræðandi
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Faxaflóahöfnum hefur borist fyr-
irspurn um það hvort fyrirtækið
geti tekið á móti 230.000 brúttó-
tonna skemmtiferðaskipi.
Um er að ræða sannkallað risa-
skip því lengdin er 400 metrar eða
eins og fjórir knattspyrnuvellir. Til
samanburðar eru stærstu skip ís-
lenska flotans, Dettifoss og Goða-
foss, 14.664 brúttótonn.
„Ég svaraði því til að mögulegt
væri að taka skip af þessari stærð
að bryggju en því yrði að snúa utan
við Skarfagarð og bakka inn eða út
því snúningspláss utan við bryggj-
una sjálfa er ekki nægjanlegt. Allt
væri þetta að sjálfsögðu háð veðri,
eins og alltaf með skip almennt,“
segir Gísli Jóhann Hallsson, yfir-
hafnsögumaður hjá Faxaflóa-
höfnum. Skarfabakki í Sundahöfn
er 650 metra langur.
Fyrirspurnin barst frá umboðs-
manni skipa án nafns. Mögulegt er
að skipið sé á teikniborðinu eða þá í
smíðum, en engar frekari upplýs-
ingar fylgdu.
Stærsta skemmtiferðaskip
heimsins, Symphony of the Seas,
lagði af stað í jómfrúferð sína fyrir
skömmu. Það er 228.081 brúttó-
tonn, eða af svipaðri stærð og skip-
ið sem spurt er um nú.
Vertíð skemmtiferðaskipanna
hefst í næstu viku og verður þetta
metár. Von er á 165 skipakomum til
Reykjavíkur og Akraness og far-
þegafjöldinn verður í kringum 147
þúsund. »24
AFP
Stærsta skipið Symphony of the
Seas leggur af stað í jómfrúferð.
230 þúsund
tonna skip
til Íslands?
Faxaflóahafnir
fengu fyrirspurn
Íslenskir Lionsmenn heiðruðu Guðrúnu Björtu
Yngvadóttur í Hörpunni í gær í tilefni af því að
hún verður kjörin alþjóðaforseti Lionshreyfing-
arinnar. Hún verður fyrsta konan til að gegna
þessu embætti í 100 ára sögu Lions og fyrsti al-
þjóðaforsetinn frá Íslandi. Guðrún tekur við emb-
ættinu á alþjóðaþingi sem haldið verður í Las Ve-
gas í Bandaríkjunum eftir rúman mánuð og
kynnir markmið sín. Guðrún Björt mun á komandi
starfsári verða á ferðinni, á fundum og í heim-
sóknum um allan heim enda í mörg horn að líta
hjá forseta hreyfingar með 1,5 milljónir félaga.
Morgunblaðið/Eggert
Fyrsta konan sem verður alþjóðaforseti Lions
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Útköllum vegna sjúkraflutninga á
Suðurlandi fjölgaði um 4,8% milli
áranna 2016 og 2017. Hlutfall er-
lendra ríkisborgara í sjúkraflutn-
ingum var 10,7% á árinu 2017 og
eknir kílómetrar í sjúkraflutningum
á Suðurlandi einu voru 600.000 á
árinu 2017. Þetta er meðal þess sem
kom fram í ræðu Svandísar Svav-
arsdóttur, heilbrigðisráðherra, í sér-
stakri umræðu um framtíð og fyr-
irkomulag utanspítalaþjónustu og
sjúkraflutninga á Alþingi í gær.
Vilhjálmur Árnason, þingmaður
Sjálfstæðis-
flokksins, sem
var málshefjandi,
fór yfir nauðsyn
þess að tryggja
öllum lands-
mönnum bestu
mögulegu heil-
brigðisþjónustu
óháð búsetu, en
fjöldi ferðamanna
hefur meðal ann-
ars aukið álag á sjúkraflutninga.
„Mikilvægi, hlutverk og áskoranir í
utanspítalaþjónustu hafa aukist
jafnt og þétt síðustu ár. Íbúum er að
fjölga um allt land og mun fleiri
ferðamenn sækja landið heim,“
sagði Vilhjálmur. Talaði hann fyrir
því að setja ætti á fót miðstöð utan-
spítalaþjónustu til þess að halda ut-
an um málaflokkinn og vinna að
gæðamálum og samræmingu þjón-
ustunnar um allt land. Einnig væri
mikilvægt að taka í notkun sér-
hæfða sjúkraþyrlu, sem mönnuð
væri sérhæfðum lækni og bráða-
tækni auk flugmanna líkt og í ná-
grannalöndunum.
Svandís tók undir það með Vil-
hjálmi að ferðamenn hefðu aukið
álag á sjúkraflutninga en sam-
kvæmt upplýsingum frá Neyðarlín-
unni voru um 4% sjúkraflutninga á
árinu 2017 vegna erlendra ríkis-
borgara, auk þess sem óljóst var
með ríkisfang 5% til viðbótar þar
sem þeir höfðu ekki fullnægjandi tíu
stafa kennitölu. „Því er ljóst að um-
talsverður hluti sjúkraflutninga
kemur til vegna ferðamanna,“ sagði
Svandís. Starfshópur mun á næst-
unni skila til heilbrigðisráðherra
skýrslu um mögulegan ávinning af
rekstri sérhæfðrar sjúkraþyrlu og
benti ráðherrann á að helst væri
verið að horfa til styttri útkallstíma;
að tryggja að slasaðir komist sem
fyrst á sérhæft sjúkrahús og að sér-
menntað starfsfólk komist sem
hraðast til þeirra sem slasast.
Aukið álag í sjúkraflutningum
Ferðamenn meðal ástæðna fyrir auknu álagi 10,7% af sjúkraflutningum árið
2017 voru erlendir ríkisborgarar Starfshópur skoðar sérhæfða sjúkraþyrlu
Svandís
Svavarsdóttir